Beina leið á efnisyfirlit þessarar síðu

Fréttir

Kröfugerð 19. júní

19.6.2005

Baráttufundur kvenna á Þingvöllum 19.júní 2005 samþykkti eftirfarandi kröfugerð sem gerð er á grundvelli Pekingáætlunar Sameinuðu þjóðanna.

  • Við viljum búa í samfélagi þar sem konur og karlar taka jafnan þátt í ákvarðanatöku og njóta jafnrar hlutdeildar í valdakerfinu; á þingi, í ríkisstjórn, hjá dómstólum og í sveitarstjórnum.
  • Við viljum að konur og karlar hafi jöfn yfirráð yfir auðlindum.

  • Við viljum að konur búi við efnahagslegt sjálfstæði.

  • Við viljum að vinnuframlag kvenna sé metið til jafns við vinnuframlag karla og að öllum verði gert kleift að sinna starfi og fjölskyldu.

  • Við viljum að konur fái sömu laun og karlar og krefjumst afnáms mismununar við atvinnuráðningar.
  • Við viljum að samþætting jafnréttissjónarmiða verði gerð að opinberu stefnutæki í öllum málaflokkum og krefjumst þess að jafnréttislög séu virt.
  • Við viljum öfluga velferðaþjónustu, virðingu og laun fyrir umönnunarstörf.
  • Við viljum að konur og karlar njóti jafns aðgengis að fjármagni hvort sem er hjá hinu opinbera eða einkafyrirtækjum.
  • Við viljum að íslensk fyrirtæki misnoti ekki ódýrt vinnuafl erlendra kvenna í útrás sinni.
  • Við viljum að konur uppskeri í samræmi við menntun sína.
  • Við viljum að ungt fólk sé frætt um ábyrgt kynlíf byggt á jafnrétti og virðingu.
  • Við viljum að konur njóti líkamlegs sjálfsforræðis.

  • Við viljum öflugt forvarnarstarf til að fækka ótímabærum þungunum og aðgengi til fóstureyðinga fyrir allar konur.

  • Við viljum að litið verði á meðgöngu og barneignir sem eðlilega hringrás lífsins en ekki sem sértækt vandamál kvenna eða sjúkdóm.

  • Við viljum að úrræði fyrir konur sem verða fyrir kynbundnu ofbeldi verði endurreist og efld.
  • Við viljum að samfélagið viðurkenni kynbundið ofbeldi sem verstu birtingarmynd kynjamisréttis og að gripið verði til aðgerða til að vernda líf og heilsu kvenna.
  • Við viljum að konur og börn séu örugg á heimilum sínum og á almannafæri.
  • Við viljum að þögnin um kynbundið ofbeldi verði rofin.
  • Við viljum réttlæti til handa konum á stríðshrjáðum svæðum, að þær fái fulla aðild og þátttöku í friðarumleitunum og uppbyggingu samfélaga í kjölfar átaka.

  • Við viljum að fordómum sé útrýmt með aukinni menntun og fræðslu um jafnréttismál.

  • Við viljum að allar konur hafi aðgang að upplýsingum um réttindi og úrræði þeim til handa.
  • Við viljum að lög gegn klámi verði virt.
  • Við viljum að fjölmiðlarnir okkar hvetji fólk til jafnrar ábyrgðar og dragi upp mynd af jafnrétti og virðingu milli kynja; niðurlægjandi staðalímyndir og ofbeldi eiga þar ekki heima.
  • Við viljum að menntakerfið stuðli að bættri sjálfsmynd stúlkna og efli jafnréttismiðaða kennslu.
  • Við viljum að samfélagið virði rétt kvenna og stúlkubarna til lífs án valdbeitingar og kynferðislegar misnotkunar.
  • Við viljum að mannréttindi kvenna séu virt.
  • Við krefjumst jafnréttis kvenna og karla í reynd.

Til baka, Senda grein, Prenta greinina

 

 

Leita á vefnum


 

Póstlisti

Skráning á póstlista.

Vinsamlegast athugaðu að netfangið sé rétt slegið inn.


 


þetta vefsvæði Byggir á Eplica

 

efnisyfirlit síðunnar


þetta vefsvæði byggir á eplica. eplica heimasiðugerðheimasiðugerð - nánari upplýsingar á heimasíðu eplica.