Beina leið á efnisyfirlit þessarar síðu

Fréttir

Amnesty International fordæmir sprengjuárásirnar í Lundúnum - Athöfn á Lækjartorgi í dag kl. 17.00

7.7.2005

Eftirfarandi er fréttatilkynning Íslandsdeild Amnesty International: Amnesty International fordæmir sprengjuárásirnar í Lundúnum sem hafa kostað almenna borgara lífið og sært fjölda fólks alvarlega. Heimildir herma að sprengjur hafi sprungið á sex neðanjarðar-lestarstöðvum og einni strætisvagnastöð.

Árásir á almenna borgara eru aldrei réttlætanlegar. Árásin sem beindist að almennum borgurum á leið til vinnu sýnir algjört virðingarleysi gagnvart mannhelgi. Þeir sem ábyrgð bera á árásunum verða að svara til saka í réttarhöldum sem samræmast alþjóðlegum viðmiðum.

Árásin ber upp á sama dag og minningarathöfn um Peter Benenson stofnanda Amnesty International fer fram í St.Martins-in the Fields kirkjunni í Lundúnum. Ákall hans um samstöðu með öllum þeim sem sæta mannréttindabrotum er brýnt í dag sem alla daga.

Íslandsdeild Amnesty International hvetur almenning til að koma á Lækjartorg kl. 17.00 í dag til að sýna samstöðu með fórnarlömbum árásanna í London, standa vörð um mannréttindi, minnast Peter Benenson og heiðra þær hugsjónir sem hann barðist fyrir.

Fólk er hvatt til að taka með sér kerti og tendra þau.

Til baka, Senda grein, Prenta greinina

 

 

Leita á vefnum


 

Póstlisti

Skráning á póstlista.

Vinsamlegast athugaðu að netfangið sé rétt slegið inn.


 


þetta vefsvæði Byggir á Eplica

 

efnisyfirlit síðunnar


þetta vefsvæði byggir á eplica. eplica heimasiðugerðheimasiðugerð - nánari upplýsingar á heimasíðu eplica.