Fréttir
Neyðarmóttaka vegna kynbundins ofbeldis
Sú endurskoðun á lögum sem nauðsynleg er snýr ekki bara að hegningarlögunum heldur einnig að lögum um nálgunarbann, sem ekki hafa reynst nógu árangursrík, skaðabótalögum og lögum um meðferð opinberra mála til að tryggja megi konum réttargæslumann sem verða fyrir ofbeldi af hendi nákomins manns. Þau lönd sem hafa tekið alvarlega á málum er snerta kynbundið ofbeldi hafa ekki einungis breytt lagarammanum heldur einnig bætt félagsleg úrræði og reynt að hafa áhrif á umræðu og vitund um kynbundið ofbeldi með auglýsingaherferðum og fræðslu meðal fagfólks.
Við verðum trekk í trekk vitni að þeim alvarlegu afleiðingum sem ofbeldi karla gegn konum getur haft og því hversu léttvægt er tekið á þeim málum er rata til dómstóla. Almenningi er nóg boðið – nú er tími til aðgerða.
Þegar Neyðarmóttaka vegna nauðgunar var stofnuð fyrir um ellefu árum síðan var það mikil réttarbót fyrir fórnarlömb nauðgunar. Þar er hægt að fá þverfaglega aðstoð lækna, hjúkrunarfræðinga, lögfræðinga, félagsráðgjafa og sálfræðinga og hefur móttakan vakið athygli víða um lönd fyrir gott starf. Í stað þess að vega að móttökunni með lækkun fjárframlaga væri nær að viðurkenna mikilvægi starfsins og víkka það út svo konur er verða fyrir ofbeldi af hendi maka geti sótt í svipaða þjónustu. Hluti af félagslegum úrræðum gæti líka verið að endurvekja verkefnið Karlar til ábyrgðar sem er meðferð fyrir ofbeldismenn. Í framhaldinu má velta því fyrir sér hvort möguleiki eigi að vera á því að dæma karla er beita konur ofbeldi til meðferðar.
Kynbundið ofbeldi er ein af verstu birtingamyndum kynjamisréttis og ekkert bendir til þess að ástandið sé að lagast. Við getum alla vega verið viss um að það lagist ekki af sjálfu sér og ágætis byrjun væri að viðurkenna það í lögum að ofbeldið er til og gefa skýr skilaboð um að það verði ekki liðið frekar en aðrir glæpir.
