Beina leið á efnisyfirlit þessarar síðu

Fréttir

Opið hús hjá Blátt áfram

29.6.2005

Laugardaginn 2 júlí 2005, mun Blátt áfram verkefni UMFI gegn kynferðisofbeldi á Íslandi standa fyrir opnu húsi í Fellsmúla 26, 108 Reykjavík klukkan 14:00. Tilgangurinn er að bjóða þeim fjölmörgu einstaklingum sem hafa haft samband við okkur síðustu mánuði að koma saman. Þar eru bæði einstaklingar sem hafa lifað af ofbeldi og þau sem vilja leggja hönd á plóg við að hjálpa okkur í baráttunni gegn kynferðisofbeldi á Íslandi.

Við munum kynna stuttlega starf Blátt áfram, hvað er á döfinni í haust og sýna myndina Serching for Angela Shelton. Myndin spannar 60 daga í lífi konu að nafni Angela Shelton, en hún ákvað að reyna að hafa uppá og hitta sem flestar alnöfnur sínar. Hún lagði því uppí ferð um Bandaríkin og tókst að hitta 40 þeirra. Hún komst að þeirri sláandi niður­stöðu að 24 úr þessum hópi hafi verið nauðgað, þær misnotaðar eða misþyrmt. Um leið kemur fram barátta hennar og fjöl­skyldunnar, við að gera upp erfiða reynslu í fortíðinni, en faðir hennar misnotaði hana og systkini í bernsku. Því miður er myndin ekki textuð.

Blátt áfram keypti 10 eintök af myndinni sem við settum saman með dagbók. Eftir sýningu á myndinni í Fellsmúlanum munum við afhenda 10 einstaklingum þessar 10 myndir.  Það er von okkar að myndin verði látin ganga áfram manna/kvenna á milli úti í samfélaginu, þannig að sem flest fái að njóta. Með myndinni fylgir dagbók, sem við biðjum áhorfendur að skrifa nafn sitt í og hugleiðingar sem kvikna þegar horft er á myndina.  Þessum dagbókum verður svo safnað saman hjá Blátt áfram.  Angela Shelton vildi að myndin yrði nýtt á svipaðan hátt til þess að hvetja konur og menn sem lifað hafa af ofbeldi til þess að leita sér hjálpar.  Erum við hjá Blátt áfram í viðræðum við Angelu um að koma til Íslands næsta vor.

Það er von okkar að þessi mynd geti dýpkað þekkingu á að ofbeldi gegn börnum er staðreynd á Íslandi og rannsóknir sýna að 17% íslenskra barna sæta kynferðisofbeldi fyrir 18 ára aldur.  Við vonum að þessi mynd hjálpi fólki að horfast í augu við þá staðreynd, hvort sem er í lífi annarra eða sínu eigin.  

Viljum við hjá Blátt áfram hvetja þau ykkar sem hafið lifað af ofbeldi og ekki tekist á við það eða sagt frá, að setja það sem takmark í lífinu.  Ekki bara til þess að losna undan oki þagnarinnar og sársaukans sem hefur áhrif á alla þætti í lífi manns, heldur líka vegna þess að okkar er valdið að breyta þessum prósentum í samfélaginu með því að rjúfa þögnina!  Við vitum að það er ekki auðvelt en mjög mikilvægt.  Fyrsta skrefið era ð byrja á einum sem þú treystir! Rjúfðu þögnina og gangtu í lið með okkur.  Við tökum ekki ábyrgð á þessu lengur – við getum bara tekið ábyrgð á okkar lífi og líðan í dag.  Við neitum að vera fórnarlömb samfélags þagnar og fordóma.  

Boðið verður upp á léttar veitingar og allir eru velkomnir!

Til baka, Senda grein, Prenta greinina

 

 

Leita á vefnum


 

Póstlisti

Skráning á póstlista.

Vinsamlegast athugaðu að netfangið sé rétt slegið inn.


 


þetta vefsvæði Byggir á Eplica

 

efnisyfirlit síðunnar


þetta vefsvæði byggir á eplica. eplica heimasiðugerðheimasiðugerð - nánari upplýsingar á heimasíðu eplica.