Beina leið á efnisyfirlit þessarar síðu

Fréttir

Mannréttindafulltrúi Evrópuráðsins vill efla Neyðarmótttöku á Íslandi

14.12.2005

Í júlí síðastliðnum kom Alvaro Gil-Robles, mannréttindafulltrúi Evrópuráðsins, í heimsókn til Íslands í þeim tilgangi að kynna sér stöðu mannréttindamála. Í skýrslunni, sem kom út 14. desember, er sjónum meðal annars beint að úrræðum vegna kynbundins ofbeldis. Sérstaklega er tiltekið í skýrslunni hversu fá ofbeldismál eru kærð og hversu fáir dómar falla í þeim málum sem ákært er í. Þá eru stjórnvöld hvött til að fræða fagfólk sem kemur að ofbeldismálum um afleiðingar þeirra og leiðir til að vinna gegn kynbundnu ofbeldi.

Alvaro Gil-Robles heimsótti margar stofnanir og þar á meðal Neyðarmóttöku vegna nauðgunar, sem hann segir vera til fyrirmyndar. Í skýrslunni hvetur hann stjórnvöld til að útvíkka starfsemi móttökunnar til að hún geti sinnt öllum sem verða fyrir heimilisofbeldi.

Mannréttindafulltrúanum verður tíðrætt um konur af erlendum uppruna sem sæta ofbeldi af hendi maka og dregur fram bága stöðu þeirra hér á landi. Hann hvetur stjórnvöld til að breyta lögum þannig að konur sem verða fyrir ofbeldi séu ekki háðar maka með landvistarleyfi. Sömuleiðis er lagt til að sú félagslega aðstoð sem erlendar konur fá, sé ekki notuð gegn þeim þegar kemur að dvalarleyfi og ríkisborgararétti ef þær hafa orðið fyrir ofbeldi.

Alvaro Gil-Robles segir engan vafa leika á því að kynbundið ofbeldi sé vandamál hér á landi sem annars staðar. Hann tekur undir þær tillögur sem kvenna- og mannréttindahreyfingin hér á landi hefur verið óþreytandi að bera upp: Efling neyðarmóttökunnar og menntun fagstétta til að takast á við afleiðingar kynbundins ofbeldis og efla forvarnir.

Til baka, Senda grein, Prenta greinina

 

 

Leita á vefnum


 

Póstlisti

Skráning á póstlista.

Vinsamlegast athugaðu að netfangið sé rétt slegið inn.


 


þetta vefsvæði Byggir á Eplica

 

efnisyfirlit síðunnar


þetta vefsvæði byggir á eplica. eplica heimasiðugerðheimasiðugerð - nánari upplýsingar á heimasíðu eplica.