Beina leið á efnisyfirlit þessarar síðu

Fréttir

Evrópuverkefni um erlendar konur

17.5.2004

Um helgina var haldinn lokafundur Evrópuverkefnis um erlendar konur sem verða fyrir heimilisofbeldi. Þetta var verkefni til eins árs og voru Stígamót þátttakendur fyrir Íslands hönd en það er í höndum Samtaka kvenna af erlendum uppruna á Íslandi og Samtaka um kvennaathvarf að halda umræðunni lifandi og vinna verkefnið áfram hér á landi.

Þátttakendur í verkefninu voru samtök frá Íslandi, Noregi, Danmerku og Þýskalandi og var tilgangur þess að efla umræðu í þessum löndum og bæta stöðu erlendra kvenna sem verða fyrir ofbeldi. Þá var einnig unnið ötullega í hverju landi fyrir sig að koma upp tengslaneti þeirra aðila sem hafa með málaflokkinn að gera eins og ráðuneytin, útlendingastofnun, lögregla og fleiri.

Verkefni sem framundan eru hér á landi hljóta að snúast um að koma upplýsingum til erlendra kvenna um réttindi þeirra, mennta fólk innan stofnana til að taka á þessum málum, móta stefnu fyrir framtíðar löggjöf, vinna tölfræði og styðja við rannsóknir á þessu sviði. Meira verður fjallað um árangur verkefnisins og framtíðarsýn þegar lokaskýrslan kemur út í sumar.

Til baka, Senda grein, Prenta greinina

 

 

Leita á vefnum


 

Póstlisti

Skráning á póstlista.

Vinsamlegast athugaðu að netfangið sé rétt slegið inn.


 


þetta vefsvæði Byggir á Eplica

 

efnisyfirlit síðunnar


þetta vefsvæði byggir á eplica. eplica heimasiðugerðheimasiðugerð - nánari upplýsingar á heimasíðu eplica.