Fréttir
Þingvallarfundur kvenna 19. júní
KOSNINGARÉTTUR KVENNA Í 90 ÁR 1915-2005.
Fjöldi kvenna hefur nú sameinast um undirbúning viðburða til að minnast tímamóta í sögu íslenskra kvenna á afmælisárinu 2005. Hinn 19. júní næstkomandi eru 90 ár síðan íslenskar konur fengu kosningarétt og 24. október verða 30 ár liðin frá kvennafrídeginum sem vakti heimsathygli. Þá eru 25 ár síðan Vigdís Finnbogadóttir varð forseti og tíu ár frá því að aðgerðaáætlun Sameinuðu þjóðanna í jafnréttismálum var samþykkt í Peking. Nefndin vill nýta þetta ár til þess að brýna íslenskar konur til samstöðu og til að vinna nýja áfangasigra í átt að raunverulegu jafnrétti.
Afmælisnefndin boðar til Þingvallarfundar kvenna sunnudaginn 19. júní. Dagskráin hefst klukkan 13:00 með lúðrablæstri og söng Kvennakórs Reykjavíkur við Hakið. Gengið verður um Almannagjá en á vegi göngunnar verða listamenn sem minnast sögunnar og atburðanna við Drekkingarhyl. Um klukkan 14:30 endar gangan á Efrivöllum þar sem við tekur baráttuhátíð en hún endar með samþykkt gerðar Þingvallarfundar sem afhent verður stjórnvöldum. Kvenfélagssamband Suðurlands sér um þjóðlegar veitingar og boðið verður upp á rútuferðir til og frá höfuðborgarsvæðinu á afar hagstæðum kjörum.
Vinnsla við dagskránna er á lokastigi og verður hún send út á næstu dögum.
Sýnum samstöðu kvenna í verki og skundum allar (öll) á Þingvöll 19. júní.
Femínistafélag Íslands
Kvenfélagasamband Íslands
Kvennakirkjan
Kvenréttindafélag Íslands
Kvennasögusafn Íslands
Rannsóknastofa í kvenna- og kynjafræðum við Háskóla Íslands
Samtök um kvennaathvarf
Stígamót
UNIFEM á Íslandi.
