Beina leið á efnisyfirlit þessarar síðu

Fréttir

16 daga átaki hleypt af stokkunum með morgunverðafundi UNIFEM

23.11.2005

Föstudaginn 25. nóvember heldur UNIFEM á Íslandi árlegan morgunverðarfund félagsins á Hótel Loftleiðum kl. 8:30-10:00.

Fundurinn er haldinn á alþjóðlegum baráttudegi gegn ofbeldi gegn konum og markar upphafið að 16 daga átaki gegn kynbundnu ofbeldi sem nú er haldið hér á landi í annað sinn. Á þriðja tug samtaka og stofnana standa sameiginlega að átakinu dagana 25. nóvember til 10. desember og eru þar með þátttakendur í átaki 1700 samtaka í 130 löndum. UNIFEM á Íslandi og Samtök um kvennaathvarf hafa forgöngu um verkefnið í ár. Upplýsingar um dagskrá og aðstandendur átaksins er að finna á vef UNIFEM á Íslandi.

Yfirskrift átaksins árið 2005 er Heilsa kvenna, heilsa mannkyns: Stöðvum ofbeldið.

Á morgunverðarfundinum mun Edda Jónsdóttir flytja ávarp fyrir hönd stjórnar UNIFEM á Íslandi. Þá mun utanríkisráðherra Geir H. Haarde ávarpa fundinn og flutt verða minningarorð um Erlu Halldórsdóttur, stofnanda Candle Light Foundation í Úganda.

Sérstakur heiðursgestur fundarins verður Nadya Engler frá Bisan rannsóknar- og þróunarsetrinu í Palestínu (http://www.bisan.org/). Setrið var einn af styrkþegum Ofbeldissjóðs UNIFEM á síðasta ári en styrkinn hlaut Bisan til að vinna að eflingu og samhæfingu úrræða heilbrigðiskerfisins í Palestínu til að taka á heimilisofbeldi og öðrum myndum kynbundins ofbeldis. Með verkefninu er komið á fót samræðum milli ólíkra aðila í leit að lausnum, ekki einungis milli heilbrigðisstarfsfólks heldur einnig trúarleiðtoga, kennara, félagsráðgjafa og kvennasamtaka. Um er að ræða framsækið verkefni sem Íslendingar geta vafalaust lært mikið af. Á morgunverðarfundinum mun Nadya Engler fjalla um verkefnið og árangur þess og gefst tækifæri til umræðna í kjölfar erindisins.

UNIFEM á Íslandi hefur um árabil stutt Ofbeldissjóð UNIFEM en þessi einstaki styrktarsjóður fjármagnar verkefni um allan heim. Verkefnin hafa það að markmiði að vekja athygli á og útrýma ofbeldi gegn konum í hvaða mynd sem það birtist. Í ár veittu íslensk stjórnvöld 5,7 milljónum króna í Ofbeldissjóðinn og margfölduðu þar með framlag Íslands til sjóðsins. Þrátt fyrir að heildarframlag úr sjóðnum hafi hækkað um 80% milli ára var einungis hægt að styrkja 24 verkefni af alls 1.059 umsóknum sem bárust til Ofbeldissjóðsins árið 2005.

UNIFEM á Íslandi stendur jafnframt fyrir hádegisfundi í Háskólanum á Akureyri sama dag þar sem 16 daga átakið, Ofbeldissjóðurinn og verkefni UNIFEM í Palestínu verða til umræðu. Fundurinn hefst kl. 12:10 og fer fram í stofu L101 í Sólborg v/Norðurslóð.

Til baka, Senda grein, Prenta greinina

 

 

Leita á vefnum


 

Póstlisti

Skráning á póstlista.

Vinsamlegast athugaðu að netfangið sé rétt slegið inn.


 


þetta vefsvæði Byggir á Eplica

 

efnisyfirlit síðunnar


þetta vefsvæði byggir á eplica. eplica heimasiðugerðheimasiðugerð - nánari upplýsingar á heimasíðu eplica.