Fréttir
Konur í hnattrænum heimi - ráðstefna
Pekingráðstefnan telst til helstu tímamóta í alþjóðlegu jafnréttisstarfi síðastliðna áratugi en henni lauk með samþykkt pólitískrar viljayfirlýsingar og framkvæmdaáætlunar í jafnréttismálum. Stefnan sem þá var mótuð byggði á Kvennasáttmálanum (CEDAW) frá 1979 og átti að tryggja framþróun kynjajafnréttis meðal aðildaríkja Sameinuðu þjóðanna. Á ráðstefnunni í október verður rætt um árangur og eftirfylgni Peking ráðstefnunnar og stöðu jafnréttismála í alþjóðlegu samhengi.
Dagskrá ráðstefnunnar verður tvískipt. Fyrir hádegi verða inngangserindi aðalfyrirlesara og í kjölfar þeirra pallborðsumræður með þátttöku íslenskra og erlendra sérfræðinga og stjórnmálamanna. Eftir hádegi verður ráðstefnunni skipt upp í þrjár málstofur sem skipulagðar eru með hliðsjón af áherslum Pekingáætlunarinnar. Meðal fyrirlesara eru Anne Phillips og Mieke Verloo, prófessorar í stjórnmálafræði og Rosa Logar baráttukona og sérfræðingur í aðgerðum gegn ofbeldi gegn konum.
MÁLSTOFUR:
* Konur, ofbeldi og vopnuð átök
* Konur og lýðræði
* Efnahagsleg og félagsleg réttindi kvenna.
Í hverri málstofu verða þrjár framsögur sem fylgt verður eftir með almennum umræðum.
Hér með er óskað eftir framlagi innlendra sérfræðinga fyrir málstofurnar. Viðkomandi þarf að hafa haldgóða þekkingu á stöðu málaflokksins hér heima og erlendis og hafa stundað rannsóknir eða unnið að málaflokknum í nokkurn tíma.
Tillögum að erindum má senda á netföngin unifem@unifem.is og rikk@hi.is.
Skilafrestur á tillögum er til 15. ágúst. Frekari upplýsingar veita Birna Þórarinsdóttir, framkvæmdastýra UNIFEM á Íslandi í síma 552 6200 og Kristín Ástgeirsdóttir, sérfræðingur hjá RIKK í síma 525 4595.
