Morgunfundur um aðgerðir gegn kynbundu ofbeldi 27. maí
20.5.2005
Boðað er til samræðna á milli stjórnvalda og félagasamtaka um aðgerðaáætlun gegn kynbundnu ofbeldi, til hvaða aðgerða þurfi að grípa og hvernig skuli staðið að þeim. Fundurinn er haldinn á Grand hótel, efstu hæð, þann 27. maí milli klukkan 8.30 og 10.00. Aðgangseyrir er 1.300 krónur með morgunverði. Þær tillögur sem Samtök um kvennaathvarf í félagi við fleiri samtök hafa lagt fram um aðgerðaáætlun má nálgast hér.
Í kjölfar 16 daga átaks gegn kynbundnu ofbeldi tók til starfa aðgerðahópur sem hefur lagt fram drög að aðgerðaráætlun og komið henni á framfæri við ráðuneyti dómsmála, félagsmála, menntamála og heilbrigðismála. Þá hefur hópurinn farið á fund flestra ráðherra er málið varðar til að fylgja skjalinu eftir. Fundurinn þann 27. maí hefst með kynningu aðgerðahópsins á tillögum um aðgerðaáætlun gegn kynbundnu ofbeldi en síðan gefst fulltrúum ráðuneytanna tækifæri til að fjalla um það starf sem fram fer í viðkomandi ráðneyti til að vinna gegn kynbundnu ofbeldi. Framsögum verður fylgt eftir með fyrirspurnum úr sal og umræðum.
Til baka,
Senda grein,
Prenta greinina