Beina leið á efnisyfirlit þessarar síðu

Fréttir

Glæpur og refsileysi

Ofbeldi í skjóli heimilisins

11.10.2004

Íslandsdeild Amnesty International, Mannréttindaskrifstofa Íslands og Kvennaathvarfið efna til málþings í Norræna húsinu fimmtudaginn14. október. Málþingið hefst kl. 17 og stendur í rúma tvo klukkutíma. Á málþinginu verður skoðað hvernig málum er varða heimilisofbeldi er háttað hér á landi. Velt verður upp spurningunni hvort litið er á heimilisofbeldi sömu augum og annað ofbeldi og kannað hvort réttarkerfið hafi sömu úrræði gegn heimilisofbeldi og öðru ofbeldi. Einnig verður  fjallað um reynslu og aðkomu lögreglunnar að slíkum brotum.

Frummælendur eru Brynhildur Flóvenz lögfræðingur og Gunnleifur Kjartansson, lögreglufulltrúi. Auk þeirra munu Drífa Snædal, fræðslu- og framkvæmdastýra Kvennaathvarfsins fjalla um ofbeldið af sjónarhóli þess, og Jóhanna K. Eyjólfsdóttir, framkvæmdastjóri Íslandsdeildar Amnesty International greina frá alþjóðlegu átaki AI gegn ofbeldi á konum.

Guðrún D. Guðmundsdóttir, framkvæmdastjóri Mannréttindaskrifstofu Íslands, stýrir umræðum.

Ofbeldi á heimilum er útbreitt, víðtækt og falið vandamál. Ofbeldi gegn konum hefur verið lýst sem mesta mannréttindahneyksli okkar tíma og ljóst er að fáir ofbeldismenn svara til saka vegna slíkra brota. Tilgangur málþingsins er að kanna hvernig þessum málum er háttað hér á landi og hvaða leiðir eru færar til að koma í veg fyrir refsileysi slíkra brota.

Málþingið er opið öllum og aðgangur ókeypis.  

Til baka, Senda grein, Prenta greinina

 

 

Leita á vefnum


 

Póstlisti

Skráning á póstlista.

Vinsamlegast athugaðu að netfangið sé rétt slegið inn.


 


þetta vefsvæði Byggir á Eplica

 

efnisyfirlit síðunnar


þetta vefsvæði byggir á eplica. eplica heimasiðugerðheimasiðugerð - nánari upplýsingar á heimasíðu eplica.