Fréttir
Tónleikar til styrktar Konukoti
Nýverið var opnað í Reykjavík næturathvarf fyrir heimilislausar konur - Konukot. Sunnudagskvöldið 5. desember nk. verða haldnir tónleikar á Hótel Borg til styrktar athvarfinu. Húsið mun opna kl. 20:00, miðaverð er kr. 1.500 og eftirfarandi listamenn koma fram: KK, Ragnheiður Gröndal, Erpur Eyvindarson, Pollockbræður, Davíð Jóhannsson, Margrét Eir, Geir Harðarson, Jóna Palla, Valur Gunnarsson og Hilmar Garðarsson. Allir sem koma að tónleikunum gefa vinnu sína og allur ágóði af þeim rennur til reksturs athvarfsins.
Konukot er næturathvarf fyrir heimilislausar konur en mikil vöntun hefur verið á slíku athvarfi. Athvarfið er rekið af Reykjavíkurdeild Rauða kross Íslands en Félagsþjónustan í Reykjavík lagði til rekstursins húnsæði að Eskihlíð 4. Athvarfið verður opið á milli kl. 21:00 á kvöldin og 10:00. Þar er þvotta- og hreinlætisaðstaða fyrir næturgesti og boðið er upp á létta máltíð.
