Fréttir
Ársskýrslan komin á netið
Alls dvöldu 73 konur í athvarfinu á síðasta ári og 59 börn en árið áður komu 55 konur til dvalar og 41 barn. Konur dvöldu að meðaltali lengur í athvarfinu árið 2003 en 2002, og fjölgaði dvalardögum kvenna og barna úr 741 í 1501 dag á milli ára. Viðtölum fækkaði úr 380 árið 2002 í 315 árið 2003 en þá eru ótalin þau viðtöl sem voru tekin við konur sem dveljast í húsinu. Sama konan getur komið oftar en einu sinni í dvöl eða viðtal og á bak við samtals 388 komur í húsið eru 230 konur.
Flestar kvennanna sem til Kvennaathvarfsins leita nefna stuðning og andlegt ofbeldi sem ástæðu fyrir komu. Fleiri konur fengu aðstoð vegna líkamlegs ofbeldis, ofsókna og hótana á síðasta ári en árið á undan. Í flestum tilvikum er það konan sjálf sem hringir og fær aðstoð en einnig er algengt að annar fjölskyldumeðlimur, fagaðilar eða vinir hringi og leiti upplýsinga og aðstoðar.
Yfirgnæfandi meirihluti kvennanna sem komu í athvarfið á síðasta ári eru búsettar á höfuðborgarsvæðinu eða 82%. Algengast er að þær séu á aldrinum 26-40 ára en sú elsta var 86 ára og sú yngsta 13 ára. Ávallt er haft samband við barnaverndaryfirvöld þegar um svo unga konu er að ræða. Erlendar konur eru um 7-11% þeirra sem koma í Kvennaathvarfið. Við gerð skýrslunnar var sérstakur gaumur gefinn að aðstæðum erlendra kvenna en sú athugun gaf ekki tilefni til að ætla að þær væru frábrugnar aðstæðum annarra kvenna í athvarfinu.
Oftast er sá sem ofbeldinu beitir núverandi maki en undanfarin ár hefur færst í vöxt að konur leiti aðstoðar vegna ofbeldis fyrrum maka.
Í skýrslunni er gert grein fyrir markmiðum Samtaka um kvennaathvarf árið 2004 en þess ber að geta að samtökin telja brýna þörf á lagaúrbótum varðandi heimilisofbeldi. Engin lög eru til sem taka sérstaklega á heimilisofbeldi en fullt tilefni er til að endurskoða almennu hegningarlögin með tilliti til sérstöðu mála er varða kynbundið ofbeldi. Sú sérstaða felst í nánum tengslum við ofbeldismann, því andlega ofbeldi sem konur verða fyrir í ofbeldissamböndum og þeirri staðreynd að ofbeldið á sér oft stað innan veggja heimilisins þar sem fólk á að vera öruggt ef allt er með felldu.
