Fréttir
Samstarf við Rauða krossinn og Háskóla Íslands
Verkefnið er unnið í samvinnu við félagsráðgjöf við Háskóla Íslands undir handleiðslu Steinunnar Hrafnsdóttur og er sjálfboðastarfið hluti af námi fólks við deildina. Að öllu jöfnu fara sjálfboðaliðarnir út úr húsi með börnin. Hvað þau gera er samkomulagsatriði í hvert sinn í samráði við börnin, mæður og starfsfólk Kvennaathvarfsins. Þetta getur verið ferð í Kringluna eða Smáralind, bíóferð, ferð í Húsdýragarðinn eða Kolaportið, sund og þar fram eftir götunum og veltur einnig á því sem í boði er í bænum hverju sinni.
Starfsfólk Kvennaathvarfsins hlakkar mikið til samstarfsins en svipað verkefni var í gangi fyrir nokkrum árum og gafst vel.
