Fréttir
Hvað þarf til? - Hádegissmellir hjá Stígamótum
Stígamót standa fyrir opnum fræðslu- og umræðufundum annan hvern fimmtudag í vetur. Lykilfólk úr fræðunum og þeim starfsstéttum sem koma að málaflokknum munu kynna áhugaverð efni. Haldnar verða stuttar kynningar á viðfangsefnunum með umræðum á eftir. Boðið verður upp á léttan hádegisverð á lágu verði.
Markmið þessara fræðslu- og umræðufunda eru:
- Fræðsla og vitundarvakning
- Aukinn og auðveldari aðgangur að Stígamótum fyrir alla
Umræðufundirnir verða haldnir annan hvern fimmtudag frá kl.12:00 ? 13:00 í húsi Stígamóta að Hverfisgötu 115.
DAGSKRÁ
Fimmtudaginn 29.september mun fyrirlesari verða Þorbjörg Gunnlaugsdóttir lögfræðingur. Hún mun fjalla um “Nauðgun frá sjónarhorni kvennréttar”.
Fimmtudaginn 13.október mun Ragnheiður Harðardóttir vararíkissaksóknari koma og kynna okkur ferlið sem embættið kemur að í þessum málaflokki.
Fimmtudaginn 27.október verður fyrirlesari Hulda Elsa Björgvinsdóttir lögfræðingur sem starfar hjá Lögreglunni í Reykjavík. Hún mun leiða okkur í gegnum það ferli sem fer í gang þegar verknaður er kærður og leiðina til dómstóla.
Fimmtudaginn 10.nóvember munu fulltrúar stjórnmálaflokka koma og segja okkur frá stefna þeirra í ofbeldismálum, bæði í sveitastjórnum og landsvísu. Nánar auglýst síðar.
Hádegissmellirnir eru í umsjá félagsráðgjafarnemanna Jónu Margrétar Ólafsdóttur og Signýjar Valdimarsdóttur undir handleiðslu Guðrúnar Jónsdóttur.
