Beina leið á efnisyfirlit þessarar síðu

Fréttir

Fæstum finnst nóg að gert

30.11.2004

Í haust hafa verið starfandi sjálfboðaliðar hjá Kvennaathvarfinu í samstarfi við Reykjavíkurdeild Rauða krossins og Félagsvísindadeild Háskóla Íslands. Sjálboðaliðarnir hafa unnið að ýmsum verkefnum, meðal annars til kynningar á Kvennaathvarfinu. Eitt af því er könnun á viðhorfum til Kvennaathvarfsins og þekkingu á þeirri starfsemi sem þar fer fram.

Á félagsfundi Samtaka um kvennaathvarf þann 29. nóvember voru kynntar helstu niðurstöður könnunarinnar og kom þar meðal annars fram að um 23% aðspurðra þekkja einhverja sem hefur leitað til Kvennaathvarfsins. Þegar spurt var hvort samfélagið gerði nóg til að berjast gegn ofbeldi gegn konum svöruðu 82% því neitandi en aðeins 3% játandi. Margir höfðu orðið varir við umfjöllun um athvarfið í fjölmiðlum undanfarið, eða tæp 40%. Það var sérstaklega ánægjulegt að 94% aðspurðra höfðu jákvætt viðhorf til starfseminnar, 5% hlutlaust, en aðeins 1% neikvætt. Ennfremur töldu langflestir aðspurðra, eða 92% að ofbeldismenn á Íslandi ættu að fá einhverja aðstoð/meðferð við sínum vanda.

Sjáflboðaliðarnir sem framkvæmdu könnunina, Arnrún Sveinsdóttir, Bryngerður Bryngeirsdóttir, Ingibjörg Þórðardóttir og Sólveig Sigurðardóttir eiga hrós skilið fyrir framtakið sem nýtist vel í kynningu á málefninu og starfi athvarfsins. 

Könnunin verður birt í heild sinni hér á heimasíðunni eftir áramót.

Til baka, Senda grein, Prenta greinina

 

 

Leita á vefnum


 

Póstlisti

Skráning á póstlista.

Vinsamlegast athugaðu að netfangið sé rétt slegið inn.


 


þetta vefsvæði Byggir á Eplica

 

efnisyfirlit síðunnar


þetta vefsvæði byggir á eplica. eplica heimasiðugerðheimasiðugerð - nánari upplýsingar á heimasíðu eplica.