Beina leið á efnisyfirlit þessarar síðu

Fréttir

Skipta myndir máli?

5.10.2005

Í dag, miðvikudaginn 5. október, efnir UNIFEM á Íslandi í samvinnu við Alþjóðlega kvikmyndahátíð í Reykjavík til pallborðsumræðna um mikilvægi kvikmynda til eflingar mannréttindum.

Kvikmyndir eru einstakur miðill sem ná á undraverðan hátt að tjá sammannlega reynslu. Í mannréttindaflokki hátíðarinnar eru verðlaunamyndir sem sýna sjónarhorn fólks sem á að öllu jöfnu ekki opinbera rödd. Markmið pallborðsumræðanna er að ræða hvort og þá hvernig kvikmyndir og kvikmyndagerð geta haft áhrif á eflingu mannréttinda í heiminum.

Í pallborðinu verða:

-Ali Samadi, leikstjóri Lost Children;

-Birna Þórarinsdóttir, framkvæmdastýra UNIFEM á Íslandi;

-Elle Flanders, leikstjóri Zero Degrees of Separation;

-Heiða Jóhannsdóttir, frá Kvikmyndafræðideild HÍ;

-dr. Samba Gadjigo, aðstandandi Mooladé;

-Stefán Ingi Stefánsson, framkvæmdastjóri UNICEF á Íslandi.

Umræðustjóri verður Þórunn Sveinbjarnardóttir, þingmaður.

Fundurinn fer fram í Norræna húsinu og hefst kl. 17:00. Umræðurnar fara fram á ensku.

Til baka, Senda grein, Prenta greinina

 

 

Leita á vefnum


 

Póstlisti

Skráning á póstlista.

Vinsamlegast athugaðu að netfangið sé rétt slegið inn.


 


þetta vefsvæði Byggir á Eplica

 

efnisyfirlit síðunnar


þetta vefsvæði byggir á eplica. eplica heimasiðugerðheimasiðugerð - nánari upplýsingar á heimasíðu eplica.