Fréttir
Searching for Angela sýnd í kvöld
Fréttatilkynning frá Blátt áfram:
Angela Shelton verður viðstödd sýningu á mynd sinni Searching for Angela Shelton sem sýnd verður á kvikmyndahátíðinni í kvöld sem nú stendur yfir. Sjá www.icelandfilmfestival.is Myndin verður sýnd í Regnboganum dagana 8 nóv ? 14 nóv.
Við hjá Blátt áfram erum mjög ánægðar með að hafa staðið að komu Angelu Shelton til Íslands nú í annað sinn. Angela kom til Íslands á vegum V-dagssamtakanna fyrir nokkrum árum síðan. Angela er í raun hetjan mín þar sem ég man enn þegar ég sá viðtal við hana hjá Oprah Winfrey fyrir rúmlega tveimur árum þegar ég var búsett í bandaríkjunum. Hún hafði mikil áhrif á mig og ýtti undir það að ég fluttist til íslands til að miðla af minni reynslu. Angela mun einnig heimsækja Háskóla Íslands og Stígamót á meðan á heimsókn hennar stendur. Við hvetjum sem flesta til að koma og sjá þessa merkilegu mynd og fræðast um málaflokkinn á www.blattafram.is
Angela Shelton er frábær talsmaður kvenna sem hafa lifað að kynferðisofbeldi. Hún hefur sýnt okkur að það er okkar að breyta hvernig samfélagið horfir á kynferðisofbeldi og með því að rjúfa þögnina hvetjum við aðra að gera slíkt hið sama. Angela hefur komið af stað vitundar vakningu, ferðast um öll bandaríkin, heldur fyrirlestra og fræðir fólk um kynferðisofbeldi. Myndin hennar hefur unnið til margra verðlauna á kvikmyndahátíðum.
Nánari upplýsingar um heimsóknir hennar er að finna á
