Beina leið á efnisyfirlit þessarar síðu

Fréttir

Dómsmálaráðherra hugar að lagabreytingum

9.11.2004

Þær umræður sem hafa verið í samfélaginu undanfarið um kynbundið ofbeldi og viðbrögð við því hafa náð inn í þingsal Alþingis. Tvær fyrirspurnir hafa borist dómsmálaráðherra, önnur frá Ágústi Ólafi Ágústssyni og hin frá Kolbrúnu Halldórsdóttur. Ágúst óskaði upplýsinga um skráningu heimilisofbeldis hjá lögregluembættum og fjölda tilkynntra mála en Kolbrún innti dómsmálaráðherra eftir því hvort lagabreytinga væri að vænta á löggjöf er snýr að heimilisofbeldi.

Í svari dómsmálaráðherra við fyrirspurn Ágústs kemur fram að „Í löggjöf hér á landi er ekki að finna ákvæði sem skilgreinir brot sem heimilisofbeldi eða hvenær beri að flokka háttsemi með þeim hætti. Af þessu leiðir að hugtakið heimilisofbeldi er ekki notað í gögnum lögreglu, ákæruvalds eða dómstóla sem formleg skilgreining á broti“. Því er ekki til samantekt yfir þau brot sem falla undir það sem er kallað heimilisofbeldi og erfitt að segja til um fjölda mála síðustu 10 ár eins og fyrirspyrjandi innti eftir. Þetta svar rennir stoðum undir þá skoðun að viðurkenna verði heimilisofbeldi í lögum, m.a. til að hægt sé að átta sig á umfanginu og hvernig þessum málum lyktar hjá lögrelgu, ríkissaksóknara og fyrir dómstólum.

Fyrirspurn Kolbrúnar svaraði dómsmálaráðherra á þann veg að í dómsmálaráðuneytinu hafi verið unnið að fjölmörgum skýrslum um málið og ýmislegt náð fram að ganga úr þeim skýrslum sem birtust 1998 með tillögum um breytingar. Nú væri enn hugað að inntaki almennra hegningarlaga og laga um meðferð opinberra mála er snerta heimilsiofbeldi. Sérstaklega er starfsfólk ráðuneytisins að athuga verklagsreglur um kvaðningu réttargæslumanns fyrir fórnarlömb heimilisofbeldis. Þessu ber að fagna og vonandi veit þetta á skjótar og góðar breytingar til að styrkja stöðu kvenna sem verða fyrir kynbundnu ofbeldi.

Til baka, Senda grein, Prenta greinina

 

 

Leita á vefnum


 

Póstlisti

Skráning á póstlista.

Vinsamlegast athugaðu að netfangið sé rétt slegið inn.


 


þetta vefsvæði Byggir á Eplica

 

efnisyfirlit síðunnar


þetta vefsvæði byggir á eplica. eplica heimasiðugerðheimasiðugerð - nánari upplýsingar á heimasíðu eplica.