Fréttir
Blátt áfram - björt framtíð
Blátt áfram er verkefni sem systurnar Svava og Sigríður Björnsdætur komu af stað í samvinnu við Ungmennafélag Íslands til að efla forvarnir vegna kynferðislegs ofbeldis á börnum. Á vefsíðunni www.blattafram.is má finna upplýsingar um verkefnið, tilurð þess og markmið, en einnig er hægt að leggja sitt af mörkum með því, meðal annars, að senda áskorun til ráðamanna um að fyrningarfrestur í kynferðisafbrotamálum verði afnuminn.
