Fréttir
Menntun fagfólks og meðferð kynferðisbrotamála
Við sem allar látum okkur kynbundið ofbeldi varða á einhvern hátt, höfum tekið höndum saman um að halda eins dags námsstefnu nú í september um menntun þeirra fagstétta sem oftast koma að kynferðisbrotamálum.
Hjá Stígamótum, Neyðarmóttökunni, Kvennaathvarfinu og Kvennaráðgjöfinni höfum við of mörg dæmi um kynferðisbrotamál sem ekki fá viðundandi meðferð. Stundum heyrum við dæmi um slíkt í fjölmiðlum, en oftast veit þjóðin ekkert af því hvernig þessi mál eru meðhöndluð. Við höfum þá tilgátu að ástæðan fyrir því að ekki er tekið nógu vel á málum sé sú, að fagstéttir þyrftu meiri menntun í þessum málaflokki og skýrar starfsreglur skorti til þess að fara eftir. Þess vegna veigrar fólk sér of oft við því að bregðast við og kýs að leiða hjá sér grun um alvarleg brot. Í stað þess að óskapast yfir stöðunni ætlum við að bregðast við á uppbyggilegan hátt.
Við bjóðum til okkar mikilvægustu áhrifavöldum í skólakerfinu. Menntamálaráðherra mun opna námsstefnuna og Guðrún Agnarsdóttir verður náðstefnustjóri. Á námsstefnunni verður leitast við að gefa innsýn í hvað námskrár ólíkra menntastofnanna segja um kynbundið ofbeldi, hvernig þeim er fylgt eftir og hvernig tryggja megi að kynbundið ofbeldi sé á dagskrá á sem flestum námsbrautum. Kynnt verða dæmi um aðgerðaráætlanir og starfsreglur á vinnustöðum þegar upp koma kynferðisbrotamál. Samtökin sem að ráðstefnunni standa munu jafnframt kynna hugmyndabanka að fyrirlestrum og fyrirlesurum um þennan málaflokk.
Markmiðið með verkefninu er að hreyfa við menntakerfinu með jákvæðum hætti og auka vitundina um umfang kynbundins ofbeldis og þá ábyrgð sem á fagfólki hvílir að bregðast rétt við. Von okkar er sú að þessum málaflokki verði gerð góð skil í menntun fagfólks þannig að það verði betur í stakk búið til þess að veita góða þjónustu. Skilningur þeirra og liðsinni getur skipt sköpum um heilsu og farsæld þeirra sem beittir eru ofbeldi.
