Fréttir
Kvennasamtök mótmæla viðskiptum ríkisvaldsins á klámi
Eftirfarandi mótmæli frá kvennasamtökum hafa verið send alþingisfulltrúum, fjölmiðlum og forsvarsmönnum Símans, Skjás 1 og 365 Ljósvakamiðla:
Ríkisfyrirtækið Síminn hefur um nokkurt skeið dreift og selt aðgang að stöðinni Adult Channel í gegnum breiðbandið. Nýverið fjölluðu fjölmiðlar um að Skjár 1, sem er að hluta til í eigu sama ríkisfyrirtækis, hafi gert samning við sjónvarpsstöðina Playboy TV um dreifingu á klámefni.
Fyrirtæki í einkaeigu stunda einnig dreifingu og sölu klámefnis. Má þar nefna 365 ljósvakamiðla sem selur klámstöðina Private Blue í gegnum Digital Ísland.
Nokkrar tilraunir voru gerðar af hálfu einstaklinga til að kæra dreifingu og sölu kláms á síðasta ári. Í öllum tilfellum ákvað saksóknari að ákæra ekki. Það er því svo að ákvæðum hegningarlaga um klám er ekki fylgt eftir af neinum þeim aðilum sem eiga að sjá um að lögum sé framfylgt.
Ísland er aðili að CEDAW samningi Sameinuðu þjóðanna og þar er kveðið á um afnám allrar mismununar gegn konum. Þar segir í 3. gr.:
Aðildarríkin skulu gera allar viðeigandi ráðstafanir á öllum sviðum, sérstaklega á sviði stjórnmála, félagsmála, efnahags og menningar, þ.á.m. með lagasetningu til þess að ábyrgjast fulla þróun og framfarir til handa konum í þeim tilgangi að tryggja að þær geti á grundvelli jafnréttis við karla framfylgt og notið mannréttinda og grundvallarfrelsis.
Þann 19. júní síðastliðinn, á baráttudegi íslenskra kvenna, afhentu níu samtök Árna Magnússyni jafnréttismálaráðherra kröfugerð. Þar kom fram sá vilji kvennahreyfingarinnar að lög gegn klámi yrðu virt.
Undirrituð samtök skora á stjórnvöld að sinna lögbundinni skyldu og sjá til þess að lögum sé framfylgt. Ennfremur mótmæla samtökin því harðlega að fyrirtæki í eigu ríkisins skuli stunda starfssemi sem brýtur í bága við landslög og vinnur gegn jafnrétti kynjanna.
210. gr. hegningarlaga er svohljóðandi:
Ef klám birtist á prenti, skal sá, sem ábyrgð ber á birtingu þess eftir prentlögum, sæta sektum eða fanglesi allt að 6 mánuðum.
Sömu refsingu varðar það að búa til eða flytja inn í útbreiðsluskyni, selja, útbýta eða dreifa á annan hátt út klámritum, klámmyndum eða öðrum slíkum hlutum, eða hafa þá opinberlega til sýnis, svo og að efna til opinbers fyrlrlestrar, eða leiks, sem er ósiðlegur á sama hátt. Þegar slíkt efni sýnir börn á kynferðislegan eða klámfenginn hátt getur refsing þó orðið fangelsi allt að 2 árum.
Það varðar ennfremur sömu refsingu, að láta af hendi við unglinga, yngri en 18 ára, klámrit, klámmyndir eða aðra slíka hluti.
Hver sem flytur inn eða hefur í vörslu sinni ljósmyndir, kvikmyndir eða sambærilega hltui sem sýna börn á kynferðislegan eða klámfenginn hátt skal sæta sektum eða fanglesi allt að 2 árum ef brot er stórfellt. Sömu refsingu varðar að flytja inn eða hafa í vörslu sinni ljósmyndir, kvikmyndir eða sambærilega hluti sem sýna börn í kynferðisathöfnum með dýrum eða nota hluti á klámfenginn hátt.
Virðingarfyllst,
Katrín Anna Guðmundsdóttir, f.h. Femínistafélags Íslands
Helga Guðmundsdóttir, f.h. Kvenfélagasambands Íslands
Auður Eir Vilhjálmsdóttir, f.h. Kvennakirkjunnar
Margrét Steinarsdóttir, f.h. Kvennaráðgjafarinnar
Þorbjörg Inga Jónsdóttir, f.h. Kvenréttindafélags Íslands
Guðrún Elín Jónsdóttir, f.h. Samtaka um kvennaathvarf
Guðrún Jónsdóttir, f.h. Stígamóta
Rósa Erlingsdóttir, f.h. UNIFEM á Íslandi
