Fréttir
Útvarpsleikhúsið flytur leikrit um konur, eftir konur, fyrir konur ...og karla!
Á ýmsum tímum og jafnvel enn þann dag í dag hefur sumum, þó einkum konum, þótt það undarleg ósköp að vera kona. Þann 24. október 2005 eru liðin 30 ár frá því að konur á Íslandi létu til sín taka með eftirminnilegum hætti og héldu frídag kvenna hátíðlegan með pompi og prakt.
Útvarpsleikhúsið á Rás 1 hefur af þessu tilefni undirbúið spennandi syrpu útvarpsleikrita um hina kvenlegu sýn og afstöðu til kvenna. Á fimmtudagskvöldum kl. 22.15 í október og nóvember eru flutt leikrit um konur og eftir konur. Sífellt hafa einhverjir spekingar, oftast karlkyns, verið að segja konum til, segja þeim hvernig þær eru, hvernig þær eigi að vera, hvað þær geti og geti ekki og hverjar skyldur þeirra eru. Í sumum leikritanna koma karlar við sögu en sýnin er kvenleg. Flutt eru verk eftir fimm íslenska höfunda og tvo erlenda.
Fimmtudagskvöld, 6. október - kl. 22.15
Margar konur eftir Kristínu Ómarsdóttur í leikstjórn Ásdísar Þórhallsdóttur.
Ótrúlega skemmtilegt verk eftir einn af bestu höfundum samtímans. Undir glettnislegu yfirborði er sterk undiralda af hárbeittu háði.
Fimmtudagskvöld, 13. október – kl. 22.15
Súkkulaði handa Silju eftir Nínu Björk Árnadóttur í leikstjórn Maríu Kristjánsdóttur.
Þetta áleitna verk Nínu um lífsbaráttu einstæðrar móður og samskipti hennar við dóttur sína er fyrir löngu orðið sígilt í íslenskum leikbókmenntum.
Fimmtudagskvöld, 20. október – kl. 22.15
Þögn á fimm vegu eftir Shelgah Stephenson í þýðingu og leikstjórn Karls Ágústs Úlfssonar. Sterkt, sannsögulegt verk eftir einn af athyglisverðustu bresku höfundunum í dag. Verkið hlaut verðlaun breskra höfunda sem besta útvarpsleikritið árið 1996 og hin virtu Sony-verðlaun sem besta frumsamda verkið árið 1997.
Fimmtudagskvöld, 27. október (og aftur 3. nóvember) – kl. 22.15
Hvað er í blýhólknum eftir Svövu Jakobsdóttur í útvarpsleikgerð og leikstjórn Maríu Kristjánsdóttur. Svava Jakobsdóttir samdi alls sjö leikrit en eflaust er leikrit kvöldsins eitt merkasta leikverk hennar, enda vakti það óvenju mikla athygli er leikhópurinn Gríma frumsýndi það í nóvember árið 1971.
Fimmtudagskvöld, 3. nóvember – kl. 22.15
Hvað er í blýhólknum, endurflutt. Sjá fimmtudag, 27. október.
Fimmtudagskvöld, 10. nóvember – kl. 22.15
Tvö spennandi verk: Nóbelsmanía og vettlingar eftir Elísabetu Jökulsdóttur í leikstjórn Kristínar Eysteinsdóttur og Kista töframannsins eftir Þórdísi Elvu Þorsteinsdóttur Bachmann í leikstjórn Steinunnar Knútsdóttur. Leiftrandi skemmtilegur texti Elísabetar nýtur sín óvíða betur en í útvarpi eins og nýr einleikur hennar ber glöggt vitni og Þórdís, sem er eitt af yngstu leikskáldum þjóðarinnar sýnir hér á sér nýja og spennandi hlið.
Fimmtudagskvöld, 17. nóvember – kl. 22.15
Nóra eftir að hún skildi við eiginmann sinn eftir Elfriede Jelenik í þýðingu Elísabetar Bjargar Þorsteinsdóttur og Jórunnar Sigurðardóttur og leikstjórn Sigrúnar Valbergsdóttur.
Frumflutt verður leikrit austurrísku skáldkonunnar og Nóbelshöfundarins Elfriede Jelenik. Um er að ræða eitt fyrsta leikverk hennar, sem var frumflutt í hljóðvarpi árið 1979. Jelenik ógnar og ögrar og mörg verka hennar einkennast af hörkulegri gagnrýni á karllægan heim. Hún bendir á samfélagslega og efnalega niðurlægingu kvenna og ekki síður á það hvernig karlar hafa niðurlægt konur innan veggja heimilisins.
Fimmtudagskvöld, 24. nóvember – kl. 22.15
Nóra eftir að hún skildi við eiginmann sinn, endurflutt. Sjá 17. nóvember.
