Fréttir
Heimilisofbeldi á Spáni
Þessi frétt hljómaði á Ríkisútvarpinu í dag: Spænska dagblaðið El Mundo beinir nú athygli sinni að heimilisofbeldi á Spáni. 68 konur létust eftir árásir eiginmanna sinna eða unnusta í fyrra. Árið á undan voru þær 53.
Menn óttast reyndar að tala þeirra kvenna sem eiginmenn myrtu sé mun hærri en 68. Mörg dauðsföll á heimilum flokkast ekki með morðum eða manndrápum vegna ofbeldis þar eð orsök mannslátsins er ekki alveg ljós og þar með eru tilvikin greind sem óljós þótt mjög sterkur grunur leiki á að það hafi einmitt verið um ofbeldisverk að ræða. Ofbeldisfullar konur myrtu 15 karla, eiginmenn, unnusta eða fyrrverandi eiginmenn.
Blaðið El Mundo hefur tekið höndum saman við spænsku Kvennastofnunina og nú er reglulega greint frá ofbeldisverkum á heimilum þar sem lögregla hefur verið kölluð til. Blaðið nafngreinir ofbeldisfulla heimilisfeður og tilgreinir hvar þeir búa. Síðastliðið föstudagskvöld voru fimm árásir á konur tilgreindar víðsvegar um Spán. Þrír mannanna sem í hlut áttu eru nafngreindir. Þeir eru á aldrinum 26 til 48 ára. Árásirnar áttu sér stað í Zaragossa, Málaga, Palma á Mallorca, Las Palmas á Kanaríeyjum og í Toledo. Þessu til viðbótar greinir blaðið frá því að konur hafi verið myrtar á Tenerife, í Algeciras og í Bilbao. Spænska kvennastofnunin aflar nú fanga víða að um ofbeldi gegn konum. Stofnunin hefur meðal annars verið í sambandi við íslensk yfirvöld og fengið upplýsingar um slíka glæpi hér á landi.
