Beina leið á efnisyfirlit þessarar síðu

Fréttir

Andafjör - Blátt áfram

22.8.2005

Andafjör verður haldið nú í annað sinn í Elliðadal en leikurinn er gerður til að vekja athygli á mikilvægi forvarnarstarfs til að koma í veg fyrir ofbeldi gegn börnum. Verkefnið Blátt áfram stendur fyrir andafjörinu sem fram fer þann 3. september næstkomandi.

Hægt er að nálgast litlar plastendur til sölu í Body Shop búðunum í Smáralind, Kringlunni og á Akureyri. Pizza Hut veitingastöðunum, verslunum Olís á Reykjavíkursvæðinu og hjá Ungmennafélagi Íslands í Fellsmúla 26. Endurnar eru seldar á 1.000 krónur stykkið. Á degi andafjörsins, 3. september klukkan 12:30, mæta öll til leiks í Elliðadalnum með endurnar sínar og númeraða happdrættismiða sem fylgja þeim. Endurnar eru látnar synda niður Elliðaárnar og að markinu beint á móti Pizza Hut á Sprengisandi.

Fjöldi vinninga eru í boði fyrir sigursæla eigendur andanna. Meðal fyrirtækja sem veita vinninga eru: Hreyfing, Baðhúsið, Nýja skátabúðin, Fjölskyldu- og húsdýragarðurinn, Íshestar, Golfklúbbur Reykjavíkur, Íslenskir fjallaleiðsögumenn, Pfaff Borgarljós, Baby Sam, Óliver, Bláa lónið og Kaffitár.

Nánari upplýsingar má nálgast á www.blattafram.is og í síma 893 2929.

Til baka, Senda grein, Prenta greinina

 

 

Leita á vefnum


 

Póstlisti

Skráning á póstlista.

Vinsamlegast athugaðu að netfangið sé rétt slegið inn.


 


þetta vefsvæði Byggir á Eplica

 

efnisyfirlit síðunnar


þetta vefsvæði byggir á eplica. eplica heimasiðugerðheimasiðugerð - nánari upplýsingar á heimasíðu eplica.