Kynbundið ofbeldi ekki umborið í Svíþjóð
10.8.2005
Svíþjóð hefur löngum þótt vera það land sem stendur sig best í jafnréttismálum. Þó hefur ekki náðst betri árangur en svo að tilefni þykir til að stofna sænskan kvennalista að íslenskri fyrirmynd. Fyrr í mánuðinum skilaði opinber nefnd skýrslu til dómsmálaráðherra Svíþjóðar um stöðu jafnréttismála þar sem sérstaklega var fjallað um kynbundið ofbeldi. Í skýrslunni kemur fram að víða er pottur brotinn og í kjölfarið hefur verið ákveðið að koma á fót sérstakri stofnun sem fjallar um ofbeldi karla gegn konum og hefur það hlutverk að annast gagnaöflun, greiningu, samhæfingu og stuðning til þeirra sem fjalla um málaflokkinn. Sömuleiðis á stofnunin að sinna rannsóknum og veita styrki, en stofnunin tekur til starfa í síðasta lagi 1. júní 2006.
Þá er lögð áhersla á að efla forvarnir og að kynbundið ofbeldi verði aldrei umborið. Sett er samhengi á milli klámvæðingar, vændis og annars kynbundins ofbeldis, en það hefur verið styrkur Svía að sjá ofbeldi í samhengi við samfélagsleg gildi. Lagaleg skylda hvílir á sveitafélögum að styðja forvarnir og úrræði fyrir konur sem beittar eru ofbeldi, en rík áhersla er lögð á að þessi mál vinnist á sveitastjórnarstigi.
Í kjölfar skýrslunnar tilkynnti Jens Orback, dómsmálaráðherra, að meðferð fyrir ofbeldismenn yrði efld og fjámögnuð af ríkinu en meðferðin verður rekin í tengslum við hina fyrirhuguðu stofnun. Nálgast má skýrsluna hér.
Til baka,
Senda grein,
Prenta greinina