Beina leið á efnisyfirlit þessarar síðu

Fréttir

Fundur með forsvarsmönnum stjórnmálaflokkanna

9.12.2005

Í tilefni 16 daga átaks gegn kynbundnu ofbeldi boðuðu aðstandendur átaksins til samræðna við forsvarsmenn stjórnmálaflokkanna þann 9. desember um aðgerðir til að útrýma kynbundnu ofbeldi. Mikill einhugur var meðal fundarmanna um að aðstæður hefðu nú skapast í þjóðfélaginu til að taka alvarlega á málum er varða kynbundið ofbeldi. Þátttakendum var tíðrætt um tengsl kynbundins ofbeldis við klámvæðinguna og mikilvægi þess að halda á lofti mannhelgi og jafnrétti. Hugmyndir um austurrísku leiðina svokölluðu í heimilisofbeldismálum, þar sem lögreglan fær heimildir til að vísa ofbeldismanni af heimili og setja á tímabundið heimsóknarbann, hlutu jákvæðar viðtökur fundarmanna.

Fram kom að margt hefur áunnist á liðnu ári og væri það að þakka öflugri samvinnu félagasamtaka sem láta sig málið varða og samstarfi þeirra við stjórnvöld. Þar mætti nefna að kynningarátak væri að fara í gang meðal heilbrigðisstarfsfólks, staðla ætti upplýsingar um kynbundið ofbeldi og setja vinnureglur innan heilbrigðisstofnana. Dómsmálaráðuneytið hefur kynnt frumvarp til laga um heimilisofbeldi, kynferðisbrotakafli hegningarlaganna er til endurskoðunar og sömuleiðis lög um meðferð opinberra mála. Þá hafa einnig verið settar verklagsreglur fyrir lögregluna varðandi heimilisofbeldi og markviss skráning tilvika hafin. Nú þegar hafa verið sett lög sem banna limlestingar á kynfærum kvenna. Handbækur eru í smíðum fyrir fagfólk um viðbrögð við ofbeldi og meðferðarúrræði fyrir menn sem beita maka ofbeldi verður staðreynd á nýju ári.

Mikil umræða hefur átt sér stað í samfélaginu samhliða breytingum á lagaumhverfi og vinnureglum og hefur umræða um kynbundið ofbeldi opnast svo um munar. Margt er enn ógert en ljóst er að stjórnmálaflokkarnir munu allir beita sér í þessum málaflokki. Sérstaklega var rætt um samhæfingu aðgerða á sveitastjórnarstiginu þar sem vinna við forvarnir og viðbrögð er mikilvæg í nærþjónustu allri.

Félagasamtökin sem stóðu að átakinu ítreka nauðsyn þess að fjármagn fylgi fyrirheitum og munu fylgjast vel með áherslum á vettvangi stjórnmálanna. 

Framsögur á fundinum héldu: Drífa Snædal, framkvæmdastýra Samtaka um kvennaathvarf fyrir hönd aðstandenda átaksins, Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, fyrir hönd Sjálfstæðisflokksins, Steingrímur J. Sigfússon, fyrir hönd Vinstrihreyfingarinnar – græns framboðs, Sigurjón Örn Þórsson, aðstoðarmaður félagsmálaráðherra, Guðjón A. Kristjánsson, fyrir hönd Frjálslynda flokksins og Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, fyrir hönd Samfylkingarinnar. Í pallborði eftir framsögur tók Ásta Möller sæti Þorgerðar Katrínar og Siv Friðleifsdóttir sat fyrir hönd Framsóknarflokksins.

Til baka, Senda grein, Prenta greinina

 

 

Leita á vefnum


 

Póstlisti

Skráning á póstlista.

Vinsamlegast athugaðu að netfangið sé rétt slegið inn.


 


þetta vefsvæði Byggir á Eplica

 

efnisyfirlit síðunnar


þetta vefsvæði byggir á eplica. eplica heimasiðugerðheimasiðugerð - nánari upplýsingar á heimasíðu eplica.