Fréttir
Lyf og heilsa leggur kvennabaráttunni lið með milljón króna framlagi til Kvennaathvarfsins
Lyf og heilsa hefur ákveðið að sýna í verki þann stuðning sem ríkir innan fyrirtækisins í baráttunni fyrir jöfnum réttindum kynjanna með því að styðja Kvennaathvarfið um eina milljón króna. Lyf og heilsa skorar jafnframt á önnur fyrirtæki að fylgja í kjölfarið og styðja félög sem vinna að jafnréttismálum. Samtök um kvennaathvarf þakka kærlega þennan rausnarlega stuðning og sendir bestu kveðjur til starfsfólks Lyf og heilsu. Styrkurinn verður notaður í uppbyggingu sjálfshjálparhópa og innra starfs og rennur því óskiptur til aðstoðar við konur og börn sem til Kvennaathvarfsins sækja.
Hrund Rudolfsdóttir, framkvæmdastjóri Lyf og heilsu segir að starfsfólk Lyf og heilsu af báðum kynjum telji mikilvægt að leggja lóð á vogarskálarnar í jafnréttisbaráttunni. „Vegna lögbundinnar skyldu lyfjaverslana til að veita þjónustu sína gátu hvorki konur né karlar lagt niður störf á kvennafrídaginn, 24. október. Rík ábyrgð hvílir á lyfjaverslunum um opnunartíma og að þær hafi á öllum stundum á að skipa lyfjafræðingum og sérþjálfuðu starfsfólki.“ Innan vébanda fyrirtækisins ríki sátt um að mikilvægast sé fyrir starfsfólkið og fyrirtækið að sinna lögbundinni skyldu sinni, en sýna jafnframt öfluga samstöðu í baráttu kvenna fyrir jafnrétti.
Hrund segir þó sárt að hafa ekki getað tekið þátt þann 24. október, en það einnig sé mikilvægt að horfa fram á veginn og gera sitt til að halda þeim mikla krafti lifandi sem þarna var leystur úr læðingi til að breyta hlutum til batnaðar. Margt smátt gerir eitt stórt og þessar milljón krónur eru okkar framlag til þess. Þá viljum við hvetja önnur fyrirtæki til að velja sér einhvert af þeim fjölmörgu félögum sem starfa að jafnréttismálefnum og veita einu þeirra eða fleiri myndarlegt framlag."
Hjá Lyf og heilsu starfa 250 starfsmenn, þar af 33 karlar og 117 konur. Í stjórnendahópi Lyf og heilsu eru 36 manns, þar af 21 kona og 15 karlar.
