Beina leið á efnisyfirlit þessarar síðu

Fréttir

Yfirlýsingum dómsmálaráðherra fagnað

27.5.2005

Eftirfarandi er fréttatilkynning frá aðgerðahópi gegn kynbudnu ofbeldi:

Aðgerðahópur gegn kynbundnu ofbeldi fagnar yfirlýsingum dómsmálaráðherra, Björns Bjarnasonar um aðgerðir sem hafnar eru gegn kynbundnu ofbeldi. Á morgunverðafundi með fulltrúum félagasamtaka og stjórnvalda tjáði ráðherra fundargestum að hafin væri vinna við endurskoðun kynferðisbrotakafla almennra hegningarlaga. Í máli hans kom einnig fram að refsiréttanefnd hefur fengið til umfjöllunar fyrirspurn ráðherra um sérstakt refsiákvæði er lýtur að heimilisofbeldi. Þá kom fram að bættar verklagsreglur lögreglu um heimilisofbeldi eru í vinnslu hjá ríkislögreglustjóra.

Í máli ráðuneytisstjóra félagsmálaráðuneytisins, Ragnhildar Arnljótsdóttur, mátti sömuleiðis greina jákvæð viðbrögð við aðgerðaáætluninni. Fulltrúar félagsmála- og heilbrigðisráðuneytisins lögðu áherslu á útvíkkun starfssviðs Neyðarmóttöku vegna nauðgunar í þá átt að hún verði gerð í stakk búin til að taka á móti konum sem beittar hafa verið heimilisofbeldi. Þá var vilji hjá stjórnvöldum til að endurvekja verkefnið Karlar til ábyrgðar sem lýtur að meðferð fyrir ofbeldismenn. Í yfirstandandi fjárlagagerð leggur félagsmálaráðuneytið áherslu á að verkefninu verði tryggt fjármagn.

Á fundinum kom fram mikill skilningur og áhersla á mikilvægi þverfaglegrar samvinnu til að vinna gegn kynbundnu ofbeldi. Nauðsynlegt er að samráð ráðuneyta, sveitastjórna og félagasamtaka sé tryggt við lagabreytingar og félagsleg úrræði. Aðgerðahópurinn lýsir yfir ánægju með jákvæð viðbrögð stjórnvalda og jafnframt eindregnum vilja sínum til áframhaldandi samstarfs.

F.h. aðgerðarhóps:

 Jóhanna K. Eyjólfsdóttir, framkvæmdastjóri Íslandsdeildar Amnesty International, Guðrún D. Guðmundsdóttir, framkvæmdastjóri Mannréttindaskrifstofu Íslands, Drífa Snædal, fræðslu-og framkvæmdastýra Samtaka um kvennaathvarf, Birna Þórarinsdóttir, framkvæmdastýra UNIFEM á Íslandi, Guðrún Jónsdóttir, talskona Stígamóta.

Sjá einnig drög aðgerðahópsins að áætlun gegn kynbundu ofbeldi og fréttatilkynningu frá dómsmálaráðuneytinu.

Til baka, Senda grein, Prenta greinina

 

 

Leita á vefnum


 

Eldri fréttir


Póstlisti

Skráning á póstlista.

Vinsamlegast athugaðu að netfangið sé rétt slegið inn.


 


þetta vefsvæði Byggir á Eplica

 

efnisyfirlit síðunnar


þetta vefsvæði byggir á eplica. eplica heimasiðugerðheimasiðugerð - nánari upplýsingar á heimasíðu eplica.