Fréttir
Óvenjuleg tískusýning á vegum Amnesty
Næsta laugardag, 27. nóvember, klukkan 15.00 mun Amnesty International á Íslandi standa fyrir óvenjulegri tískusýningu, svonefndri ?áverkasýningu? í Iðu, Lækjargötu.
Þær koma fram í fötum frá Spútnik og Rögnu Fróða. Meðan sýningarstúlkurnar ganga fram mun kynnir lesa upp úr íslenskum dómsmálum um heimilisofbeldi og sýningarstúlkurnar verða farðaðar eftir áverkalýsingum úr þeim dómsmálum. Þær munu tala í stað kvennanna sem urðu fyrir þessu ofbeldi. Undirspilið verða hljóð sem þolendur heimilisofbeldis þekkja of vel, sírenur, högg og brothljóð.
Sýningin er haldin sem hluti af 16 daga átaki gegn kynbundnu ofbeldi er stendur yfir frá 25. nóvember til 10. desember.
Á sýningunni verða áverkar heimilisofbeldis, sem sjaldnast eru sýnilegir, dregnir fram í dagsljósið og brotinn sá þagnarmúr, sem umkringir þetta samfélagsvandamál.
