Fréttir
Skeggrætt um jafnrétti
Hádegisverðarfundur Kvenréttindafélags Íslands, haldinn á Grand hótel, fundarsal Háteigi (4. hæð), fimmtudaginn 29. september n.k. kl. 12:00 ? 13:00. Margrét Sverrisdóttir varaformaður KRFÍ setur fundinn.
Viðfangsefni fundarins er misjöfn staða kynjanna í atvinnulífinu og í fyrsta sinn í sögu Kvenréttindafélags Íslands þá eru það eingöngu karlar sem verða með framsögu um jafnréttismál. Fjallað verður um kynjahluföll í stjórnum fyrirtækja, í stjórnunarstöðum banka og sparisjóða og atvinnurekendur í landbúnaði, þar sem konur eru ávallt miklu færri en karlar. Spurningin er hverjar ástæðurnar séu og þá hvernig breyta megi þessari stöðu. Er það verkefni atvinnurekenda, ríkisins eða bara einstaklinganna sjálfra að fjölga konum í þessum stöðum?
Til þess að ræða þessi mál munu mæta;
Guðjón Rúnarsson framkvæmdastjóri Samtaka fjármálafyrirtækja ræðir um stöðu kvenna í fjármálageiranum.
Jens Andrésson formaður Starfsmannafélags ríkisstofnana, stéttarfélags í almannaþjónustu fjallar um hvort eitthvað sé í launasetningu samtakanna sem býr til kynbundinn launamun.
Haraldur Benediktsson formaður Bændasamtakanna ræðir um konur sem atvinnurekendur í landbúnaði.
Fundarstjóri Egill Helgason fjölmiðlamaður
