Fréttir
Sameinuðu þjóðirnar ávíta íslensk stjórnvöld fyrir að taka vægt á ofbeldi gegn konum
Í skýrslu Eftirlitsnefndar Sameinuðu þjóðanna með framfylgd alþjóðasamnings um efnahagsleg, félagsleg og menningarleg réttindi er hart deilt á íslensk stjórnvöld fyrir að taka ofbeldi gegn konum ekki föstum tökum. Orðrétt segir í skýrslunni: ?The Committee expressed its surprise at light punishments given to perpetrators of violence against women and suggested that Iceland accordingly amend its penal code?.
Það vekur því furðu á alþjóðavettvangi að ofbeldismenn hljóta væga dóma, ef dæmt er yfir höfuð í málum þeirra. Þarna taka Sameinuðu þjóðirnar undir með íslenskum kvenréttindasamtökum að víða er pottur brotinn og endurskoða þurfi löggjöf okkar í heild sinni með tilliti til þeirrar þekkingar sem við búum yfir í dag um ofbeldi gegn konum. Það eina sem er að finna í íslensku hegningarlögunum um heimilisofbeldi er 191. gr. (19/1940) en þar segir:
„Ef nokkur misbýður með stórfelldri vanrækslu eða móðgunum eiginkonu sinni eða eiginmanni, barni sínu eða öðru barni eða ungling undir 18 ára aldri, sem hann hefur til umsjónar eða fósturs, eða manni, sem er skyldur honum eða tengdur í beinan legg upp á við, þá varðar það fangelsi allt að 2 árum“.
Þarna er talað um vanrækslu og móðganir og erfitt að heimfæra það á þann veruleika sem við þekkjum, enda er greinin sama sem dauð og ekkert notuð ef um ofbeldi af hendi maka er að ræða.
Í þeim tilvikum þar sem ofbeldi karla gegn konum nær í dómssal er stuðst við ákvæði um líkamsmeiðingar og eru það sömu ákvæði og dæmt er eftir ef einhver beitir ókunnugan ofbeldi. Það er þó alveg ljóst að þegar um heimilisofbeldi er að ræða er andlegt ofbeldi mikið og kúgun í skjóli heimilisins. Þetta verða lögin að fanga og sannarlega kominn tími til að líta ofbeldi á heimilum alvarlegum augum og gefa skýr skilaboð um að það hefur afleiðingar í för með sér og verður ekki liðið hér á landi.
