Fréttir
Ályktun um vændisfrumvarp
Breið samstaða hefur náðst innan kvennahreyfingarinnar og víðar um vændisfrumvarpið svokallaða en mikilvægt er að frumvarpið fái góða umfjöllun og afgreiðslu á þessu þingi sem er að ljúka. Til að þrýsta á um að svo verði hafa 15 samtök, embætti og þjónustur sent frá sér ályktun um mikilvægi málsins.
Þeir aðilar sem undirrita ályktunina eru:
- Samtök um kvennaathvarf
- Stígamót
- Femínistafélag Íslands
- Prestur innflytjenda
- Kvenréttindafélag Íslands
- Kvennaráðgjöfin
- Tímaritið Vera
- Kvennakirkjan
- V-dagssamtökin
- Kvenfélagasamband Íslands
- Bríet - félag ungra feminista
- Unifem á Íslandi
- Landssamband Framsóknarkvenna
- Neyðarmóttaka vegna nauðgana
- Samtök kvenna af erlendum uppruna á Íslandi
