Fréttir
Komið að körlunum
Síðustu tvo mánuði hafa karlar í Svíþjóð verið aðsópsmiklir í baráttu gegn kynbundu ofbeldi. Þetta byrjaði í bæ norðarlega í landinu sem heitir Piteå en hreyfingin hefur nú náð fótfestu í fjölda bæja og telur hundruði manna. Sérstaklega eru íþróttafélög og menningargeirinn farin að láta til sín taka.
Langtímamarkmiðið er að breyta viðhorfum og vinna á dægurmenningunni sem hlutgerir konur og ýtir undir kynbundið ofbeldi. Piteå mennirnir leggja metnað sinn í að vera góðar fyrirmyndir og hafa samið ávarp til sænskra karlmanna sem allir eru hvattir til að hengja upp heima hjá sér og á vinnustöðum.
Í ávarpinu eru karlar hvattir til að rjúfa þögnina þegar aðrir karlar sýna kvenfyrirlitningu, nota niðurlægjandi kynbundin orð og segja niðrandi brandara um konur. Þeir eru hvattir til að vera góðar fyrirmyndir fyrir börnin sín og þora að setja þeim takmörk og byggja upp heilbrigð lífsviðhorf. Þá er lagt til að karlar taki frumkvæði að því að mynda hópa til að ræða hvernig best verði barist gegn kynbundnu ofbeldi og sömuleiðis að láta það ekki afskiptalaust ef vitað er af ofbeldi gegn konum.
Í þessari baráttu hafa karlar skrifað fjölda greina sem eru ætlaðar til lestrar fyrir aðra karla þar sem allir eru hvattir til að sýna ábyrgð og taka frumkvæði í baráttunni gegn ofbeldi.
Oftar sem áður eru Svíar í fararbroddi fyrir jafnrétti kynjanna og vonandi er þetta vísir að því sem koma skal hér á landi. Það er svo sannarlega þörf á því.
