Beina leið á efnisyfirlit þessarar síðu

Fréttir

21.12.2005 : GLEÐILEG JÓL!

jolaalfurStarfskonur og stjórn Kvennaathvarfsins óska öllum landsmönnum gleðilegra jóla og farsældar á nýju ári. Sérstakar kveðjur fá þær fjölmörgu konur sem leitað hafa til Kvennaathvarfsins á liðnum árum, þeim óskum við gæfu, styrks og velfarnaðar á nýju ári.
 

14.12.2005 : Mannréttindafulltrúi Evrópuráðsins vill efla Neyðarmótttöku á Íslandi

Í júlí síðastliðnum kom Alvaro Gil-Robles, mannréttindafulltrúi Evrópuráðsins, í heimsókn til Íslands í þeim tilgangi að kynna sér stöðu mannréttindamála. Í skýrslunni, sem kom út 14. desember, er sjónum meðal annars beint að úrræðum vegna kynbundins ofbeldis. Sérstaklega er tiltekið í skýrslunni hversu fá ofbeldismál eru kærð og hversu fáir dómar falla í þeim málum sem ákært er í. Þá eru stjórnvöld hvött til að fræða fagfólk sem kemur að ofbeldismálum um afleiðingar þeirra og leiðir til að vinna gegn kynbundnu ofbeldi. nánar
 

12.12.2005 : 16 daga átaki lokið

16 daga átaki gegn kynbundnu ofbeldi lauk þann 10. desember síðastliðinn. Óhætt er að segja að átakið hafi heppnast með miklum ágætum. Fjöldi félagasamtaka tók höndum saman, fjöldi funda voru haldnir, gjörningar, málþing og aðrir viðburðir sömuleiðis, til að vekja athygli á baráttunni gegn kynbundnu ofbeldi. Í lok átaksins var samþykkt áskourn 16 daga átaks 2005.
 

9.12.2005 : Fundur með forsvarsmönnum stjórnmálaflokkanna

Í tilefni 16 daga átaks gegn kynbundnu ofbeldi boðuðu aðstandendur átaksins til samræðna við forsvarsmenn stjórnmálaflokkanna þann 9. desember um aðgerðir til að útrýma kynbundnu ofbeldi. Mikill einhugur var meðal fundarmanna um að aðstæður hefðu nú skapast í þjóðfélaginu til að taka alvarlega á málum er varða kynbundið ofbeldi. Þátttakendum var tíðrætt um tengsl kynbundins ofbeldis við klámvæðinguna og mikilvægi þess að halda á lofti mannhelgi og jafnrétti. Hugmyndir um austurrísku leiðina svokölluðu í heimilisofbeldismálum, þar sem lögreglan fær heimildir til að vísa ofbeldismanni af heimili og setja á tímabundið heimsóknarbann, hlutu jákvæðar viðtökur fundarmanna. nánar
 

6.12.2005 : Áskorun til Alþingis vegna Mannréttindaskrifstofu Íslands

Samtök um kvennaathvarf hvetur Alþingi til að tryggja rekstrargrundvöll Mannréttindaskrifstofu Íslands til frambúðar. Það er nauðsynlegt fyrir lýðræði og mannréttindi að hér á landi starfi óháður greiningar- og eftirlitsaðili á sviði mann-réttindamála. Því hlutverki hefur Mannréttindaskrifstofa Íslands gegnt frá stofnun, 1994.

Til að tryggja trúverðugleika og sjálfstæði Mannréttindaskrifstofu Íslands þarf skrifstofan að fá fast fjármagn af fjárlögum til rekstrar í stað þess, eins og nú er, að þurfa að leita eftir því hjá einstaka ráðuneytum á hverju ári.

Stjórn Samtaka um kvennaathvarf

 

5.12.2005 : Fundur með fulltrúum flokkanna

Í tilefni 16 daga átaks gegn kynbundu ofbeldi verður á föstudaginn kemur haldinn morgunverðarfundur með forsvarsmönnum stjórnmálaflokkanna: Þorgerði Katrínu Gunnarsdóttur, Árna Magnússyni, Steingrími J. Sigfússyni, Ingibjörgu Sólrúnu Gísladóttur og Guðjóni A. Kristjánssyni. Á fundinum gefst tækifæri til að fræðast um stefnu flokkanna hvað varðar baráttuna gegn kynbundnu ofbeldi, sérstaklega með tilliti til komandi sveitastjórnarkosninga. Fundurinn verður haldinn á Grand Hóteli klukkan 8:30-10:00 og er öllum opinn. Aðgangseyrir með morgunmat er 1.300 krónur.
 

5.12.2005 : Plástrum réttarkerfið!

Ljóst er að réttarkerfið, sem á að vernda og koma fram réttlæti, er veikt og nauðsynlegt að það nái bata sem fyrst svo að það þjóni öllum; konum, börnum og körlum. Til að vekja athygli á vanheilsu kerfisins með táknrænum hætti munu samtök og stofnanir, sem standa að 16 daga átakinu, setja plástra á héraðsdóma landsins og bjóða almenningi að taka þátt í gjörningnum. Fólk er hvatt til að mæta við þann héraðsdómstól sem næstur er klukkan 17:00, þriðjudaginn 6. desember og taka þátt í samstilltu átaki til að stuðla í verki að heilbrigðu íslensku réttarkerfi. Sjá nánar fréttatilkynningu.
 

2.12.2005 : Kvöldvaka Kvenréttindafélags Íslands og Kvennasögusafnsins

Þann 5. desember næstkomandi verður haldin kvöldvaka á Hallveigarstöðmu, Túngötu 14. Húsið opnar klukkan átta og formaður KRFÍ, Þorbjörg Inga Jónsdóttir býður gesti velkomna. Ellen Kristjánsdóttir og Eyþór Gunnarsson sjá um tónlistina og fjöldi kvenna minnist frumkvöðla meðal íslenskra kvenna. Kvöldvakan er öllum opin.
 

1.12.2005 : Söðvum barnaklám á netinu - kynning Barnaheilla

Í hádeginu næstkomandi föstudag ( 2. des. kl. 12.00 ? 12. 45) verður þáttur Barnaheilla ? Save the Children á Íslandi í 16 daga átakinu í húsakynnum samtakanna við Suðurlandsbraut 24. (Ath. breytingu frá áður auglýstum tíma!)Þátttakan felst í að kynna ábendingalínu Barnaheilla og verkefnið ,,Stöðvum barnaklám á Netinu!?. Sagt verður meðal annars frá tölulegum upplýsingum, alþjóðasamstarfi okkar og samstarfi við lögreglu og netþjónustuaðila og tekin verða saman helstu lagaákvæði sem í gildi eru um barnaklám í íslenskri löggjöf. Vonast er eftir góðum og skynsamlegum umræðum um þetta viðkvæma málefni í lokin. Með von um að sem flestir sjái sér fært að mæta.

 

28.11.2005 : Frumvarp til laga (heimilisofbeldi)

Dómsmálaráðherra hefur lagt fram frumvarp til laga um breytingar á almennum hegningarlögum er varða heimilisofbeldi. Í frumvarpinu felst að þyngja beri refsingar ef brot er framið gagnvart einvherjum nákomnum. Þá er einnig bætt við grein svohljóðandi: ?Sá sem móðgar eða smánar maka sinn eða fyrrverandi maka, barn sitt eða annan mann sem er nákominn geranda, og verknaður verður talinn fela í sér stórfelldar ærumeiðingar, skal sæta fangelsi allt að tveimur árum?. Sérstaklega er greint frá því að brot gegn þessari grein skuli sæta opinberri ákæru, líkt og hótanir um að fremja refsiverðan verknað. Frumvarpið í heild sinni má nálgast hér.
 

23.11.2005 : Dagskrá 16 daga átaks

Hér á landi er blásið til 16 daga átaks gegn kynbundnu ofbeldi í annað sinn þann 25. nóvember, en það er alþjóðlegur baráttudagur gegn kynbundnu ofbeldi. Átakið stendur til 10. desember, alþjóðlega mannréttindadagsins, og er átakinu ætlað að tengja saman, með táknrænum hætti, kynbundið ofbeldi og mannréttindi. Upplýsingar um viðburði átaksins má nálgast hér. Að átakinu hér landi standa 25 félagasamtök og stofnanir: Alnæmisbörn, Alnæmissamtökin á Íslandi, Amnesty International á Íslandi, Blátt áfram, Bríet ? félag ungra femínista, Femínistafélag Íslands, Konur gegn limlestingu, Kvenfélagasamband Íslands, Kvennahreyfing Öryrkjabandalags Íslands, Kvennaráðgjöfin, Kvenréttindafélag Íslands, Mannréttindaskrifstofa Íslands, Neyðarmóttaka vegna nauðgunar, Rannsóknastofa í kvenna- og kynjafræðum, Rauði Kross Íslands, Samtök kvenna af erlendum uppruna á Íslandi, Samtök um kvennaathvarf, Soroptimistasamband Íslands, Stígamót, Styrkur ? úr hlekkjum til frelsis, UNIFEM á Íslandi, V-dagssamtökin, Zonta á Íslandi, Þjóðkirkjan.

Nánari upplýsingar um átakið má finna á heimasíðu UNIFEM.

 

23.11.2005 : 16 daga átaki hleypt af stokkunum með morgunverðafundi UNIFEM

Föstudaginn 25. nóvember heldur UNIFEM á Íslandi árlegan morgunverðarfund félagsins á Hótel Loftleiðum kl. 8:30-10:00.

Fundurinn er haldinn á alþjóðlegum baráttudegi gegn ofbeldi gegn konum og markar upphafið að 16 daga átaki gegn kynbundnu ofbeldi sem nú er haldið hér á landi í annað sinn. Á þriðja tug samtaka og stofnana standa sameiginlega að átakinu dagana 25. nóvember til 10. desember og eru þar með þátttakendur í átaki 1700 samtaka í 130 löndum. UNIFEM á Íslandi og Samtök um kvennaathvarf hafa forgöngu um verkefnið í ár. Upplýsingar um dagskrá og aðstandendur átaksins er að finna á vef UNIFEM á Íslandi.

Yfirskrift átaksins árið 2005 er Heilsa kvenna, heilsa mannkyns: Stöðvum ofbeldið.

nánar
 

18.11.2005 : Frumvarp um aðgerðir gegn heimilisofbeldi kynnt

Dóms- og kirkjumálaráðherra kynnti í morgun í ríkisstjórn frumvarp til breytingar á Almennu hegningarlögunum þess efnis að dómarar skulu taka sérstaklega tillit til tengsla brotamanns og brotaþola þegar refsing er ákveðin. Þannig má ætla að refsingar fyrir heimilisofbeldi verði þyngri en refsingar fyrir ofbeldisbrot gegn óskyldum aðila. Þessu ber að fagna enda felst í frumvarpinu viðurkennig á því hversu alvarlegur glæpur það er að brjóta gegn einhverjum nákomnum. Nánar verður fylgst með frumvarpinu þegar það berst Alþingi og afgreiðslu á þeim vettvangi.
 

17.11.2005 : Rannsókn: Hvað vita börn um ofbeldi á heimilum

Sárlega hefur vantað rannsóknir á Íslandi á ofbeldi á heimilum og því er fagnaðarefni þegar slíkt er í bígerð. Þann 23. nóvember næstkomandi munu Guðrún Kristinsdóttir, prófessor við KHÍ og Ingibjörg H. Harðardóttir, lektor við KHÍ, kynna fyrirhugaða rannsókn á hvað börn vita um ofbeldi á heimilum. Rannsóknin er metnaðarfullt verkefni sem standa mun yfir 2005-2008. Fyrirlesturinn verður sem fyrr segir haldinn 23. nóvember næstkomandi kl. 16:15 í Bratta, Kennaraháskóla Íslands v/Stakkahlíð. Nánari upplýsingar hér.

 

14.11.2005 : Bókalisti kominn á netið

Nú er aðgengilegur bókalisti sem samanstendur af bókum sem starfskonur Kvennaathvarfsins mæla með. Þessar bækur eru af ýmsum toga; skáldsögur, reynslusögur, bækur til sjálfsstyrkingar, bækur um meðvirkni eða bara bækur sem gætu vakið áhuga þeirra sem berjast gegn kynbundnu ofbeldi. Allar ábendingar um nýútkomnar, góðar bækur eru vel þegnar. Bókalistann má nálgast hér.
 

11.11.2005 : 16 daga átak endurtekið

Þann 25. nóvember næstkomandi verður 16 daga átaki gegn kynbundnu ofbeldi hleypt af stokkunum í annað sinn hér á landi. Fjöldi samtaka og stofnana tekur þátt en á þeim tíma sem átakið stendur yfir verður fjöldi funda, málþinga og viðburða sem fjalla um hvernig útrýma megi kynbundu ofbeldi. Yfirskrift átaksins að þessu sinni er Heilsa kvenna, heilsa mannkyns: Stöðvum ofbeldið.
 

9.11.2005 : Stefna borgarstjórnarflokkanna í kynferðisbrotamálum

Fimmtudaginn næstkomandi verður hádegissmellur Stígamóta haldinn í Norræna húsinu klukkan 12-13:30. Fulltrúar stjórnmálaflokkanna segja frá því hvernig þeir vilja að borgaryfirvöld komi að kynbundnu ofbeldi og hver stefna þeirra sé í málaflokknum. Frummælendur eru:

Stefán Jóhann Stefánsson fyrir Samfylkinguna, Marsibil Sæmundsdóttir fyrir Framsóknarflokkinn, Sóley Tómasdóttir fyrir Vinstri grænt framboð, Jórunn Frímannsdóttir fyrir Sjálfstæðisflokkurinn

 

8.11.2005 : Searching for Angela sýnd í kvöld

Fréttatilkynning frá Blátt áfram:

Angela Shelton verður viðstödd sýningu á mynd sinni Searching for Angela Shelton sem sýnd verður á kvikmyndahátíðinni í kvöld sem nú stendur yfir. Sjá www.icelandfilmfestival.is Myndin verður sýnd í Regnboganum dagana 8 nóv ? 14 nóv.

Við hjá Blátt áfram erum mjög ánægðar með að hafa staðið að komu Angelu Shelton til Íslands nú í annað sinn. Angela kom til Íslands á vegum V-dagssamtakanna fyrir nokkrum árum síðan. Angela er í raun hetjan mín þar sem ég man enn þegar ég sá viðtal við hana hjá Oprah Winfrey fyrir rúmlega tveimur árum þegar ég var búsett í bandaríkjunum.  Hún hafði mikil áhrif á mig og ýtti undir það að ég fluttist til íslands til að miðla af minni reynslu. Angela mun einnig heimsækja Háskóla Íslands og Stígamót á meðan á heimsókn hennar stendur.  Við hvetjum sem flesta til að koma og sjá þessa merkilegu mynd og fræðast um málaflokkinn á www.blattafram.is

nánar
 

31.10.2005 : Verklagsreglur lögreglu varðandi heimilisofbeldi

Samtök um kvennaathvarf hafa lengi bent á nauðsyn þess að samræma verklagsreglur lögreglunnar í heimilisofbeldismálum og nú hafa þessar reglur litið dagsins ljós. Fagna ber verklagsreglum en í þeim má finna ákvæði um skráningu heimilisofbeldismála og meðferð þeirra sem eru mjög til hagsbóta fyrir þolendur ofbeldis. Vonandi verður nýju verklagi fylgt vel eftir með kynningu og fræðslu fyrir lögreglumenn um land allt.
 

27.10.2005 : Lyf og heilsa leggur kvennabaráttunni lið með milljón króna framlagi til Kvennaathvarfsins

lyf_og_heilsaLyf og heilsa hefur ákveðið að sýna í verki þann stuðning sem ríkir innan fyrirtækisins í baráttunni fyrir jöfnum réttindum kynjanna með því að styðja Kvennaathvarfið um eina milljón króna. Lyf og heilsa skorar jafnframt á önnur fyrirtæki að fylgja í kjölfarið og styðja félög sem vinna að jafnréttismálum. Samtök um kvennaathvarf þakka kærlega þennan rausnarlega stuðning og sendir bestu kveðjur til starfsfólks Lyf og heilsu. Styrkurinn verður notaður í uppbyggingu sjálfshjálparhópa og innra starfs og rennur því óskiptur til aðstoðar við konur og börn sem til Kvennaathvarfsins sækja. nánar
 

26.10.2005 : Gjöf frá Pétri Péturssyni í tilefni baráttudags kvenna

Samtökum um kvennaathvarf barst peningagjöf frá Pétri Péturssyni, þuli, í tilefni baráttudags kvenna þann 24. október. Gjöfin er í minningu Þórdísar Símonardóttur, ljósmóður og forvígiskonu í frelsisbaráttu kvenna. Elísabetar Jónsdóttur frá Eyvindarmúla, Guðrúnar Eiríksdóttur frá Borg í Nesjum, Dýrleifar Árnadóttur og mæðgnanna Önnu Þorgrímsdóttur og Birnu Jónsdóttur sem allar voru kvenréttindakonur. Kvennaathvarfskonur hugsa hlýlega til Péturs með þakklæti og baráttukveðjum.
 

24.10.2005 : TIL HAMINGJU MEÐ DAGINN KONUR!

Fjölkvennum á baráttufundi um allt land núna og finnum samtakamáttinn sem býr í íslenskum konum. Með aflinu sem í okkur býr búum við til samfélag byggt á jafnrétti og virðingu. Bíðum ekki í þrjátíu ár í viðbót - JAFNRÉTTI NÚNA!
 

19.10.2005 : Kvennaársbolir til sölu

Hægt er að nálgast nýjustu tísku í bolum á skrifstofu Kvenréttindafélags íslands, Hallveigastöðum við Túngötu alla þessa viku. Um er að ræða stutt- og síðerma boli í svörtu, hvítu eða bleiku með merki baráttuárs kvenna prentað á. Síðerma bolir eru seldir á 2.000 krónur en stuttermabolir á 1.500 krónur. Bolirnir eru einstaklega góður baráttuklæðnaður og henta vel til að magna upp stemmningu fyrir kvennafrídaginn á mánudaginn!
 

19.10.2005 : Aðgerðaáætlun gegn kynbundnu ofbeldi fagnað

Aðgerðahópur gegn kynbundnu ofbeldi fagnar ákvörðun ríkisstjórnarinnar um að hafin verði skoðun á því með hvaða hætti megi standa að gerð og framkvæmd heildstæðrar aðgerðaáætlunar gegn heimilisofbeldi og kynferðislegu ofbeldi hér á landi.  

Við fögnum því að aðgerðaáætlunin verði unnin í samvinnu við hagsmunaaðila og frjáls félagasamtök og lýsum jafnframt áframhaldandi vilja til samstarfs.  Einnig treystum við því að drög þau sem við unnum og kynntum stjórnvöldum í vor verði höfð til hliðsjónar við gerð aðgerðaáætlunar.  

Við lýsum ánægju okkar vegna ráðningar starfsmanns til að vinna að aðgerðaáætluninni og að búast megi við niðurstöðum til umfjöllunar strax á vormánuðum 2006. 

Þá fögnum við því að barátta frjálsra félagasamtaka, kvennahreyfingarinnar og einstaklinga beri nú ávöxt og vonumst til að í mars 2006 verði kynnt heildstæð aðgerðaáætlun sem miðar að því að útrýma þeim smánarbletti sem kynbundið ofbeldi er á íslensku samfélagi. nánar

 

18.10.2005 : Áfangasigur í baráttunni!

Síðastliðið ár hafa fjölda samtaka unnið ötullega í baráttunni gegn kynbundnu ofbeldi. Þrýst hefur verið á stjórnvöld að setja saman heildstæða aðgerðaáætlun til að taka á því samfélagsmeini sem kynbundið ofbeldi svo sannarlega er í okkar samfélagi. Vegna þrýstings kvennahreyfingarinnar, mannréttindasamtaka, stjórnmálaafla og ekki síst einstaklinga ákvað ríkisstjórnin í morgun að unnin skyldi aðgerðaáætlun og verði hún tilbúin í mars á næsta ári. Samtök um kvennaathvarf fagnar áfanganum og vonast eftir góðu samstarfi við stjórvöld við gerð áætlunarinnar. Hér fylgir fréttatilkynning ríkisstjórnarinnar: nánar
 

18.10.2005 : Afnemum fyrningafrestinn!

Þú getur lagt þitt af mörkum til að þrýsta á stjórnvöld að afnema fyrningafrest í kynferðisbrotamálum gegn börnum. Hægt er að senda áskorun í gegnum heimasíðu Blátt áfram.
 

14.10.2005 : Grundfirðingar koma færandi hendi

Þrjár konur frá Grundarfirði komu færandi hendi í Kvennaathvarfið. Þær Shelagh Smith, Johanna Van Schalkwyk og Aradne Líf Cramer færðu starfskonum Kvennaathvarfsins ágóðann af sölu veitinga sem erlendar konur á Grundarfirði önnuðust á Bæjarhátíðinni síðastliðið sumar. Samtök um kvennaathvarf þakka kærlega fyrir stuðninginn og senda hlýjar kveðjur á Snæfellsnes.
 

14.10.2005 : Hvers vegna kvennafrí?

Vegna þess að:

...atvinnutekjur kvenna eru aðeins 64,15% af atvinnutekjum karla

...konur eru með 72% af launum karla fyrir jafnlangan vinnutíma
...barneignir hafa neikvæð áhrif á laun kvenna en jákvæð áhrif á laun karla
...margar konur búa við öryggisleysi og ógn á heimilum sínum
...ein af hverjum þremur konum verður fyrir kynbundnu ofbeldi á lífsleiðinni
...konur uppskera ekki í samræmi við menntun sína
...konur í fyrirtækjarekstri hafa verri aðgang að fjármagni
...ábyrgð á umönnun barna og heimilisstörfum er enn að mestu á höndum kvenna
...umönnunarstörf eru með lægst launuðu störfum á vinnumarkaði
...rödd kvenna er veik í fjölmiðlum
...litið er á líkama kvenna sem söluvöru
...kona hefur aldrei verið forsætisráðherra, bankastjóri eða biskup
...konur hafa aldrei verið helmingur þingmanna
...konur njóta ekki jafnréttis á við karla
...þessu þarf að breyta. Ég þori, get og vil!

KONUR SÝNUM SAMSTÖÐU

Leggjum niður störf á Kvennafrídaginn 24. október kl. 14.08 og fyllum miðborgina svo eftir verði tekið ? eins og fyrir 30 árum.
Hittumst á Skólavörðuholti kl. 15 og förum í kröfugöngu. Baráttufundur á Ingólfstorgi kl. 16.

 

14.10.2005 : Krafan um öryggi og kvenréttindi

Fyrir þrjátíu árum þegar íslenskar konur sýndu baráttuþrek sitt og samstöðu í verki með því að leggja niður vinnu og skunda á baráttufund var lítið rætt verstu birtingamyndir kynjamismunar. Það var ekki fyrr en árið 1982 sem staðfest var með rannsókn, það sem allt of margar konur vissu þá þegar, að heimilisofbeldi er staðreynd hér á landi og meira að segja útbreitt þjóðfélagsmein. Í kjölfarið voru Samtök um kvennaathvarf stofnuð og Kvennaathvarfið opnað. Átta árum síðar voru Stígamót formlega opnuð. Á þessum árum sem liðin eru hafa þúsundir kvenna sótt stuðning til Stígamóta og Kvennaathvarfsins og sögur þeirra og lífsreynsla mynda gríðarlega þekkingu á fyrirbærinu kynbundið ofbeldi. Það er eitt helsta hlutverk félagasamtaka sem beita sér gegn kynbundnu ofbeldi að koma á framfæri þessari þekkingu og leggja fram tillögur til úrbóta. nánar
 

11.10.2005 : Karlar, konur og ofbeldi - málþing

Í tilefni þess að Norrænu rannsóknarverkefni á sviðinu kyngervi og ofbeldi er nýlokið blæs Rannís til málþings undir yfirskriftinni Karlar, konur og ofbeldi. Málþingið er haldið á Grand hóteli, Hvammi, næstkomandi fimmtudag, 13. október 8:45 - 12. Meðal fyrirlesara eru Ingólfur V. Gíslason, sviðsstjóri Jafnréttisstofu, Peter Edward Gill, prófessor við háskólann í Gävle í Svíþjóð, Jónína Einarsdóttir, lektor í mannfræði við HÍ, Freydís Jóna Freysteinsdóttir, lektor í félagsráðgjöf við HÍ og Guðrún Agnarsdóttir, læknir. Dagskrána má nálgast hér.
 

11.10.2005 : Konur í hnattrænum heimi - Peking áratug áleiðis

UNIFEM á Íslandi og Rannsóknastofa í kvenna- og kynjafræðum við Háskóla Íslands boða til ráðstefnu föstudaginn 21. október kl. 9.15-16.15 í hátíðarsal Háskóla Íslands, aðalbyggingu.

Á ráðstefnunni flytja þekktar erlendar fræðikonur og baráttukonur erindi. Þar er fyrst að nefna prófessor Anne Phillips frá London School of Economics, sem hefur einkum rannsakað og skrifað um lýðræðishallann. Osnat Lubrani er svæðisstjóri UNIFEM í Austur-Evrópu, með aðsetur í Bratislava, Rosa Logar er frá samtökunum Women Against Violence Europe (WAVE) and Domestic Abuse Intervention Centre í Austurríki, Flora Macula kemur frá UNIFEM í Kosovo og Mieke Verloo, er prófessor við Háskólann í Nijmegen í Hollandi og ráðgjafi framkvæmdarstjórnar ESB og Evrópuráðsins um stefnumótun jafnréttismála. Meðal fyrirlesara frá Íslandi eru Rachel Lorna Johnstone lektor við Háskólann á Akureyri, Lilja Mósesdótti prófessor við Viðskiptaháskólann á Bifröst, Guðrún Jónsdóttir hjá Stígamótum og Jónína Einarsdóttir lektor við Háskóla Íslands

nánar
 

9.10.2005 : Karlar til ábyrðgar fá 6,5 milljónir

Í fjárlögum fyrir árið 2006 eru áætlaðar 6,5 milljónir í verkefnið Karlar til ábyrgðar. Það hefur síðustu ár verið baráttumála Samtaka um Kvennaathvarf að endurreisa verkefnið Karlar til ábyrgðar en því er ætlað að veita þeim mönnum sem beita heimilisofbeldi meðferð.
 

5.10.2005 : Kvikmyndahátíð og mannréttindi

Á kvikmyndahátíðinni sem nú stendur sem hæst er sérstaklur flokkur um mannréttindi í samstarfi við UNIFEM á Íslandi. Hægt er að nálgast upplýsingar um myndirnar hér.
 

5.10.2005 : Skipta myndir máli?

Í dag, miðvikudaginn 5. október, efnir UNIFEM á Íslandi í samvinnu við Alþjóðlega kvikmyndahátíð í Reykjavík til pallborðsumræðna um mikilvægi kvikmynda til eflingar mannréttindum.

Kvikmyndir eru einstakur miðill sem ná á undraverðan hátt að tjá sammannlega reynslu. Í mannréttindaflokki hátíðarinnar eru verðlaunamyndir sem sýna sjónarhorn fólks sem á að öllu jöfnu ekki opinbera rödd. Markmið pallborðsumræðanna er að ræða hvort og þá hvernig kvikmyndir og kvikmyndagerð geta haft áhrif á eflingu mannréttinda í heiminum.

nánar
 

30.9.2005 : Útvarpsleikhúsið flytur leikrit um konur, eftir konur, fyrir konur ...og karla!

Á ýmsum tímum og jafnvel enn þann dag í dag hefur sumum, þó einkum konum, þótt það undarleg ósköp að vera kona. Þann 24. október 2005 eru liðin 30 ár frá því að konur á Íslandi létu til sín taka með eftirminnilegum hætti og héldu frídag kvenna hátíðlegan með pompi og prakt.

Útvarpsleikhúsið á Rás 1 hefur af þessu tilefni undirbúið spennandi syrpu útvarpsleikrita um hina kvenlegu sýn og afstöðu til kvenna. Á fimmtudagskvöldum kl. 22.15 í október og nóvember eru flutt leikrit um konur og eftir konur. Sífellt hafa einhverjir spekingar, oftast karlkyns, verið að segja konum til, segja þeim hvernig þær eru, hvernig þær eigi að vera, hvað þær geti og geti ekki og hverjar skyldur þeirra eru. Í sumum leikritanna koma karlar við sögu en sýnin er kvenleg. Flutt eru verk eftir fimm íslenska höfunda og tvo erlenda.

nánar
 

28.9.2005 : Skeggrætt um jafnrétti

Hádegisverðarfundur Kvenréttindafélags Íslands, haldinn á Grand hótel, fundarsal Háteigi (4. hæð), fimmtudaginn 29. september n.k. kl. 12:00 ? 13:00. Margrét Sverrisdóttir varaformaður KRFÍ setur fundinn.

Viðfangsefni fundarins er misjöfn staða kynjanna í atvinnulífinu og í fyrsta sinn í sögu Kvenréttindafélags Íslands þá eru það eingöngu karlar sem verða með framsögu um jafnréttismál. Fjallað verður um kynjahluföll í stjórnum fyrirtækja, í stjórnunarstöðum banka og sparisjóða og atvinnurekendur í landbúnaði, þar sem konur eru ávallt miklu færri en karlar. Spurningin er hverjar ástæðurnar séu og þá hvernig breyta megi þessari stöðu.  Er það verkefni atvinnurekenda, ríkisins eða bara einstaklinganna sjálfra að fjölga konum í þessum stöðum?

nánar
 

22.9.2005 : Konur - leggjum niður störf - jafnrétti núna

barattuhatid_logoNú gefst kjörið tækifæri til að taka þátt í að skapa kvennasögu Íslands og láta til sín taka í baráttunni fyrir jafnrétti því hinn 24. október næstkomandi verður kvennafrídagurinn endurvakinn en þá eru liðin 30 ár frá kvennafríinu 1975. Konur eru hvattar til að leggja niður störf klukkan 14:08 en þá hafa þær unnið fyrir launum sínum, ef litið er til munar á atvinnutekjum karla og kvenna sem eru 64,15% af launum karla. Samkvæmt þessu eru konur búnar að vinna fyrir sínum launum, eftir fimm tíma og átta mínútur (miðað er við vinnudag kl. 9-17).

nánar
 

21.9.2005 : Hvað þarf til? - Hádegissmellir hjá Stígamótum

Stígamót standa fyrir opnum fræðslu- og umræðufundum annan hvern fimmtudag í vetur. Lykilfólk úr fræðunum og þeim starfsstéttum sem koma að málaflokknum munu kynna áhugaverð efni. Haldnar verða stuttar kynningar á viðfangsefnunum með umræðum á eftir. Boðið verður upp á léttan hádegisverð á lágu verði.

Markmið þessara fræðslu- og umræðufunda eru:

  • Fræðsla og vitundarvakning
  • Aukinn og auðveldari aðgangur að Stígamótum fyrir alla

Umræðufundirnir verða haldnir annan hvern fimmtudag frá kl.12:00 ? 13:00 í húsi Stígamóta að Hverfisgötu 115.

nánar
 

19.9.2005 : Börn í dönskum kvennaathvörfum sem hafa orðið fyrir ofbeldi

Ingibjörg Þórðardóttir, starfskona Kvennaathvarfsins og nemi í félagsráðgjöf, rekur hér fyrirlestur sem Anne Mau frá LOKK, samtökum danskra kvennaathvarfa, hélt á ráðstefnunni Nordiske kvinner mot vold í Reykjavík 3. september 2005 nánar
 

13.9.2005 : Starfskona óskast

Starfskona óskast í Kvennaathvarfið. Starfið er krefjandi vaktavinna sem felst í að aðstoða konur og börn sem til Kvennaathvarfsins leita. Ekki er krafist sérstakrar menntunar, en starfskonur skulu vera orðnar 25 ára og búa yfir nærgætni, hæfileikum til að vinna sjálfstætt og skipulega, og getu til að ráða við krefjandi aðstæður í mannlegum samskiptum. Áætluð er tveggja vikna þjálfun í upphafi starfs.

Í kvennaathvarfinu er lögð áhersla á heimilislegt og notarlegt andrúmsloft þar sem ríkir góður starfsandi. Nánari upplýsingar veitir Drífa Snædal, fræðslu- og framkvæmdastýra Samtaka um kvennaathvarf í síma 561 3740 eða netfangi: drifa@kvennaathvarf.is. Upplýsingar um starfsemina er að finna á heimasíðunni: www.kvennaathvarf.is.

 

7.9.2005 : Ályktun Norrænna kvenna gegn ofbeldi

Á ráðstefnunni: Norrænar konur gegn ofbeldi sem haldin var í Reykjavík 2.-4. september síðastliðinn var eftirfarandi ályktun samþykkt. nánar
 

5.9.2005 : Harðar verður tekið á kynbundnu ofbeldi í íslenskum lögum

Helgina 2. - 4. september var haldin ráðstefna norrænna kvennaathvarfasamtaka hér á landi og sóttu hana um 200 konur sem eru virkar í baráttunni gegn ofbeldi. Stígamót höfðu veg og vanda að ráðstefnunni en þar eru kynntar nýjustu rannsóknir á sviðinu og rætt það sem er efst á baugi hverju sinni á Norðurlöndunum. Spurt var hvort Norðurlöndin væru griðland fyrir ofbeldismenn, en öll tölfræði sýnir að svo er. Björn Bjarnason, dómsmálaráðherra, hélt ræðu við upphaf ráðstefnunnar þar sem hann tilkynnti niðurstöður refsiréttarnefndar að sérstakt tillit ætti að taka til tengsla ofbeldismanna við fórnarlömb við ofbeldisbrot. Því ber að fagna að ráðherra mun leggja fram tillögur þessa efnis á komandi þingi. Hér fylgir fréttatilkynning frá dómsmálaráðuneytinu, en ræðu ráðherra í heild sinni má lesa hér. nánar
 

26.8.2005 : Stelpur-konur-kerlingar og karlar líka. Ljóð-lag-lag-ljóð

Í tilefni 30 ára afmælis kvennafrísins 24. október 1975 efna undirrituð kvennasamtök og stofnanir til samkeppni um ljóð og lag til söngs þegar við viljum gleðjast, beita okkur, minnast eða fagna. Ljóð og lag verða frumflutt 24. október 2005. Tillaga sendist Kvenréttindafélagi Íslands, Túngötu 14, 101 Reykjavík, krfi@krfi.is fyrir 1. október næstkomandi. Verðlaunartillaga hlýtur 100.000 króna verðlaun. nánar
 

25.8.2005 : Norðurlönd - griðland fyrir ofbeldismenn?

Stígamót hafa tekið að sér að halda utanum 12. ráðstefnu “Nordiske kvinner mot vold” sem haldin verður á Grandhóteli í Reykjavík helgina 2.-4. sept. nk undir yfirskriftinni Norðurlönd - griðland fyrir ofbeldismenn? sjá dagskrá. Til ráðstefnunnar koma u.þ.b. 180-200 norrænir gestir. Boðið er virtum fyrirlesurum til ráðstefnunnar, bæði fræðifólki og embættismönnum og forseti Íslands mun bjóða til móttöku á Bessastöðum. nánar
 

22.8.2005 : Andafjör - Blátt áfram

Andafjör verður haldið nú í annað sinn í Elliðadal en leikurinn er gerður til að vekja athygli á mikilvægi forvarnarstarfs til að koma í veg fyrir ofbeldi gegn börnum. Verkefnið Blátt áfram stendur fyrir andafjörinu sem fram fer þann 3. september næstkomandi. nánar
 

10.8.2005 : Kynbundið ofbeldi ekki umborið í Svíþjóð

Svíþjóð hefur löngum þótt vera það land sem stendur sig best í jafnréttismálum. Þó hefur ekki náðst betri árangur en svo að tilefni þykir til að stofna sænskan kvennalista að íslenskri fyrirmynd. Fyrr í mánuðinum skilaði opinber nefnd skýrslu til dómsmálaráðherra Svíþjóðar um stöðu jafnréttismála þar sem sérstaklega var fjallað um kynbundið ofbeldi. Í skýrslunni kemur fram að víða er pottur brotinn og í kjölfarið hefur verið ákveðið að koma á fót sérstakri stofnun sem fjallar um ofbeldi karla gegn konum og hefur það hlutverk að annast gagnaöflun, greiningu, samhæfingu og stuðning til þeirra sem fjalla um málaflokkinn. Sömuleiðis á stofnunin að sinna rannsóknum og veita styrki, en stofnunin tekur til starfa í síðasta lagi 1. júní 2006. nánar
 

3.8.2005 : Tímabær endurskoðun kynferðisbrotakaflans

Nú stendur til að smíða nýtt frumvarp um kynferðisbrotakafla hegningarlaganna. Því ber að fagna, enda eru skýr lagaákvæði um kynferðisbrot forsenda þess að refsivörslukerfið geti tekið á kynferðisbrotum með tilhlýðilegum hætti. Lagalegar skilgreiningar á kynferðisbrotum eiga að endurspegla eðli og inntak brotanna. Á það vantar í núgildandi kynferðisbrotakafla. nánar
 

2.8.2005 : Kvennaársbolir til sölu

Hægt er að nálgast bolina sem gerðir voru í tilefni af baráttuári kvenna árið 2005 í búðinni Oni að Laugavegi 17 (bakhúsi). Bolirnir voru til sölu á Þingvöllum 19. júní og fengu færri en vildu. Myndir af bolunum má nálgast hér.
 

28.7.2005 : Konur í hnattrænum heimi - ráðstefna

Í tilefni þess að 10 ár eru liðin frá fjórðu ráðstefnu Sameinuðu þjóðanna um málefni kvenna í Peking 1995 og 30 ár frá kvennaári Sþ 1975 munu UNIFEM á Íslandi og Rannsóknastofa í kvenna- og kynjafræðum við Háskóla Íslands standa fyrir ráðstefnunni Konur í hnattrænum heimi, föstudaginn 21. október 2005. nánar
 

18.7.2005 : 15 lönd gegn mansali

Þann 7. júlí síðastliðinn höfðu 15 lönd undirritað samning Evrópuráðsins um aðgerðir til að stemma stigu við mansali. Davíð Oddsson, utanríkisráðherra, undirritaði samninginn fyrir hönd Íslands. Í fréttatilkynningu frá Evrópuráðinu er staðfest að mansal sé brot á mannréttindum og misbjóði virðinu þeirra sem fyrir því verða. Mansal er þannig í beinni andstöðu við það sem Evrópuráðið berst fyrir og táknar. Nánar er hægt að fræðast um samninginn á vef Evrópuráðsins.
 

8.7.2005 : Femme globale ? ráðstefna 8.-10. september í Berlín

Vakin er athygli á ráðstefnunni Femme Globale - Genderperspectives in the 21st Century sem haldin verður dagana 8.-10. september í Berlín. Ráðstefnan fer fram bæði á þýsku og ensku. Meðla þess sem skoðað verður með kynjagleraugunum á ráðstefnunni er: Samþætting kynjasjónarmiða, alþjóðavæðing, öryggi og friður, upplýsingasamfélagið, umhverfismál og fleira. Nánari upplýsingar og skráningu má finna hér.
 

7.7.2005 : Amnesty International fordæmir sprengjuárásirnar í Lundúnum - Athöfn á Lækjartorgi í dag kl. 17.00

Eftirfarandi er fréttatilkynning Íslandsdeild Amnesty International: Amnesty International fordæmir sprengjuárásirnar í Lundúnum sem hafa kostað almenna borgara lífið og sært fjölda fólks alvarlega. Heimildir herma að sprengjur hafi sprungið á sex neðanjarðar-lestarstöðvum og einni strætisvagnastöð. nánar
 

5.7.2005 : Norrænar konur gegn ofbeldi - ráðstefna

Fyrstu helgina í september standa Stígmót fyrir norrænni ráðstefnu gegn ofbeldi hér á landi. Að þessu sinni er velt upp spurningunni hvort norðurlöndin séu griðland fyrir ofbeldismenn. Fjöldi fyrirlesara frá norðurlöndum eru væntanlegir en nánari upplýsingar um dagskrá og skráningu er að finna hér.
 

30.6.2005 : Kvennasamtök mótmæla viðskiptum ríkisvaldsins á klámi

Eftirfarandi mótmæli frá kvennasamtökum hafa verið send alþingisfulltrúum, fjölmiðlum og forsvarsmönnum Símans, Skjás 1 og 365 Ljósvakamiðla:

Ríkisfyrirtækið Síminn hefur um nokkurt skeið dreift og selt aðgang að stöðinni Adult Channel í gegnum breiðbandið. Nýverið fjölluðu fjölmiðlar um að Skjár 1, sem er að hluta til í eigu sama ríkisfyrirtækis, hafi gert samning við sjónvarpsstöðina Playboy TV um dreifingu á klámefni.

nánar
 

29.6.2005 : Opið hús hjá Blátt áfram

Laugardaginn 2 júlí 2005, mun Blátt áfram verkefni UMFI gegn kynferðisofbeldi á Íslandi standa fyrir opnu húsi í Fellsmúla 26, 108 Reykjavík klukkan 14:00. Tilgangurinn er að bjóða þeim fjölmörgu einstaklingum sem hafa haft samband við okkur síðustu mánuði að koma saman. Þar eru bæði einstaklingar sem hafa lifað af ofbeldi og þau sem vilja leggja hönd á plóg við að hjálpa okkur í baráttunni gegn kynferðisofbeldi á Íslandi. nánar
 

28.6.2005 : Kvennakraftur gefinn Alþingi

kvennakrafturÍ gær gáfu nokkrar íslenskar kvennahreyfingar Alþingi listaverk eftir Koggu til að minnast 90 ára kosningaréttar kvenna. Hreyfingarnar sem að þessu standa eru: Femínistafélag Íslands, Kvenréttindafélag Íslands, Kvenfélagasamband Íslands, Kvennasögusafn Íslands, Kvennakirkjan, Rannsóknastofa í kvenna- og kynjafræðum, Samtök um kvennaathvarf, Stígamót og UNIFEM á Íslandi. Það er vonandi að kvennakraftur verði fulltrúum á þingi hvatning til að taka á í jafnréttismálum.
 

19.6.2005 : Kröfugerð 19. júní

Baráttufundur kvenna á Þingvöllum 19.júní 2005 samþykkti eftirfarandi kröfugerð sem gerð er á grundvelli Pekingáætlunar Sameinuðu þjóðanna.

nánar
 

17.6.2005 : Konur ! Skundum á Þingvöll

Á sunnudaginn minnumst við þess að 90 ár eru liðin frá því konur fengu kosningarétt. Af því tilefni eru allar sem vettlingi geta valdið hvattar til að mæta á Þingvöll og skerpa baráttuandann fyrir jafnrétti. Nánar um dagskrá og rútuferðir er að finna hér.
 

16.6.2005 : Athöfn í Hólavallakirkjugarði 18. júní 2005

Þann 19. júní eru liðin 90 ár frá því að íslenskar konur fengu kosningarétt.
Að því tilefni hafa kvennasamtök landsins sameinast um hátíðar- og
baráttudagskrá helgina 18.-19. júní. Laugardaginn 18. júní verður athöfn í
Hólavallakirkjugarði í Reykjavík. Athöfnin hefst kl. 11 með
tónlistarflutningi Mörtu Guðrúnar Halldórsdóttur, sópran og Hallfríðar
Ólafsdóttur, flautuleikara. Borgarstjóri Reykjavíkur, Steinunn Valdís
Óskarsdóttir, flytur ávarp í minningu forystukvenna
kvenréttindahreyfingarinnar og blóm verða sett á legstaði forystukvenna í
kvenréttindamálum.

Athöfninni stýrir Auður Styrkársdóttir, forstöðumaður Kvennasögusafns
Íslands.

Að þessari athöfn standa Feministafélag Íslands, Kvenréttindafélag Íslands,
Kvenfélagasamband Íslands, Kvennasögusafn Íslands, Kvennakirkjan,
Rannsóknastofa í kvenna- og kynjafræðum, Samtök um kvennaathvarf, Stígamót og UNIFEM á Íslandi í samvinnu við Reykjavíkurborg og Kirkjugarða
Reykjavíkur.

 

31.5.2005 : Þingvallarfundur kvenna 19. júní

Fjöldi kvenna hefur nú sameinast um undirbúning viðburða til að minnast tímamóta í sögu íslenskra kvenna á afmælisárinu 2005. Hinn 19. júní næstkomandi eru 90 ár síðan íslenskar konur fengu kosningarétt og 24. október verða 30 ár liðin frá kvennafrídeginum sem vakti heimsathygli. Þá eru 25 ár síðan Vigdís Finnbogadóttir varð forseti og tíu ár frá því að aðgerðaáætlun Sameinuðu þjóðanna í jafnréttismálum var samþykkt í Peking. Nefndin vill nýta þetta ár til þess að brýna íslenskar konur til samstöðu og til að vinna nýja áfangasigra í átt að raunverulegu jafnrétti.

nánar
 

31.5.2005 : Kvennaþing á Hallveigastöðum næsta laugardag

Boðað er til kvennaþings 4. júní að Hallveigarstöðum kl 11:00-14:00 í tilefni af fyrirhuguðum breytingum á stjórnarskrá Íslands.

Með núverandi endurskoðun stjórnarskrárinnar gefst íslenskum konum í fyrsta sinn tækifæri til að hafa bein áhrif á stjórnarskrá landsins. Það er vel við hæfi að konur hefji upp raust sína nú þegar minnst er 90 ára afmælis kosningaréttar kvenna á Íslandi. Að mörgu er að huga við endurskoðun stjórnarskrár ef tekið er mið af jafnréttissjónarmiðum. Málefnum kynjanna er ekki hægt að skipa á þröngan bás, þau snerta samfélagið allt og nú er tími til kominn að stjórnarskráin endurspegli það.

nánar
 

27.5.2005 : Yfirlýsingum dómsmálaráðherra fagnað

Eftirfarandi er fréttatilkynning frá aðgerðahópi gegn kynbudnu ofbeldi:

Aðgerðahópur gegn kynbundnu ofbeldi fagnar yfirlýsingum dómsmálaráðherra, Björns Bjarnasonar um aðgerðir sem hafnar eru gegn kynbundnu ofbeldi. Á morgunverðafundi með fulltrúum félagasamtaka og stjórnvalda tjáði ráðherra fundargestum að hafin væri vinna við endurskoðun kynferðisbrotakafla almennra hegningarlaga. Í máli hans kom einnig fram að refsiréttanefnd hefur fengið til umfjöllunar fyrirspurn ráðherra um sérstakt refsiákvæði er lýtur að heimilisofbeldi. Þá kom fram að bættar verklagsreglur lögreglu um heimilisofbeldi eru í vinnslu hjá ríkislögreglustjóra.

nánar
 

26.5.2005 : Munið fundinn á morgun!

Í fyrramálið klukkan 8:30 gefst tækifæri til að eiga orðastað við stjórnvöld um til hvaða aðgerða skuli gripið gegn kynbundnu ofbeldi. Fundurinn er hugsaður sem samræðuvettvangur til að koma að hugmyndum og athugasemdum en byggt er á drögum að aðgerðaáætlun sem unnin voru í kjölfar 16 daga átaks gegn kynbundnu ofbeldi.

Fundurinn er haldinn á Grand hótel, efstu hæð, þann 27. maí milli klukkan 8.30 og 10.00. Aðgangseyrir er 1.300 krónur með morgunverði. Brynhildur Flóvenz, lögfræðingur stýrir fundi og Drífa Snædal, framkvæmdastýra Kvennaathvarfsins, kynnir drög að aðgerðaáætlun. Fulltrúar ráðuneyta skýra frá þeirri vinnu og stefnumótun sem fer fram í ráðuneytunum. Staðfest er að Björn Bjarnason dómsmálaráðherra sitji fundinn og Ragnhildur Arnljótsdóttir, ráðuneytisstjóri félagsmálaráðuneytisins.

Mikilvægt er að sem flest mæti til að taka þátt í samræðum.

F.h. aðgerðahóps gegn kynbundnu ofbeldi: Jóhanna K. Eyjólfsdóttir, framkvæmdastjóri Íslandsdeildar Amnesty International, Guðrún D. Guðmundsdóttir, framkvæmdastjóri Mannréttindaskrifstofu Íslands, Drífa Snædal, fræðslu-og framkvæmdastýra Samtaka um kvennaathvarf, Birna Þórarinsdóttir, framkvæmdastýra UNIFEM á Íslandi, Guðrún Jónsdóttir, talskona Stígamóta

 

26.5.2005 : Menn eru ekki skepnur!

Í fréttum Ríkissjónvarpsins í gærkveldi var sagt frá deilum sem spunnist hafa í Svíþjóð eftir að haft var eftir formanni ROKS, regnhlífasamtaka kvennaathvarfa í Svíþjóð, að menn væru skepnur. Af þessu tilefni vill stjórn Samtaka um kvennaathvarf koma á framfæri yfirlýsingu ROKS sem ber heitið ?Menn eru ekki skepnur?. Þar kemur fram að ummælin voru slitin úr samhengi, verið var að vitna í bók eftir bandaríska konu, Valerie Solanas, sem upplifað hefur grófustu hliðar kynferðisofbeldis, nauðganir og vændi. Í skrifum sínum segir Valerie að það að kalla karlmann skepnu sé vægt til orða tekið. Formaður ROKS segist skilja þessa afstöðu konu sem hafi upplifað verstu birtingamyndir kynjamisréttis en þetta sé ekki afstaða ROKS. Ummælin voru hins vegar klippt til í sjónvarpsþætti í Svíþjóð og hvetur stjórn ROKS til þess að viðtalið við formanninn verði birt í heild sinni. Nánar má sjá yfirlýsingu stjórnar og formanns ROKS á www.roks.se.

Samtök um kvennaathvarf óska eftir því að fjölmiðlar birti allar hliðar málsins enda geti einhliða skýringar haft alvarleg áhrif á starfsemi kvennaathvarfa hérlendis sem erlendis. Starfsemi kvennaathvarfa er gríðarlega nauðsynleg fyrir þær fjölmörgu konur sem beittar eru ofbeldi og það er ábyrgðahlutur að kasta rýrð á þá starfsemi.

Stjórn Samtaka um kvennaathvarf

 

20.5.2005 : Morgunfundur um aðgerðir gegn kynbundu ofbeldi 27. maí

Boðað er til samræðna á milli stjórnvalda og félagasamtaka um aðgerðaáætlun gegn kynbundnu ofbeldi, til hvaða aðgerða þurfi að grípa og hvernig skuli staðið að þeim. Fundurinn er haldinn á Grand hótel, efstu hæð, þann 27. maí milli klukkan 8.30 og 10.00. Aðgangseyrir er 1.300 krónur með morgunverði. Þær tillögur sem Samtök um kvennaathvarf í félagi við fleiri samtök hafa lagt fram um aðgerðaáætlun má nálgast hér.

nánar
 

18.5.2005 : Ísland undirritar nýjan samning gegn mansali

Eftirfarandi fréttatilkynning barst frá Íslandsdeild Amnesty International:

?Á nýafstöðnum leiðtogafundi Evrópuráðsins í Varsjá skrifaði Davíð Oddsson utanríkisráðherra fyrir hönd Íslands undir samning Evrópuráðsins gegn mansali. Íslandsdeild Amnesty International fagnar undirskrift Íslands og hvetur Alþingi til að staðfesta samninginn strax á haustþingi.

nánar
 

17.5.2005 : Bann við limlestingu á kynfærum kvenna samþykkt

Á lokadegi Alþingis var samþykkt frumvarp um bann við limlestingu á kynfærum kvenna. Þetta hefur verið eitt af baráttumálum kvennahreyfingarinnar og ber að fagna þessum árangri. Vonandi er samþykkt þessa frumvarps vísir að frekari lagabreytingum til að taka á kynbundnu ofbeldi hér á landi. Starfandi hefur verið aðgerðarhópur sem beitir sér fyrir því að stjórnvöld setji baráttu gegn kynbundnu ofbeldi á dagskrá með aðgerðaáætlun og var bann við limlestingu á kynfærum kvenna meðal þeirra tillagna sem hópurinn hefur lagt fram.
 

9.5.2005 : Kosningaréttur kvenna 90 ára

Málþing um kosningarétt kvenna og áhrif hans í 90 ár verður haldið í hátíðasal Háskóla Íslands, 20. maí 2005 kl. 13.00 - 17.00. Málstofustjóri Erla Hulda Halldórsdóttir sagnfræðingur.

Þann 19. júní næstkomandi verða 90 ár liðin frá því að Danakonungur undirritaði lögin sem veittu konum sem orðnar voru 40 ára og eldri rétt til að kjósa og bjóða sig fram til Alþingis. Hver var aðdragandi þess að konur hlutu kosningarétt og hvernig var umræðan í kringum kosningaréttinn? Hvernig þróaðist kosningaþátttaka kvenna og lögðu konur áherslu á önnur mál en karlar? Hvers vegna var boðinn fram kvennalisti árið 1922 og hvaða erindi töldu kvenréttindakonur sig eiga inn á svið stjórnmálanna. Þessum spurningum munu fræðimenn leitast við að svara í þeim erindum sem flutt verða á málþinginu.

 

4.5.2005 : Sýnum ofbeldi rauða spjaldið

Samtök um kvennaathvarf vilja koma á framfæri eftirfarandi fréttatilkynningu frá BIRTINGU - ungu fólki gegn ofbeldi:

Undanfarin misseri hefur aukið ofbeldi í samfélaginu verið mikið í umræðunni. Nú teljum við að komið sé nóg. Við getum ekki setið aðgerðalaus lengur. Við viljum senda skýr skilaboð bæði til stjórnvalda og almennings og vekja landann til umhugsunar um hve stórt vandamálið er. Saklaust fólk hefur ítrekað orðið fyrir barðinu á ofbeldismönnum sem virðast geta vaðið uppi í samfélaginu án þess að gripið sé til nokkurra aðgerða. Þetta viljum við stöðva!

nánar
 

2.5.2005 : Sjálfboðaliðarnir komnir í frí

Í vetur hefur Kvennaathvarfið notið þess að hafa 8 sjáflboðaliða í vinnu á laugardögum í samstarfi við Rauða krossinn og félagsráðgjafanám Háskóla Íslands. Sjálfboðaliðarnir hafa unnið að ýmsum verkefnum samhliða því að létta undir með börnum og mæðrum í athvarfinu með markvissu félagsstarfi fyrir börn. Þetta hefur tekist mjög vel enda úrvals sjálfboðaliðar á ferð sem hafa gengið til allra verka jákvæðar og áhugasamar. Við í athvarfinu þökkum kærlega fyrir samstarfið í vetur og hlökkum til að endurvekja verkefnið í haust.
 

28.4.2005 : Aðgerðaáætlun gegn kynbundnu ofbeldi

Í nóvember á síðasta ári stóðu 16 félagasamtök og stofnanir fyrir 16 daga átaki gegn kynbundnu ofbeldi. Átakinu lauk með afhendingu áskorunar til yfirvalda um að setja fram heildstæða aðgerðaáætlun gegn kynbundnu ofbeldi á Íslandi er hefði réttlæti, forvarnir, stuðning og vernd til handa fórnarlömbum að leiðarljósi.

Í kjölfar átaksins var settur á fót aðgerðahópur gegn kynbundnu ofbeldi á Íslandi með það að markmiði að stuðla að upplýstri umræðu um málefnið og vera stjórnvöldum til stuðnings og leiðbeiningar við gerð aðgerðaáætlunar er tæki til löggjafar, dómstóla, saksóknara og löggæslu, félagslegra úrræða, fræðslu til almennings og fagaðila; ásamt sértækum aðgerðum innan mennta-, heilbrigðis- og félagslega kerfisins. Tillögur að aðgerðaáætluninni eru að finna hér.

nánar
 

26.4.2005 : Styrkur til túlkaþjónustu

Samtök um kvennaathvarf njóta greinilega mikils velvilja hjá öðrum félagasamtökum og góður skilningur er á starfi athvarfsins. Zontaklúbburinn Embla hefur nýlega styrkt samtökin um 100.000 krónur til að standa straum að túlkaþjónustu fyrir konur af erlendum uppruna sem sækja í athvarfið. Það er nauðsynlegt að geta boðið upp á túlkaþjónustu og má fjárhagurinn aldrei ráða því hvort óskað er eftir túlki. Á síðasta ári voru 30% dvalarkvenna af erlendum uppruna, en flestar þeirra töluðu ensku eða íslensku. Hins vegar koma nokkrar konur árlega sem hafa hvorugt málið á valdi sínu. Styrkurinn frá Zontaklúbbnum hjálpar okkur svo sannarlega að aðstoða þær konur. Samtök um kvennaathvarf færa Zontunum bestu þakkir.
 

22.4.2005 : Rausnarlegur styrkur frá Eflingu

Á aðalfundi Eflingar-stéttarfélags 19. apríl síðastliðinn fékk Kvennaathvarfið afhentan styrk að upphæð 250.000 krónur frá félaginu. Þetta er ekki í fyrsta sinn sem Kvennaathvarfið hefur notið velvilja Eflingar því þegar Samtök um kvennaathvarf fóru í landssöfnun árið 1992 til að safna fyrir nýju húsi, en þá gáfu þau félög sem síðar urðu að Eflingu okkur samtals 725.000 krónur og munaði svo sannarelga um minna. nánar
 

19.4.2005 : Gerum réttindi að veruleika

Fyrir rétt um ári síðan hratt Amnesty International af stað herferð til að enda ofbeldi gegn konum. Síðan hafa samtökin látið heyra í sér hér á landi sem erlendis og hefur sannarlega munað um minna í baráttunni. Hluti af herferðinni beinist að stjórnvöldum og hafa samtökin í því skyni gefið út skýrsluna: ?The duty of states to address violence against women?. Öll þau sem hafa áhuga á því hvernig hið opinbera geti sinnt skyldum sínum gagnvart konum sem beittar eru ofbeldi ættu að lesa þessa skýrslu en hún er aðgengileg hér. nánar
 

14.4.2005 : Hugleiðingar um hugrekki

Eftirfarandi pistil flutti Drífa Snædal, framkvæmdastýra Samtaka um kvennaathvarf á Útvarpi Sögu miðvikudaginn 13. apríl:

Í vikunni sat ég afar merkilega ráðstefnu sem bar heitið Úr hlekkjum til frelsis og fjallaði um kynbundið ofbeldi, aðallega gegn börnum. Ég held að það hafi ekki látið neinn ósnortinn sem í salnum sat þegar Svava Björnsdóttir miðlaði af reynslu sinni af kynferðislegu ofbeldi í æsku. Ég persónulega hef aldrei orðið vitni að slíku hugrekki, að lýsa því sem óbærilegt hlýtur að vera fyrir framan hundrað manns í ráðstefnusal. Draga fram myrkustu leyndarmál heimilisins og matreiða fyrir ráðstefnugesti og síðar um kvöldið að endurtaka leikinn í Kastljósinu. Slíkt hugrekki er nánast einsdæmi og ýtir undir þá skynjun að ofbeldi gegn börnum sé afar fátítt.

nánar
 

13.4.2005 : Samræður menningarheima

Á morgun hefst ráðstefna til heiður Vigdísi Finnbogadóttur sem nefnist Samræður menningarheima. Ýmislegt er í boði en sérstaklega er bent á málstofuna ?Veljum Vigdísi! Á forsetastóli 1980-1996? á föstudaginn milli klukkan tvö og fjögur. Nánari upplýsingar um ráðstefnuna er að finna hér.
 

11.4.2005 : Ráðstefna um ofbeldi á morgun

Við minnum á ráðstefnuna, Úr hlekkjum til frelsis, í húsnæði Kennaraháskóla Íslands á morgun klukkan 9-16. Sjá dagskrá.
 

11.4.2005 : Þögnin rofin

Rjufum_togninaÁ laugardaginn mætti fjöldi fólks á Arnarhól í því skyni að rjúfa þá þögn sem umlykur ofbeldi inni á heimilum. Hengdir voru upp bolir á snúrur með eða án áletrana með táknrænum hætti og Elísabet Jökulsdóttir stjórnaði tilfinningatorgi. Þar gafst fólki tækifæri til að tjá sig, segja sögu sína eða lesa upp ljóð, allt eftir höfði hvers og eins. Frumkvæði að þessu áttu systurnar Sigríður og Svava Björnsdætur sem fara fyrir verkefninu Blátt áfram en samtökin Styrkur ? úr hlekkjum til frelsis lagði einnig hönd á plóg auk þess sem verkefnið var stutt af fleiri samtökum, þar á meðal Samtökum um kvennaathvarf.
 

1.4.2005 : Rjúfum þögninga - 9. apríl

auglysing300Við þekkjum of mörg einhvern sem hefur lifað af ofbeldi. Sum okkar betur en önnur. Við bjóðum þér að sýna samstöðu, sýna í verki að við tökum ekki lengur þátt í samsæri þagnarinnar. Ofbeldi þrífst í þögninni! Komdu á Arnarhól, þann 9. apríl milli tvö og fimm með þinn stuttermabol, með eða án texta - við sköffum snúru og klemmur.

Við hengjum upp bol fyrir okkur sjálf sem höfum lifað af ofbeldi og ef þú þekkir einhvern sem hefur lifað af ofbeldi getur þú hengt upp boli fyrir hann/hana. Ef þú vilt segja frá einhverju sem varðar ofbeldi, lesa ljóð eða stutta sögu, eða bara nafnið þitt til þess að rjúfa þögnina þá verður það í boði. Við styðjum þig í að gera það sem þú þarft til þess að rjúfa þögnina þína.

Skipuleggjendur eru samtökin Styrkur ? úr hlekkjum til frelsis og verkefnið Blátt áfram. Framtakið er stutt af Samtökum um Kvennaathvarf, Stígamótum, Kjarki á Akureyri, UNIFEM, Íslandsdeild Amnesty International, Feministafélagi Íslands og fleirum.

 

22.3.2005 : Úr hlekkjum til frelsis - ráðstefna 12. apríl

Þann 12. apríl næstkomandi verður ráðstefna á vegum samtakanna Styrkur - úr hlekkjum til frelsis þar sem fjallað verður um heimilis- og kynferðisofbeldi gegn börnum og unglinum. Ráðstefnan er öllum opin og verður í Bratta, fyrirlestrarsal Kennaraháskóla Íslands. nánar
 

15.3.2005 : Fyrirmynd að karlaathvarfi

Í síðustu viku var kynnt hugmynd að stofnun karlaathvarfs hér á landi. Slík hugmynd hefur oft skotið upp kollinum og iðulega eru fulltrúar Kvennaathvarfsins spurðar að því hvert karlar geti leitað með sín vandamál. Því er alltaf svarað á þann veg að Kvennaathvarfið er sprottið upp úr kvennahreyfingunni og það er illsamræmanlegt að reka karlaathvarf og kvennaathvarf saman. Samtök um kvennaathvarf hafa hins vegar hvatt karlahreyfingar til að vinna að jafnréttismálum og áhersla hefur verið á að endurreisa verkefnið Karlar til ábyrgðar, sem er meðferð fyrir karla sem beita ofbeldi. Jafnrétti fæst aldrei fyrr en bæði kynin eru meðvituð og virk í baráttunni. nánar
 

10.3.2005 : Hratt og hömlulaust

Föstudaginn 11. mars kl. 17:00 opnar Menningarmiðstöðin í Gerðubergi sýningu undir heitinu Hratt og hömlulaust.

Markmið sýningarinnar er að vekja fólk til umhugsunar um stöðu fjölskyldunnar og málefni tengd henni í gegnum listsköpun og óvenjulega framsetningu á staðreyndum. Hvernig lítur nútímafjölskyldan út? Er til dæmigerð fjölskylda? Varpað verður fram áleitnum spurningum um þróun fjölskyldunnar og áhrifavalda hennar. Sýningin gerir ekki tæmandi úttekt á fjölskyldunni en lýsir upp marga fleti sem gefa efni til krefjandi umræðna.

Fjölskyldan hefur verið mikið í umræðunni undanfarið og virðast ráðamenn þjóðarinnar sem og almenningur hafa áhyggjur af afdrifum hennar. Sýningin leitast við að skyggnast inn í þann raunveruleika sem margir eiga við að glíma. nánar

 

9.3.2005 : Stjórn SUK skiptir með sér verkum

Á fyrsta fundi nýrrar stjórnar Samtaka um kvennaathvarf skipti stjórnin með sér verkum með þessum hætti: Guðrún Elín Jónsdóttir, formaður, Elísabet Hjaltadóttir, varaformaður, Elín Sigurðardóttir, ritari, Edda Linn Rise, gjaldkeri og Tatjana Latinovic, meðstjórnandi.

Í varastjórn sitja Þórdís Guðmundsdóttir og Sonja B. Jónsdóttir. Hægt er að senda tölvupóst beint á stjórnina: stjorn@kvennaathvarf.is

 

7.3.2005 : Hulduslóð komin út

Út er komin bókin Hulduslóð, eða Gömda, eftir Lizu Marklund í íslenskri þýðingu Önnu R. Ingólfsdóttur. Bókin kom fyrst út í Svíþjóð árið 1995 og lýsir skelfilegu ofbeldi sem Maria Eriksson og fjölskylda hennar verða fyrir af hendi fyrrum sambýlismanns hennar. Bókin er byggð á sannsögulegum atburðum og vakti mikla athygli í Svíþjóð á sínum tíma og varð uppspretta umræðna um ofbeldi í nánum samböndum. nánar
 

7.3.2005 : Píkusögur gegn ofbeldi

Þann 8. mars, á alþjóðlegum baráttudegi kvenna, mun höfundur píkusagna, Eve Ensler, vera stödd í Íslensku óperunni. Eve er sérstakur heiðursgestur á dagskrá íslensku V-dagssamtakanna sem hefst klukkan níu um kvöldið, en hún er stofnandi samtakanna sem hafa það að markmiði að berjast gegn ofbeldi gegn konum. Einnig munu koma fram: Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, María Ellingsen, Ilmur Kristjánsdóttir, Margrét Vilhjálmsdóttir, Ellen Kristjánsdóttir, Igore, Lára, Gísli Marteinn Baldursson, Sigurður Kári Kristjánsson, Ágúst Ólafur Ágústsson, Ríkharður Daðason, Egill Helgason, Þorgils Óttar Mathiesen, Björn Thors o.fl.
 

1.3.2005 : Alþjóðlegur baráttudagur kvenna

Fjölmörg samtök og félög standa að opnum fundi í tilefni af alþjóðlegum baráttudegi kvenna þann 8. mars næstkomandi. Dagskráin er fjölbreytt og hefst hún klukkan fimm í Tjarnarsal Ráðhúss Reykjavíkur.
 

25.2.2005 : Bjartsýni á Karla til ábyrgðar

Á aðalfundi Samtaka um kvennaathvarf 24. febrúar hélt Ingólfur V. Gíslason, starfsmaður jafnréttisstofu, erindi um verkefnið Karlar til ábyrgðar. Verkefnið var í samstarfi Karlanefndar jafnréttisráðs og Rauða kross Íslands og var markmiðið meðferð fyrir karlmenn sem beita ofbeldi. Því miður lognaðist verkefnið út af í lok ársins 2001 vegna fjárskorts, en hafði þá verið í gagni síðan 1998. nánar
 

25.2.2005 : Ný stjórn Samtaka um kvennaathvarf

Á aðalfundi Samtaka um kvennaathvarf í gærkveldi var kjörin ný stjórn. Í henni sitja Elín Sigurðardóttir, Guðrún Elín Jónsdóttir, Elísabet Hjaltadóttir, Edda Linn Rise og Tatjana Latinovic. Varastjórn skipa Sonja B. Jónsdóttir og Þórdís Guðmundsdóttir. Félagslegir endurskoðendur voru endurkjörnar Fríða Bragadóttir og Álfheiður Ingadóttir.

 

24.2.2005 : Aðalfundur Samtaka um kvennaathvarf í dag

Samtök um kvennaathvarf minna á aðlafundinn í dag í Norræna húsinu milli klukkan fimm og sjö. Hefðbundnum aðalfundarstörfum samkvæmt dagskrá lýkur um sex en þá flytur Ingólfur V. Gíslason, starfsmaður jafnréttisstofu, erindi um verkefnið Karlar til ábyrgðar. Fundurinn er opinn öllum en aðeins félagar í samtökunum eru með atkvæðisrétt. Hægt er að skrá sig í samtökin hér.
 

23.2.2005 : Beitir þú ofbeldi

Farðu í gegnum listann og svaraðu spurningunum. Eftir því sem þú svarar fleiri spurningum játandi, þeim mun meiri hætta er á að þú beitir konu/kærustu þína ofbeldi. Ef þú kannast við hegðun þína í mörgum atriðum ættir þú að leita aðstoðar fagaðila.
 

22.2.2005 : Ársskýrsla Samtaka um kvennaathvarf

Ársskýrsla Samtaka um kvennaathvarf fyrir árið 2004 er nú aðgengileg á netinu í pdf-formi. Hægt er að nálgast prentað eintak af skýrslunni með því að panta hana í síma 561 3720 eða á netfanginu thorlaug@kvennaathvarf.is

Aldrei hafa fleiri komur verið skráðar í Kvennaathvarfið en árið 2004 ef tekið er mið af bæði stuðningsviðtölum og þeim sem komu í dvöl, eða alls 531 koma. Á bak við þennan fjölda eru 254 konur. Alls komu 88 konur komu til dvalar á árinu og 55 börn en dvalardagarnir voru 1568.

nánar
 

17.2.2005 : Minningarkort Samtaka um kvennaathvarf

Samtök um kvennaathvarf vilja benda á að hægt er að senda út minningarkort til aðstandenda í nafni samtakanna. Hægt er að hafa samband við Þórlaugu Jónsdóttur á skrifstofunni í síma 561 3720 eða í gegnum tölvupóst: thorlaug@kvennaathvarf.is.
 

14.2.2005 : Hjálparsími Rauða krossins með þemaviku um heimilisofbeldi

Í dag hefst þemavika Hjálparsíma Rauða krossins: 1717 sem ber yfirskriftina ?Heimilisofbeldi: í víðasta skilningi þess orðs?.

Áhersla verður lögð á að fá þá sem búa við heimilisofbeldi og ekki síst þá sem beita því til að hringja í 1717 og fá ráðleggingar og stuðning við að rjúfa þögnina og reyna að stíga skref til að komast út úr vítahringnum.

 

14.2.2005 : Lagabreytingar og uppstilling fyrir aðalfund

Fyrir aðalfundi Samtaka um kvennaathvarf liggja tillögur um uppstillingu í stjórn samtakanna og breytingar við lög þeirra. nánar
 

10.2.2005 : Boðað til aðalfundar Samtaka um kvennaathvarf

Samtök um kvennaathvarf halda aðalfund þann 24. febrúar í Norræna húsinu milli klukkan fimm og sjö. Ásamt hefðbundnum aðalfundastörfum mun Ingólfur V. Gíslason, starfsmaður Jafnréttisstofu halda erindi um verkefnið Karlar til ábyrgðar. Sjá nánar dagskrá aðalfundarins.
 

9.2.2005 : Lítill skilningur á nauðsyn Neyðarmóttöku

Í fyrirspurnartíma á Alþingi þann 9. febrúar innti Ágúst Ólafur Ágústsson þingmaður, heilbrigðisráðherra eftir því hvort til stæði að stofa sérhæfða neyðarmóttöku fyrir þolendur heimilisofbeldis og tryggja henni fjármagn. Því miður báru svör heilbrigðisráðherra ekki vott um skilning á málinu og svaraði hann því beinlínis til að ekki væri ástæða fyrir meiri sérhæfingu en nú þegar er. nánar
 

7.2.2005 : Mansal

Stöðugt berast okkur fréttir af mansali á konum og börnum í heiminum en þessi glæpastarfsemi fer yfir öll landamæri og Ísland er þar ekki undanskilið. Hér á eftir fylgir frétt frá Íslandsdeild Amnesty International sem sýnir vel hversu vandamálið er alvarlegt og nauðsynlegt að taka á því af hörku. nánar
 

2.2.2005 : Aðalfundur Samtaka um kvennaathvarf

Stefnt er að því að halda aðalfund Samtaka um kvennaathvarf þann 24. febrúar í Norræna húsinu. Ásamt hefðbundnum aðalfundastörfum mun Ingólfur V. Gíslason, starfsmaður Jafnréttisstofu flytja erindi um verkefnið Karlar til ábyrgðar. Aðalfundurinn verður nánar auglýstur síðar.
 

24.1.2005 : Beitir þú konu/kærustu þína ofbeldi?

Þeim mun fleiri af þessum spurningum sem þú svarar játandi þeim mun meiri hætta er á að þú beitir konu/kærustu þína ofbeldi. Ef þú kannast við sjálfan þig í mörgum atriðum verður þú að fá aðstoð fagaðila.
 

19.1.2005 : Konur gegn limlestingu

Nýverið var stofnaður hópur hér á landi sem berst gegn limlestingu á kynfærum kvenna. Á heimasíðunni má nálgast skýrslur um þessa birtingamynd ofbeldis og skrá sig sem stuðningsaðila við málstaðinn.
 

17.1.2005 : Umsögn vegna banns á limlestingu á kynfærum kvenna

Samtök um kvennaathvarf hafa ritað umsögn við frumvarp um bann við limlestingu á kynfærum kvenna, en þetta er breyting á almennum hegningarlögum. Sérstaklega ánægjulegt er að flutningsmenn frumvarpsins eru formenn allra þingflokka og ætti því að nást samstaða um að samþykkja frumvarpið og gefa þannig skilaboð um að slíkt ofbeldi gegn konum verði ekki liðið hér á landi. Umsögninga má nálgast hér.
 

12.1.2005 : Satt og logið um ofbeldi karla gegn konum

Á meðfylgjandi lista hefur þú tækifæri til að meta viðhorf þín til kynbundins ofbeldis og horfast í augu við fordóma tengdum þeim. Listinn lýsir algengum ranghugmyndum um ofbeldi karla gegn konum og er tekinn saman af systursamtökum Samtaka um kvennaathvarf í Svíþjóð - ROKS. nánar
 

6.1.2005 : Aldrei fleiri komur í Kvennaathvarfið en 2004

Á síðasta ári voru skráðar komur í Kvennaathvarfið 531 og hafa aldrei verið fleiri frá stofnun Samtaka um kvennaathvarf árið 1982. Til samanburðar voru skráðar komur 388 árið á undan. Tekin voru 443 stuðningsviðtöl og eru þá ótalin viðtöl við dvalarkonur. 88 konur dvöldu í húsinu á síðasta ári og 52 börn en alls voru dvalardagarnir 1568. Símtöl í neyðarsíma Kvennaathvarfsins 561 1205 voru 1612 og var þar einnig um fjölgun að ræða frá árinu á undan. Hver koma kvennanna í athvarfið er skráð þannig að á bakvið tölurnar sem gefnar eru upp getur sama kona verið að koma oftar en einu sinni. Nánar er fjallað um tölfræðina í ársskýrslu Samtaka um kvennaathvarf sem væntanleg er í mars/apríl. nánar
 

4.1.2005 : Góðar gjafir á jólunum

Samtök um kvennaathvarf þakkar þeim fyrirtækjum og einstaklingum sem mundu eftir kvennaathvarfinu um jólin. Athvarfinu bárust matargjafir, drykkjarföng, sælgæti, bækur og leikföng og lagðist þetta á eitt að skapa réttu jólastemmninguna yfir hátíðarnar. Að öðrum ólöstuðum ber að nefna hönnunarfyrirtækið Zetor sem styrkti Kvennaathvarfið, í stað þess að senda jólakort, um 30.000 krónur.
 

 

Leita á vefnum


 

Póstlisti

Skráning á póstlista.

Vinsamlegast athugaðu að netfangið sé rétt slegið inn.


 


þetta vefsvæði Byggir á Eplica

 

efnisyfirlit síðunnar


þetta vefsvæði byggir á eplica. eplica heimasiðugerðheimasiðugerð - nánari upplýsingar á heimasíðu eplica.