Beina leið á efnisyfirlit þessarar síðu

Fréttir

Styrktartónleikar Amnesty International

8.12.2004

Á alþjóðlega mannréttindadaginn 10. desember heldur Íslandsdeild Amnesty International tónleika kl. 20.30 í Neskirkju við Hagatorg. Miðaverð er kr. 1.500 og eru miðar seldir í verslun Skífunnar við Laugarveg og á skrifstofu Amnesty að Hafnarstræti 15. Ágóðinn af tónleikunum rennur óskiptur til mannréttindastarfs Amnesty International en samtökin hafa skilgreint ofbeldi gegn konum sem útbreiddasta mannréttindabrot okkar tíma.

Eins og áður hefur deildin fengið einvala lið listamanna til liðs við sig. Á tónleikunum koma fram Ragnheiður Gröndal söngkona, Gunnar Kvaran sellóleikari, Elísabet Waage hörpuleikarai og hornleikarar úr Sinfóníuhljómsveit Íslands þau Joseph Ognibene, Anna Sigurbjörnsdóttir, Þorkell Jóelsson og Emil Friðfinnsson. Á tónleikunum verða meðal annars flutt verk eftir C.Saints-Saëns, G.Fauré, L.Boccherini, J.Massenet, W.H.Squire, J.S.Bach og Eugéne Bozza, Ragnheiði Gröndal, Magnús Eiríksson, Jóhann G. Jóhannsson og Ingibjörgu Þorbergs.

Tónleikar Amnesty International á mannréttindadaginn eru orðnir fastur liður á aðventunni og fólk sameinar stuðning við mikilvægt málefni góðri stund með fallegri tónlist.

Til baka, Senda grein, Prenta greinina

 

 

Leita á vefnum


 

Eldri fréttir


Póstlisti

Skráning á póstlista.

Vinsamlegast athugaðu að netfangið sé rétt slegið inn.


 


þetta vefsvæði Byggir á Eplica

 

efnisyfirlit síðunnar


þetta vefsvæði byggir á eplica. eplica heimasiðugerðheimasiðugerð - nánari upplýsingar á heimasíðu eplica.