21.12.2004
:
GLEÐILEG JÓL

Samtök um kvennaathvarf óskar öllum gleðilegra jóla og farsældar á nýju ári. Við sendum þeim konum og börnum sem hafa komið til okkar sérstaklega óskir um góða framtíð og velunnurum þökkum við stuðninginn á árinu.
Eftir að konur hafa barist gegn kynbundnu ofbeldi í áratugi er núna komið að körlunum. Ef lesnir eru dómar og löggjöfin má ætla að karlar séu upp til hópa stjórnlausir og hafi lögverndað vald til að misþyrma konum. Þetta sést á dómum þar sem virt er körlum til refsilækkunar að þeir hafi misst stjórn á sér og vændislögin gefa körlum fulla heimild til að kaupa sér aðgang að konum í þeim tilgangi að misnota þær. Er það nema von að körlum misbjóði þessi mynd sem dregin er upp af þeim? Hér á landi er kominn vísir að karlahreyfingu sem vill berjast gegn þessum staðalímyndum og gegn kynbundnu ofbeldi. Annars staðar er karlahreyfingin komin mun lengra og er skýrasta dæmið Piteå-mennirnir í Svíþjóð.
nánar
10.12.2004
:
Áskorun til stjórnvalda
Þann 10. desember, alþjóðlega mannréttindaginn, lýkur 16 daga átaki fjölda samtaka sem láta sig varða kynbundið ofbeldi. Af því tilefni var áskorun gegn ofbeldi gegn konum afhent forseta hæstaréttar, forsætisráðherra og forseta Alþingis. Áskorunina má lesa
hér.
Á alþjóðlega mannréttindadaginn 10. desember heldur Íslandsdeild Amnesty International tónleika kl. 20.30 í Neskirkju við Hagatorg. Miðaverð er kr. 1.500 og eru miðar seldir í verslun Skífunnar við Laugarveg og á skrifstofu Amnesty að Hafnarstræti 15. Ágóðinn af tónleikunum rennur óskiptur til mannréttindastarfs Amnesty International en samtökin hafa skilgreint ofbeldi gegn konum sem útbreiddasta mannréttindabrot okkar tíma.
nánar
3.12.2004
:
Nauðsyn lagasetningar gegn kynbundnu ofbeldi
Mánudaginn 6. desember munu þau samtök sem standa að
16 daga átaki gegn kynbundnu ofbeldi hér á landi boða til málfundar. Ætlunin er að ræða nauðsyn lagasetningar gegn kynbundnu ofbeldi. Framsögur flytja þingfulltrúarnir: Ágúst Ólafur Ágústsson, Jónína Bjartmarz og Kolbrún Halldórsdóttir en í kjölfarið verða fyrirspurnir og umræður. Fundurinn er haldinn milli klukkan tólf og hálf tvö í stofu 101 í Odda.
Nýverið var opnað í Reykjavík næturathvarf fyrir heimilislausar konur - Konukot. Sunnudagskvöldið 5. desember nk. verða haldnir tónleikar á Hótel Borg til styrktar athvarfinu. Húsið mun opna kl. 20:00, miðaverð er kr. 1.500 og eftirfarandi listamenn koma fram: KK, Ragnheiður Gröndal, Erpur Eyvindarson, Pollockbræður, Davíð Jóhannsson, Margrét Eir, Geir Harðarson, Jóna Palla, Valur Gunnarsson og Hilmar Garðarsson. Allir sem koma að tónleikunum gefa vinnu sína og allur ágóði af þeim rennur til reksturs athvarfsins.
nánar
Í haust hafa verið starfandi sjálfboðaliðar hjá Kvennaathvarfinu í samstarfi við Reykjavíkurdeild Rauða krossins og Félagsvísindadeild Háskóla Íslands. Sjálboðaliðarnir hafa unnið að ýmsum verkefnum, meðal annars til kynningar á Kvennaathvarfinu. Eitt af því er könnun á viðhorfum til Kvennaathvarfsins og þekkingu á þeirri starfsemi sem þar fer fram.
nánar
29.11.2004
:
Munið fundinn í dag
Samtök um kvennaathvarf boða til opins fundar í dag milli klukkan fimm og sjö að Vesturgötu 7. Þar mun Sigríður Halldórsdóttir, prófessor greina frá rannsóknum sínum í erindinu: ?Tæring hjartans - reynsla kvenna af tilfinningalegu ofbeldi?. Ennfremur verður kynnt könnun á viðhorfi og vitneskju um Kvennaathvarfið sem nemendur í félagsráðgjöf við HÍ unnu.
Næsta laugardag, 27. nóvember, klukkan 15.00 mun Amnesty International á Íslandi standa fyrir óvenjulegri tískusýningu, svonefndri ?áverkasýningu? í Iðu, Lækjargötu.
nánar
24.11.2004
:
Morgunverðarfundur UNIFEM
Fimmtudaginn 25. nóvember verður árlegur morgunverðarfundur UNIFEM haldinn á Hótel Loftleiðum kl. 8:00-10:00. Þar fjallar Gréta Gunnarsdóttir, lögfræðingur um jafnréttismál á vettvangi Sameinuðu þjóðanna og Dr. Sólveig Anna Bóasdóttir fjallar um ofbeldi gegn konum út frá guðfræðilegri siðfræði. Þá mun Sturla Sigurjónsson, skrifstofustjóri alþjóðaskrifstofu utanríkisráðuneytisins ávarpa fundinn.
Á fundinum verður hleypt af stokkunum 16 daga átaki gegn kynbundnu ofbeldi sem UNIFEM á Íslandi hefur forgöngu um í samstarfi við fjölda annarra aðila.
UNIFEM á Íslandi mun þennan sama dag standa fyrir hádegisfundi í Háskólanum á Akureyri. Þar mun Birna Þórarinsdóttir, framkvæmdastýra UNIFEM á Íslandi, kynna starfssemi þróunarsjóðsins og fjalla um átak gegn kynbundnu ofbeldi. Lilja Hjartardóttir, varaformaður UNIFEM á Íslandi, flytur erindi þar sem hún reifar helstu baráttumál kvenna á alþjóðavettvangi. Fundurinn verður haldinn í stofu 103 í Sólborg, Háskólanum á Akureyri og hefst kl. 12:05.
23.11.2004
:
Opinn félagsfundur SUK á mánudaginn
Í tilefni af
16 daga átakinu gegn kynbundnu ofbedi boða Samtök um kvennaathvarf til
opins félagsfundar mánudaginn 29. nóvember að Vesturgötu 7 milli klukkan fimm og sjö. Sigríður Halldórsdóttir prófessor mun halda fyrirlesturinn ?Tæring hjartans - reynsla kvenna af tilfinningalegu ofbeldi?, og kynna þar rannsóknarniðurstöður sínar. Ennfremur verður kynnt könnun á viðhorfi og vitneskju um Kvennaathvarfið sem nemendur í félagsráðgjöf við HÍ unnu.
22.11.2004
:
16 daga átak gegn kynbundnu ofbeldi
Fimmtudaginn 25. nóvember hefst
16 daga átak gegn kynbundnu ofbeldi. Átakið er alþjóðlegt en hér á landi taka 17 samtök, sem láta sig málið varða, þátt í því, þar á meðal Samtök um kvennaathvarf. Dagsetning átaksins, frá 25. nóvember, alþjóðlegum baráttudegi gegn kynbundnu ofbeldi, til 10. desember, hins alþjóðlega mannréttindadags, var valin til að tengja á táknrænan hátt kynbundið ofbeldi og mannréttindi. Tímasetningin var einnig valin til að leggja áherslu á mannréttindabrotin sem felast í slíku ofbeldi. Á þessum sextán dögum verða fjölda viðburða til að vekja athygli á málstaðnum og má náglast dagskrána
hér. Markmið átaksins er að knýja á um afnám alls kynbundins ofbeldis.
17.11.2004
:
Konukot í Eskihlíðinni
Þessa dagana er verið að opna næturathvarf fyrir heimilislausar konur í Reykjavík. Athvarfið nefnist Konukot og er starfrækt í Eskihlíð 4 fyrir tilstuðlan Reykjavíkurdeildar Rauða kross Íslands. Lengi hefur verið þörf fyrir athvarf af þessu tagi og fagna Samtök um kvennaathvarf framtakinu. Kvennaathvarfið hefur verið starfrækt í 22 ár og er hugsað fyrir konur og börn sem eru að flýja ofbeldi eða vinna sig út úr slíkum aðstæðum. Kvennaathvarfið er ekki ætlað fyrir konur sem eru heimilislausar og oft falla þær milli skips og bryggju í kerfinu, sérstaklega ef um neyslu vímuefna er að ræða. Samtök um kvennaathvarf óska konum til hamingju með þetta nýja úrræði og vonum við að gæfa fylgi starfi Konukots.
15.11.2004
:
Fórnarlamba- og vitnavernd
Samtök um kvennaathvarf hafa sent Alþingi
umsögn sína um
frumvarp Kolbrúnar Halldórsdóttur um fórnarlamba- og vitnavernd.
12.11.2004
:
Þingsályktun um lagaákvæði um heimilisofbeldi
Ágúst Ólafur Ágústsson þingmaður hefur ásamt þingflokki Samfylkingarinnar lagt fram
þingsályktun um að setja eigi lagaákvæði um heimilisofbeldi. Í fréttatilkynningu vegna þessa segir: ?Heimilisofbeldi er eitt algengasta mannréttindabrot í heiminum en hvergi er minnst á heimilisofbeldi í íslenskri löggjöf og það er hvergi skilgreint. Það má því segja að heimilisofbeldi séu týndur brotaflokkur í kerfinu. Nú er dæmt eftir mjög mörgum ólíkum lagaákvæðum fyrir heimilisofbeldi sem þó eru ekki fullnægjandi að því varðar heimilisofbeldi?. Þingsályktunartillöguna má nálgast
hér.
Þær umræður sem hafa verið í samfélaginu undanfarið um kynbundið ofbeldi og viðbrögð við því hafa náð inn í þingsal Alþingis. Tvær fyrirspurnir hafa borist dómsmálaráðherra, önnur frá Ágústi Ólafi Ágústssyni og hin frá Kolbrúnu Halldórsdóttur. Ágúst óskaði upplýsinga um skráningu heimilisofbeldis hjá lögregluembættum og fjölda tilkynntra mála en Kolbrún innti dómsmálaráðherra eftir því hvort lagabreytinga væri að vænta á löggjöf er snýr að heimilisofbeldi.
nánar
8.11.2004
:
Jafnréttisráðstefna á Akureyri
Næstu helgi verður haldin ráðstefna á vegum Jafnréttisstofu á Akureyri undir heitinu ?Conference on Gender, Environment and Societal Development in West Nordic and Arctic Countries?. Ráðstefnan verður haldin að Borgum við Norðurslóð á Akureyri og hefst laugardaginn 13. nóvember klukkan hálf tíu og lýkur á hádegi næsta dag. Sérstaklega verður fjallað um ofbeldi gegn konum í málstofu á laugardagsmorgun klukkan ellefu. Þar verða fyrirlesarar frá Færeyjum, Grænlandi, Íslandi og Kanada. Dagskrá ráðstefnunnar má nálgast
hér.
Í Fréttablaðinu frá 4. nóvember síðastliðnum er viðtal við Gunnleif Kjartansson hjá ofbeldisbrotadeild lögreglunnar, þar sem hann viðrar þá skoðun sína að stofna beri neyðarmóttöku vegna heimilisofbeldis líkt og starfrækt er vegna nauðgunar. Þetta er ekki í fyrsta sinn sem hugmyndin er rædd en sífellt bætast fleiri raddir í hópinn sem þrýsta á að eitthvað verði gert. Þá tekur Gunnleifur líkt og fleiri undir þá skoðun, sem ríkjandi er meðal fólks sem verða vitni að afleiðingum kynbundins ofbeldis, að endurskoða þurfi lög er snerta slíkt ofbeldi.
nánar
Andlegt ofbeldi er eitt af þeim hugtökum sem er oft farið frjálslega með án þess að skilningur fylgi. Andlegt ofbeldi karla gagnvart konum verður þegar
sjálfsmynd konunnar fer að brotna niður og maður nýtir sér það sem stjórntæki. Stjórnunin felst þá í því að maðurinn hefur meiri áhrif á líðan, hegðun og skoðanir konunnar en hún sjálf. Margar konur sem koma í Kvennaathvarfið búa við andlegt ofbeldi jafn sem líkamlegt og kynferðislegt en þó að sár utan á líkamanum gróa fljótt gróa ósýnileg ör andlegs ofbeldis seint. Fleiri konur leita stuðnings hjá Kvennaathvarfinu vegna andlegs ofbeldis en líkamlegs og er það til marks um hversu alvarlegt það getur verið.
nánar

Fimmtán félagasamtök stóðu að athöfn á Arnarhóli fimmtudaginn 28. október þar sem misrétti gegn konum sem verða fyrir ofbeldi var jarðað á táknrænan hátt. Á annað hundrað manns tóku þátt í athöfninni en Jóhanna K. Eyjólfsdóttir, framkvæmdastjóri Íslandsdeildar Amnesty International, flutti stutta tölu og að henni lokinni lagði fólk rósir við legstein sem á var ritað: Hér hvílir Jóna Jóns - hún reitti hann til reiði. Ávarp Jóhönnu er hér birt í heild sinni.
nánar
Undrirrituð samtök og aðilar boða til táknrænnar athafnar á Arnarhóli, fimmtudaginn 28. október klukkan fimm. Þar verður gerð tilraun til að jarða það misrétti sem konur hafa í gegnum tíðina orðið fyrir af hálfu réttarkerfisins hérlendis svo horfa megi til betri tíma og réttlætis til handa konum. Tilefnið er nýfallinn dómur Héraðsdóms Reykjaness þar sem refsingu var frestað þar sem konan átti að hafa kallað ofbeldi yfir sig. Þessi dómur er því miður ekki eina dæmi um skilningsleysi og misrétti réttarkerfisins gagnvart konum.
nánar
Þriðjudaginn 19. október 2004 féll
dómur í Héraðsdómi Reykjaness sem hefur verið nokkuð til umfjöllunar í fjölmiðlum. Dómurinn hefur vakið athygli t.d. fjölmiðla fyrir að vera ómur úr fortíðinni og lýsa viðhorfum sem almennt var talið að kvennabaráttu síðustu áratuga hefði tekist að uppræta. Málavextir eru þannig að kona kærir Kjartan Ólafsson fyrir gróft ofbeldi gegn sér og telst það sannað. Hins vegar er Kjartan ekki dæmdur til neinnar refsingar ef hann heldur skilorð í þrjú ár og er ýmislegt talið honum til tekna. Í fyrsta lagi er greint frá því að sambúð kæranda og Kjartans hafi verið stormasöm án þess að komið hafi til kæru áður. Í öðru lagi er sagt að Kjartan hafi lagt hendur á konuna ?í mikilli bræði og hníga gögnin frekar að því að kærandi kunni að hafa valdið því?. Hennar sök er að Kjartan taldi hana hafa haldið fram hjá honum. Í þriðja lagi vill dómurinn meina að hann hafi ekki tekið mjög harkalega á henni og í fjórða lagi telst kæra seint fram komin og blandast kærumálið forræðisdeilu.
nánar
Í öllum umræðum um Kvennaathvarfið kemur alltaf upp spurningin: Hvað með karla sem eru beittir ofbeldi? Hvert fara þeir og hvaða úrræði eru í boði fyrir þá? Yfirleitt er því svarað á þann veg að Kvennaathvarfið er sprottið upp úr kvennahreyfingunni og hugsað sem athvarf fyrir konur og börn en ekki karla. Ef þörf er á karlaathvarfi þurfa karlar einfaldlega að taka sig til og stofna slíkt en það getur varla verið á ábyrgð kvenna. Það er einfaldlega ekki samræmanlegt að reka athvarf fyrir bæði kynin undir sama húsþaki. Í svarinu felst að auðvitað eru til karlar sem verða fyrir ofbeldi og það skal taka það fram að ofbeldi er aldrei réttlætanlegt sama hver verður fyrir því. Það er hins vegar ekki að ástæðulausu sem talað er um kynbundið ofbeldi og úrræði við því en samfélagsmeinið sem kvennaathvarfskonur takast á við hvern dag er einmitt ofbeldi karla gegn konum og það má ekki missa sjónar af því vandamáli.
nánar
Fimmtudaginn 14. október var haldið málþingið Glæpur og refsileysi í Norræna húsinu að tilstuðlan Amnesty, Mannréttindaskrifstofunnar og Samtaka um kvennaathvarf. Ætlunin var að skoða lagarammann og ferli heimilisofbeldismála og reyna að komast niður á einhverja lausn. Til máls tóku Jóhanna K. Eyjólfsdóttir frá Amnesty, Gunnleifur Kjartansson lögreglufulltrúi, Brynhildur Flóvenz lögfræðingur og Drífa Snædal frá Samtökum um kvennaathvarf. Greinilegt var að mikill áhugi er á málinu og var vel mætt bæði af fagfólki, stjórnmálafulltrúum, stjórnvöldum og konum sem höfðu orðið fyrir heimilisofbeldi og miðluðu af reynslu sinni.
nánar
Íslandsdeild Amnesty International, Mannréttindaskrifstofa Íslands og Kvennaathvarfið efna til málþings í Norræna húsinu fimmtudaginn14. október. Málþingið hefst kl. 17 og stendur í rúma tvo klukkutíma. Á málþinginu verður skoðað hvernig málum er varða heimilisofbeldi er háttað hér á landi. Velt verður upp spurningunni hvort litið er á heimilisofbeldi sömu augum og annað ofbeldi og kannað hvort réttarkerfið hafi sömu úrræði gegn heimilisofbeldi og öðru ofbeldi. Einnig verður fjallað um reynslu og aðkomu lögreglunnar að slíkum brotum.
nánar
5.10.2004
:
Sjálfshjálparhópar í gang
Á fimmtudaginn hefur fyrsti sjálfshjálparhópurinn um langt skeið göngu sína og koma þar saman konur til að styrkja sig og miðla af reynslu sinni. Sjálfshjálparhópar hafa ekki verið starfandi í Kvennaathvarfinu í mörg ár heldur hefur í staðinn verið opið hús á fimmtudagskvöldum. Þar sem opna húsið hefur ekki verið nýtt sem skyldi var ákveðið að breyta því og koma á skipulögðum sjálfshjálparhópum. Hóparnir eru lokaðir og þarf að skrá sig sérstaklega. Fyrsti hópurinn er fullskipaður en fastlega má búast við að fleiri hópar fylgi í kjölfarið. Hægt er að skrá sig í sjálfshjálparhóp í síma 561 1205 og verður haft samband þegar næsti hópur fer í gang.
5.10.2004
:
Úr athvarfinu
Á fyrstu níu mánuðum ársins höfðu 66 konur komið í dvöl í Kvennaathvarfið og 43 börn. Dvalardagarnir voru þá samtals orðnir 1231. Þetta er töluverð fjölgun frá því á sama tíma í fyrra en þá höfðu komið 55 konur og 37 börn en dvalardagarnir voru 936 á sama tímabili. Einnig hefur viðtölum fjölgað á milli ára, en fram að síðustu mánaðarmótum höfðu verið tekin 277 viðtöl við konur sem eru ekki í dvöl í húsinu á móti 247 á sama tíma í fyrra. Þessi aukning stafar ekki endilega af aukningu ofbeldis á landinu heldur frekar af því að konur nýti sér úrræðin sem fyrir hendi eru frekar vegna almennrar umræðu og betri vitneskju um hvað aðstoð er að fá. Fjölmiðlar hljóta að fá sérstakt hrós fyrir að sýna baráttunni gegn ofbeldi gegn konum þá athygli sem nauðsynleg er til að hægt sé að auka vitund og vinna á vandanum.
?Geta ofbeldisfullir eiginmenn verið góðir feður?? spyr Maria Eriksson í ritgerð sinni
Í skugga pabba sem hún varði í kynjafræði við Háskólann í Gautaborg. Hún tók viðtöl við mæður sem höfðu sætt ofbeldi af hendi eiginmanna sinna og fagaðila sem koma að skilnuðum og forræðisdeilum. Hún komst að þeirri niðurstöðu að í forræðisdeilum í Svíþjóð er ekki tekið tillit til þess hvort maðurinn hafi beitt maka sinn ofbeldi og því er talið að menn geta verið góðir feður þó þeir beiti konur ofbeldi. Ekki er tekið tillit til rannsókna sem sýna meðal annars tengsl á milli ofbeldis gegn konum og ofbeldis gegn börnum, þar með talið sifjaspell.
nánar
Í byrjun mánaðarins var haldin hin árlega ráðstefna norrænna kvenna gegn ofbeldi. Að þessu sinni var hún í Kristinasand í Noregi og komu þar saman tæpleg 200 baráttukonur frá samtökum kvennaathvarfa og öðrum samtökum sem berjast gegn kynbundu ofbeldi undir yfirskriftinni: Heimur án ofbeldis karla gegn konum - frá hugsjón til veruleika. Á næsta ári verður ráðstefnan haldin hér á landi. Erindi frá ráðstefnunni má nálgast á
heimasíðu norsku samtakanna um kvennaathvörf. Ályktun ráðstefnunnar er svohljóðandi á norsku.
nánar
Í skýrslu Eftirlitsnefndar Sameinuðu þjóðanna með framfylgd alþjóðasamnings um efnahagsleg, félagsleg og menningarleg réttindi er hart deilt á íslensk stjórnvöld fyrir að taka ofbeldi gegn konum ekki föstum tökum. Orðrétt segir í skýrslunni: ?The Committee expressed its surprise at light punishments given to perpetrators of violence against women and suggested that Iceland accordingly amend its penal code?.
nánar
22.9.2004
:
Fyrirlestrar um kynbundið ofbeldi
Í tengslum við námstefnuna síðasta föstudag hefur verið komið upp banka af fyrirlestrum og fyrirlesurum um kynbundið ofbeldi. Gerð hefur verið tilraun til að safna saman þekkingu á málefninu frá ólíkum hliðum og faggreinum. Fyrirlestrabankann má nálgast hér til vinstri.
14.9.2004
:
Dagskrá námstefnu á föstudaginn
Hér má sjá dagskrá námstefnu um kynbundið ofbeldi sem verður haldin í Kennaraháskóla Íslands næstkomandi föstudag kl 9-15. Lögð verður áhersla á menntun fagstétta um kynbundið ofbeldi og viðbrögð við því.
Á síðasta ársfundi Samtaka um kvennaathvarf flutti Brynhildur Flóvenz, lögfræðingur erindi um hvernig berjast megi gegn heimilisofbeldi innan lögfræðinnar og um beitingu nálgunarbanns. Hér er erindið birt í heild sinni.
nánar
9.9.2004
:
Umræður um heimilisofbeldi í Kastljósinu
Í kjölfar myndarinnar Ofbeldisseggur sem sýnd var á Ríkissjónvarpinu í gærkvöldi verða umræður um heimilisofbeldi í Kastljósinu í kvöld.
7.9.2004
:
Ofbeldisseggurinn
Annað kvöld mun Sjónvarpið sýna myndina Ofbeldisseggurinn, eða Vexator eins og hún heitir á frummálinu. Um er að ræða leikna, sænska mynd um ofbeldi inni á heimilinu og sýnir hún glöggt ferli ofbeldissambands, hvernig maður beitir konu valdi og kúgun og hvaða afleiðingar það hefur. Myndin er sýnd klukkan 20:50 og hvetjum við öll sem tök hafa á að fylgjast með.
Um miðjan september hefst samstarf Kvennaathvarfsins við Rauða krossinn og Háskóla Íslands um sjálfboðaliðastarf til að sinna þeim börnum sem koma með mæðrum sínum í Kvennaathvarfið. Sjálfboðaliðar munu koma á laugardögum í vetur og gera eitthvað skemmtilegt með börnum sem dvelja í athvarfinu eða hafa dvalið þar. Markmiðið er að létta börnum dvölina í athvarfinu með markvissu félagsstarfi og sömuleiðis létta undir með mæðrunum.
nánar
Þann 17. september næstkomandi standa Stígamót, Kvennaathvarfið, Neyðarmóttaka vegna nauðgana, Kvenfélagasamband Íslands, Kvennaráðgjöfin, Kvenréttindafélagið og Öryggisráð Feministafélags Íslands fyrir námsstefnu undir heitinu Menntun fagfólks og meðferð kynferðisbrotamála í Kennaraháskólanum við Stakkahlíð klukkan 9-15. Dagskrána má nálgast
hér.
nánar
27.8.2004
:
Skráning í samtökin
Kvennaathvarfið er rekið af félagasamtökum, Samtökum um kvennaathvarf, sem voru stofnuð árið 1982. Allar götur síðan hefur athvarfið getað reitt sig á félaga og aðra sem hafa lagt okkur lið. Góð leið til að leggja sitt af mörkum í baráttunni gegn heimilisofbeldi og öðru kynbundnu ofbeldi er að skrá sig í samtökin en það er hægt
hér. Þá minnum við félaga á að greiða félagsgjöldin sem eru 1.500 krónur á ári og hægt er að greiða inn á reikning: 101-26-43227. kennitalan er 410782-0229.
25.8.2004
:
Sagan af teppinu góða

Svo lengi sem elstu starfskonur Kvennaathvarfsins muna hefur afar fallegt teppi prýtt veggi hússins, en listaverkið ber heitið ?ávextir?. Eins og myndin gefur til kynna er teppið handsaumað með mynd af tré þar sem ávextirnir eru tölur sem seldar voru til styrktar athvarfinu árið 1992. Höfundur listaverksins er Margrét Valgerðardóttir, en hún segir teppið lýsa samstöðu kvenna og litirnir lýsi margbreytileika þeirra kvenna sem í athvarfið sækja. Það tók Margréti og aðstoðarkonu hennar, Jóhönnu Þórarinsdóttur fimm mánuði að sauma teppið enda er það mikil listasmíð. Þegar vinnunni var lokið var leitað til félagasamtaka og fyrirtækja um styrk til að gefa Kvennaathvarfinu verkið og tóku Verkakvennafélagið Framsókn og Starfsmannafélagið Sókn vel í þá viðleitni. Listaverkið var svo formlega afhent Kvennaathvarfinu þegar það flutti að Öldugötu 11 árið 1992. Allar götur síðan hefur verkið notið mikillar athygli þeirra kvenna sem í húsið koma og gefið því hlýlegan og sterkan blæ.
20.8.2004
:
Söfnun til stuðnings börnum Sri Rahmawati
Nokkrir einstaklingar hafa tekið sig saman um að opna bankabók til stuðnings börnum Sri Rahmawati. Í Morgunblaðinu kemur fram að börnin verði í umsjá systur Sri, en ljóst sé að þegar þrjú börn bætast við á heimili kostar það mikla peninga. Í fréttatilkynningu frá aðstandendum söfnunarinnar stendur: ?Þá gefur að skilja að börnin þurfa góða aðhlynningu til að komast yfir erfiðleika síðustu mánaða. Stuningshópurinn hefur opnað bók í Múlaútibúi Landsbankans og geta þeir sem vilja létta undir með fjölskyldunni lagt inn á reikning með eftirfarandi númeri: 0139-05-64466 á kennitölu 130147-4109?
Dagana 13. og 14. ágúst s.l. var haldin hátíðarráðstefna í Turku í Finnlandi í tilefni af því að 10 ár eru nú liðin frá því að Nordic Forum ráðstefnan var haldin þar. Á sínum tíma tóku 15.000 einstaklingar þátt í ráðstefnunni og þar á meðal var mikill fjöldi þátttakenda frá Íslandi. Þema ráðstefnunnar voru þrjú: ofbeldi gegn konum, samþætting vinnu og fjölskyldulífs og í þriðja lagi völd og ákvarðanataka. Reynt var að gera sér grein fyrir því hvað hefði áorkast í þessum málaflokkum á þeim tíma sem liðinn er frá ráðstefnunni 1994.
nánar
Já, hvað segirðu var hún svona rosalega illa farin? Og hvernig var hægt að hjálpa henni? Hvað gerið þið fyrir konur sem verða fyrir ofbeldi? Hvað eru þær margar og hvaða úrræði eru fyrir hendi? Allt eru þetta mjög skiljanlegar spurningar og tíðar í eyrum þeirra kvenna sem starfa við það að aðstoða konur sem verða fyrir ofbeldi. Við svörum þessu af bestu getu, tökum saman tölfræði yfir þær konur sem til Kvennaathvarfsins leita og túlkum upplýsingar. Oft er þó talað um kynbundið ofbeldi sem náttúruhamfarir ? eitthvað sem bara gerist og enginn fær neitt við því ráðið. Við tökum á afleiðingunum og reynum að aðstoða konur sem fyrir því verða af fremsta megni. Heimilisofbeldi eru þó engar náttúruhamfarir og ekki einu sinni náttúrulögmál. Á bak við ofbeldið er alltaf einhver ofbeldismaður, einhver sem ber ábyrgðina og hefur valdið og stjórnina.
nánar
Nú eru hin hörmulegu örlög Sri Rhamawati ljós en því miður er saga hennar ekkert einsdæmi. Allt of margar konur sem koma hingað til landsins í leit að betra lífi lenda í klóm ofbeldismanna. Þetta er mjög viðkvæmt mál og ber að forðast alhæfingar eins og mögulegt er, en hins vegar er nauðsynlegt að viðurkenna staðreyndir til að geta gert eitthvað í málunum. Auðvitað eru flest hjónabönd íslenskra manna og erlendra kvenna byggð á gagnkvæmri virðingu og laus við ofbeldi. Sá mikli fjöldi erlendra kvenna sem leitar í Kvennaathvarfið vegna ofbeldis íslenskra karlmanna er hins vegar stórt áhyggjuefni.
nánar
5.8.2004
:
Sjálfshjálparhópar í haust
Undirbúningur er hafinn fyrir sjálfshjálparhópa Kvennaathvarfsins sem eru á dagskrá í haust. Tilgangurinn er að konur með svipaða reynslu af heimilisofbeldi að baki geti komið saman og styrkt hver aðra. Hóparnir verða á fimmtudagskvöldum klukkan níu og munu taka við Opnu húsi sem hefur verið starfrækt á þeim tíma hingað til. Dagskráin liggur ekki fyrir en byrjað er að taka við skráningum í síma 561 1205. Þar geta konur gefið upp nafn og símanúmer og þegar ljóst er hvenær hóparnir hefja göngu sína verður haft samband. Konur sem hafa búið við heimilisofbeldi eru hvattar til að nýta sér þessa áhrifaríku leið til sjálfshjálpar.
30.7.2004
:
Blátt áfram - björt framtíð
Blátt áfram er verkefni sem systurnar Svava og Sigríður Björnsdætur komu af stað í samvinnu við Ungmennafélag Íslands til að efla forvarnir vegna kynferðislegs ofbeldis á börnum. Á vefsíðunni
www.blattafram.is má finna upplýsingar um verkefnið, tilurð þess og markmið, en einnig er hægt að leggja sitt af mörkum með því, meðal annars, að senda áskorun til ráðamanna um að fyrningarfrestur í kynferðisafbrotamálum verði afnuminn.
Andrew R. Klein er bandarískur sérfræðingur í lögum um heimilisofbeldi og var staddur hér á landi í júlí. Í samvinnu við Bandaríska sendiráðið var honum boðið til fundar hjá Kvennaathvarfinu ásamt fulltrúum frá Stígamótum, dómsmála- og félagsmálaráðuneytunum og Alþjóðahúsi. Á fundinum var aðallega fjallað um nálgunarbann og áhrif þess ásamt vinnureglur lögreglunnar og mikilvægi þess hvernig viðbrögð konur fá þegar þær hyggjast kæra eða sækja um nálgunarbann.
nánar
Á vefritinu Deiglunni birtist nýlega grein eftir Þorbjörgu Gunnlaugsdóttur, laganema við HÍ, þar sem hún veltir því fyrir sér muninum á heimilisofbeldi og öðru ofbeldi. Greinin er í framhaldi af þeirri miklu umræðu sem verið hefur undanfarið um heimilisofbeldi, eðli þess, afleiðingar og hvernig beri að taka á þessu samfélagsmeini. Þorbjörg veitti leyfi til birtingar á greininni hér.
nánar
Þann 24. júní síðastliðinn gaf dómsmálaráðuneyti Noregs út aðgerðaráætlun í málum er snerta heimilisofbeldi. Aðgerðaráætlunin er fyrir næstu þrjú ár og er unnin í samstarfi barna- og fjölskylduráðuneytisins, heilbrigðisráðuneytisins, dómsmálaráðuneytisins og félagsmálaráðuneytisins. Útgangspunktur áætlunarinnar er að leggja ábyrgð á heimilisofbeldi á herðar ofbeldismönnum auk ábyrgðar samfélagsins á að koma auga á ofbeldið, vinna að forvörnum og aðstoða þá sem fyrir ofbeldinu verða. Áætluninni er skipt upp í fjóra hluta og alls eru talin upp 30 verkefni sem þarf að vinna að. Hvert atriði er tímasett og á ábyrgð ákveðinna stofnana að fylgja eftir.
nánar
30.6.2004
:
Úr athvarfinu
Heldur rólegt hefur verið yfir athvarfinu í júní og eru ýmsar kenningar uppi um hverju það sætir. Meðal kenningar eru að gott veður og Evrópumeistarakeppnin í fótbolta hafi þarna einhver áhrif. Reynsla undanfarinna ára hefur hins vegar sýnt að aðsókn í athvarfið fer hvorki eftir árstímum né öðrum utanaðkomandi þáttum heldur er tilviljanakennd og óútreiknanleg frá degi til dags.
Ef síðustu mánuðir eru skoðaðir í heild sinni kemur í ljós að fjórar konur dvelja hverju sinni í athvarfinu að meðaltali og 2-3 börn. Á árinu hafa komið 44 konur til dvalar með 33 börn. Dvalardagar kvenna eru orðnir 575 það sem af er árinu og barna 367. Alls eru því dvalardagar kvenna og barna 942 á fyrri helmingi ársins. Þarna er um töluverða fjölgun að ræða á milli ára því dagar barna og kvenna í dvöl á síðasta ári numu 1501 degi allt árið. Enn skal það ítrekað að aðsókn er mjög sveiflukennd en vissulega stefnir í fjölgun á milli ára. Varast skal að tengja fjölda kvenna í athvarfinu við tíðni heimilisofbeldis. Mun líklegra er að fjölgun stafi af aukinni umræðu í þjóðfélaginu og þar af leiðandi betri vitneskju kvenna af því úrræði sem Kvennaathvarfið er.
29.6.2004
:
Nordiske kvinner mot vold
Hin árlega ráðstefna Nordiske kvinner mot vold verður að þessu sinni haldin í Kristiansand í Noregi 3.-5. september. Yfirskriftin er: En verden uten menns vold mot kvinner - fra visjon til virkelighet? eða Veröld án ofbeldis karla gegn konum - frá hugsjón til veruleika? Á ráðstefnunni verða fjöldi athyglisverðra erinda frá konum sem eru framarlega í baráttunni gegn kynbundnu ofbeldi á Norðurlöndum og víðar. Ítarlega dagskrá og aðrar upplýsingar má nálgast
hér.
Þann 21. júní síðastliðinn kom út
skýrsla á vegum sænska landlæknisembættisins um áhrif breyttra vændislaga í Svíþjóð. Þessarar skýrslu hefur verið beðið með mikilli eftirvæntingu bæði í Svíþjóð og í þeim löndum sem hyggjast fara sömu leið og Svíar, en umræðan hérlendis hefur verið mikil og mun að öllum líkindum halda áfram í haust.
nánar
Dagana 10.-12. júní var haldin ráðstefnan Kvennahreyfingar, innblástur ? íhlutun ? irringar í Reykjavík. Þetta var ráðstefna fyrir fræðinga, fulltrúa félagasamtaka og stjórnmálafulltrúa svo eitthvað sé nefnt. Fjöldi málstofa var í boði og pallborðsumræður voru haldnar um mál er snerta konur og kvennahreyfingar. Ein af stærstu málstofunum fjallaði um ofbeldi karla gegn konum sem því miður er ennþá stórt vandamál hér á landi sem erlendis.
nánar
10.6.2004
:
Kvennahreyfingar um helgina
Í kvöld hefst norræn ráðstefna um kvennahreyfingar sem ber heitið Kvennahreyfingar - innblástur, íhlutun, irringar. Ráðstefnan er í Háskólabíói og er haldin á vegum norrænu rannsóknarstofunnar í kynjafræðum. Ásamt hópavinnu um mál er snerta kvennahreyfinguna í víðasta skilningi orðsins verða pallborðsumræður um áhrif kvennabaráttunnar með þátttöku norrænna sérfræðinga, aktívista og stjórnmálafulltrúa. Dagskrá ráðstefnunnar má nálgast
hér.
4.6.2004
:
Ofbeldi gagnvart barnshafandi konum
Lengi hefur verið viðurkennt að ólétta er einn af þeim þáttum sem eykur heimilisofbeldi ef því er beitt í sambandi á annað borð. Lítið hefur verið rannsakað hér á landi varðandi heimilisofbeldi og er full ástæða til að skoða áhættuþættina meðal annars með tilliti til barnsburðar. Nýlega birti The Guardian grein um þetta mál, en Bretar hafa gert könnun meðal ljósmæðra þar í landi um algengi ofbeldis gagnvart óléttum konum. Niðurstöður þessarar könnunar eru sláandi en um hana er fjallað í greininni:
My belly was the focus of his anger.
2.6.2004
:
Breytingar á stjórnun athvarfsins
Þann fyrsta júní lét Jóna Sigurlín Harðardóttir af störfum sem framkvæmdastjóri Kvennaathvarfsins en þeirri stöðu hefur hún gegnt frá árinu 1999. Starfi framkvæmdastjóra hefur í kjölfarið verið skipt upp og tekur sumt af því starfsfólki sem fyrir er aukna ábyrgð. Áfram munu Þórlaug Jónsdóttir og Drífa Snædal vinna á skrifstofunni, Þórlaug sem rekstrarstjóri og Drífa sem fræðslu- og framkvæmdastýra.
28.5.2004
:
Vændisfrumvarpi frestað
Nú er orðið ljóst að vændisfrumvarpið svokallaða sem gengur út á það að færa ábyrgð á vændi frá þeim sem selja sig yfir á kaupendur, verður ekki afgreitt fyrir þinglok. Þetta eru vissulega ákveðin vonbrigði fyrir þau sem hafa unnið ötullega að málinu en mikil umfjöllun hefur verið og vonandi næst breið samstaða um að taka það upp aftur á haustþingi. Þar með gæti Ísland orðið annað landið í heiminum til að breyta löggjöf um vændi í samræmi við þá þekkingu sem við búum yfir.
Breið samstaða hefur náðst innan kvennahreyfingarinnar og víðar um vændisfrumvarpið svokallaða en mikilvægt er að frumvarpið fái góða umfjöllun og afgreiðslu á þessu þingi sem er að ljúka. Til að þrýsta á um að svo verði hafa 15 samtök, embætti og þjónustur sent frá sér
ályktun um mikilvægi málsins.
nánar
19.5.2004
:
Fjölskylduvefur
Félagsmálaráðuneytið opnaði nýlega fjölskylduvefinn
fjolskylda.is. Á vefnum er að finna flest það sem kemur hinum ýmsu fjölskyldumynstrum við. Sérstaklega er fjallað um heimilisofbeldi en á vefnum má einnig finna upplýsingar um breytingar á fjölskylduhögum, húsnæði, félagsþjónustu og svo framvegis.
Um helgina var haldinn lokafundur Evrópuverkefnis um erlendar konur sem verða fyrir heimilisofbeldi. Þetta var verkefni til eins árs og voru Stígamót þátttakendur fyrir Íslands hönd en það er í höndum Samtaka kvenna af erlendum uppruna á Íslandi og Samtaka um kvennaathvarf að halda umræðunni lifandi og vinna verkefnið áfram hér á landi.
nánar
Fyrsti fundur nýrrar stjórnar var haldinn í gærkveldi og skipti stjórn þá með sér verkum.
nánar
6.5.2004
:
Opið hús í kvöld
Við minnum á opið hús í kvöld en á fimmtudagskvöldum hafa konur tækifæri til að koma í Kvennaathvarfið, styrkja hver aðra og eiga notarlega stund saman. Opna húsið er bæði fyrir konur sem hafa dvalið í athvarfinu, konur sem búa núna í athvarfinu eða konur sem eru eða hafa verið í viðtölum. Í kvöld verður fjallað sérstaklega um ábyrgð og frelsi. Nánari upplýsingar eru veittar í síma 561 1205. Einnig er hægt að nálgast dagskrá opins húss næstu mánuði
hér.
Vegna herferðar Amnesty international gegn kynbundnu ofbeldi hafa verið teknar saman tölur um ofbeldi gegn konum. Þessar tölur má nálgast á
heimasíðu samtakanna hér á landi.
nánar
26.4.2004
:
Námskeið fyrir konur á vegum kirkjunnar í kvöld
Þjóðkirkjan mun standa fyrir námskeiði ætlað konum sem orðið hafa fyrir ofbeldi næstu mánudagskvöld. Ætlunin er að halda námskeiðið í fjögur skipti og byggja það á sjálfshjálp og uppörvun kristinnar trúar. Fyrsti tími námskeiðsins verður í kvöld klukkan hálf sex til sjö að Laugarvegi 59 á fjórðu hæð þar sem Kvennakirkjan er með aðsetur. Námskeiðið er konum að kostnaðarlausu. Nánari upplýsingar fást hjá Kvennakirkjunni í síma
551 3934.
23.4.2004
:
Ný stjórn Samtaka um kvennaathvarf
Aðalfundur samtakannna var haldinn 21. apríl og var þar farið yfir starfsemi ársins 2003 og horft fram á veginn. Ný stjórn var kjörin en hana skipa:
Elín Sigurðardóttir
Guðrún Elín Jónsdóttir
Elísabet Hjaltadóttir
Sonja B. Jónsdóttir
Edda Linn Rise
Í varastjórn voru kjörnar:
Þórhildur Einarsdóttir
Tatjana Latinovic
Þær Tatjana og Edda eru nýjar í stjórn Kvennaathvarfsins.
21.4.2004
:
Aðalfundur Samtaka um kvennaathvarf í dag
Aðalfundur Samtaka um kvennaathvarf verður haldinn í dag klukkan 5-7 að Vesturgötu 7. Dagskráin verður með hefðbundnu sniði en eftir að aðalfundarstörfum lýkur mun Brynhildur Flóvenz, lögfræðingur, fjalla um nálgunarbann. Í kjölfarið verða almennar umræður og er félagsfólk hvatt til að mæta. Dagskrána má nálgast
hér.
Ársskýrsla Samtaka um kvennaathvarf fyrir árið 2003 er komin á vefinn og má nálgast hana
hér. Skýrslan er mikilvægt tæki til að upplýsa um heimilisofbeldi, birtingamyndir þess og afleiðingar. Í skýrslunni eru birtar tölfræðilegar upplýsingar um konur sem leita til athvarfsins ásamt því starfi sem unnið hefur verið í nafni samtakanna árið 2003. Þá eru einnig birt markmið samtakanna fyrir árið 2004 og tæpt á því sem er að gerast á öðrum vettvangi í baráttunni gegn heimilisofbeldi.
nánar
19.4.2004
:
Rafrænt fréttabréf SUK
Fyrsta rafræna fréttabréf Samtaka um kvennaathvarf var sent út fyrir helgi en ætlunin er að senda slíkt út á mánaðarfresti héðan í frá. Til þess að fá fréttabréfið er hægt að skrá sig á póstlistann hér til hliðar. Þessum miðli er ætlað að upplýsa fólk um heimilisofbeldi, kynna samtökin og stefnu þeirra. Fréttabréfið er einnig hægt að nálgast
hér.
Samtök um kvennaathvarf eru virkir umsagnaraðilar um frumvörp til laga sem snúa að kynbundu ofbeldi. Hér á
vef samtakanna er hægt að nálgast þessar umsagnir og kynnast þar með stefnunni.
nánar
16.4.2004
:
Ársskýrsla Samtaka um kvennaathvarf
Ársskýrsla Samtaka um kvennaathvarf fyrir árið 2003 verður kynnt á þriðjudag í næstu viku, þann 20. apríl. Haldinn verður blaðamannafundur um morguninn en um hádegið verður skýrslan komin á vefinn.
Í ársskýrlsunni er starfsemi athvarfsins kynnt, greint frá tölfræðilegum upplýsingum og markmið og stefna næsta árs skýrð.
Í dag var dreift á Alþingi
nýrri jafnréttisáætlun ríkisstjórnarinnar til fjögurra ára. Lögð er áhersla á afmörkuð verkefni og ber hvert ráðuneyti ábyrgð á ákveðnum verkefnum. Einkum eru þrjú verkefni innan áætlunarinnar sem snerta ofbeldisvarnir: Aðgerðir gegn mansali, Vernd vitna og þolenda afbrota og verkefnið Karlar til ábyrgðar.
nánar
Í dag var birt
skýrsla félagsmálaráðherra um stöðu framkvæmdaáætlunar ríkisstjórnarinnar til að ná fram jafnrétti kynjanna en ný framkvæmdaáætlun verður lögð fram fljótlega fyrir árin 2004-2008. Í skýrslunni er að finna ýmsar vísbendingar um hver áhersluatriði ríkisstjórnarinnar verður í jafnréttismálum næstu árin en þar á meðal er endurvakning verkefnisins Karlar til ábyrgðar.
nánar
Samtök um kvennaathvarf boða til aðalfundar miðvikudaginn 21. apríl 2004 í þjónustumiðstöð aldraðra að Vesturgötu 7 klukkan fimm til sjö.
nánar
31.3.2004
:
Umsögn um frumvarp
Samtök um kvennaathvarf hafa sent umsögn um
frumvarp Ágústs Ólafs Ágústssonar til Alþingis. Í frumvarpinu er lagt til að fyrningafrestur verði afnuminn í kynferðisbrotamálum þegar brot er framið gagnvart barni undir 14 ára aldri. Samtök um kvennaathvarf leggja til að frumvarpið verði samþykkt en jafnframt að endurskoðaður verði fyrningafrestur í málum er varða kynbundið ofbeldi yfir höfuð. Umsögnina í heild sinni má lesa
hér.
29.3.2004
:
Leggðu þitt af mörkum í herferð Amnesty
Herferð Amnesty International gegn ofbeldi gegn konum er í fullum gangi. Hægt er að nálgast upplýsingar um herferðina, lesa reynslusögur og sláandi staðreyndir um útbreiðslu ofbeldis gegn konum
hér. Einnig er hægt að rita undir stuðningsyfirlýsingu við herferðina og fá sendar reglulega upplýsingar um hana
Það sem af er þessum mánuði hafa fallið tveir dómar um heimilisofbeldi í Héraðsdómi Reykjavíkur. Í báðum tilvikum er um að ræða gróft líkamlegt ofbeldi en fremur sjaldgjæft er að konur kæri heimilisofbeldi og enn sjaldgæfara að til ákæru komi. Einungis um 7% kvenna sem leita til Kvennaathvarfsins kæra það ofbeldi sem þær hafa orðið fyrir.
nánar
Á vef
morgunblaðsins má lesa frétt þess efnis að 24 kvenráðherrar lýstu því yfir á vettvangi Sameinuðu þjóðanna að þær hyggjast skera upp herör gegn ofbeldi gagnvart konum. Í sameiginlegri yfirlýsingu kemur fram að ofbeldi gegn konum hafi ekki minnkað þrátt fyrir að áratugir eru síðan vandamálið var viðurkennt alþjóðlega.
nánar
Fimmtudaginn 18. mars munu V-dagssamtökin bjóða í bíó á myndina Searching for Angela. Myndin er sýnd klukkan sex í Regnboganum við Hverfisgötu og fjallar um kynbundið ofbeldi. Kvikmyndagerðarkonan Angela Shelton verður á sýningunni og tekur þátt í umræðum eftir sýningu.
nánar
Undanfarna daga hafa verið lögð fram þrjú frumvörp á Alþingi sem snerta réttarbætur gagnvart þeim sem eru beittir kynbundnu ofbeldi. Það eru þingmennirnir Ágúst Ólafur Ágústsson og Atli Gíslason sem leggja fram þessi frumvörp.
nánar
Í dag er alþjóðlegur baráttudagur kvenna og hefur svo verið síðan 1922, en árið 1910 lagði Clara Zetkin, baráttukona fyrir kvenfrelsi, fram tillögu þess efnis á alþjóðlegri kvennaráðstefnu í Kaupmannahöfn.
nánar
Í dag hefst alþjóðleg herferð Amnesty International, sem ber heitið "Í okkar höndum - endum ofbeldi gegn konum". Þetta verður helsta herferð Amnesty International næstu tvö árin.
nánar
Mikilvægur hluti starfsemi Samtaka um kvennaathvarf er að efla umræðu um heimilisofbeldi í samfélaginu en liður í því er að halda fyrirlestra og standa fyrir umræðum í framhaldsskólum.
nánar
Síðastliðinn laugardag var haldinn kynningarfundur Kjarks á Akureyri. Kjarkur eru sjálfshjálparsamtök þar sem fólk sem orðið hefur fyrir ofbeldi finnur vettvang til að miðla reynslu og styðja hvert annað.
nánar
23.2.2004
:
Munið opið hús í kvöld
Á fimmtudagskvöldum frá níu til ellefu er opið hús í Kvennaathvarfinu þar sem konur geta komið og spjallað saman, deilt reynslu sinni með öðrum konum og sótt stuðning hver hjá annarri. Dagskrána má nálgast
hér
23.2.2004
:
Fundur Kjarks á Akureyri
Laugardaginn næstkomandi, þann 28. febrúar verður haldinn kynningarfundur Kjarks á Akureyri. Kjarkur eru samtök sem skipuleggja sjálfshjálparhópa fyrir þá sem hafa lent í ofbeldi í hvaða mynd sem er þ.e.a.s. nauðgun, einelti, ofbeldi af hálfu foreldra í æsku og eða maka, sambýlismanns. Fundurinn verður haldinn í Glerárkirkju klukkan tvö. Á fundinum mun Drífa Snædal halda kynningu fyrir hönd Kvennaathvarfsins.
Norðmenn hafa nú fetað sömu slóð og Austurríkismenn gagnvart heimilisofbeldismönnum, þ.e. að veita heimild fyrir því í lögum að ofbeldismenn verði fjarlægðir af heimilum í stað þess að konurnar sem fyrir ofbeldinu verða þurfi að flýja.
nánar
Í kvöldfréttum ríkisútvarpsins í gærkveldi var enn sagt frá átaki gegn heimilisofbeldi á Spáni en þar er farin sú leið að tíunda oftar heimilisofbeldi í dagblöðum og nafngreina þá einstaklinga sem ábyrgð bera á því. Hér á landi eru ekki fyrirliggjandi nægjanlega góðar upplýsingar um umfang heimilisofbeldis en aðeins brot af þeim konum sem verða fyrir því leita til Kvennaathvarfsins.
nánar
Þessi frétt hljómaði á Ríkisútvarpinu í dag: Spænska dagblaðið El Mundo beinir nú athygli sinni að heimilisofbeldi á Spáni. 68 konur létust eftir árásir eiginmanna sinna eða unnusta í fyrra. Árið á undan voru þær 53.
nánar
Þann þriðja febrúar var heilbrigðisráðherra afhent bréf frá tólf kvennahreyfingum þar sem kallað er eftir pólitískri ábyrgð á Neyðarmóttöku vegna Nauðgana. Undir þetta bréf rita meðal annars Samtök um kvennaathvarf en bréfið fylgir hér.
nánar
26.1.2004
:
Ráðstefna um kvennahreyfingar
Dagana 10.-12. júní verður haldin norræn ráðstefna hér á landi undir heitinu Kvennahreyfingar, innblástur - íhlutun - irringar. Að ráðstefnunni standa Kvennasögusafn Íslands, Nordisk institutt for kvinne- og kjönnsforskning og Rannsóknarstofa í kvennafræðum við Háskóla Íslands. Allar upplýsingar um ráðstefnuna er að finna
Í gær sendu nokkur samtök sem láta sig málið varða, ályktun til stjórnar Landspítalans, Heilbrigðisnefndar Alþingis og Heilbrigðisráðherra vegna fyrirhugaðra breytinga á Neyðarmóttöku vegna nauðgana. Ályktunin er hér birt í heild sinni:
nánar
Í gærkveldi bárust fréttir af því að loka ætti neyðarmóttöku vegna nauðgana á Landspítalanum í Fossvogi. Þar hefur undanfarin ellefu ár verið tekið á móti fórnarlömbum nauðgana og þeim veitt nauðsynleg aðstoð. Mikil reynsla og þekking hefur mótast á þessum árum og er lokun móttökunnar dæmi um algert skilnings- og þekkingarleysi yfirvalda gagnvart alvarleika kynferðislegs ofbeldis.
nánar
Í desember lagði Kolbrún Halldórsdóttir fram
nánar
5.1.2004
:
Komur í athvarfið 2003
Í Kvennaathvarfinu býðst þrenns konar þjónusta; dvöl, símtöl í neyðarnúmer, og viðtöl sem eru konum að kostnaðarlausu. Á síðasta ári voru komur í Kvennaathvarfið alls 388. Þar af voru viðtöl 315 en 73 konur komu í dvöl í athvarfið. Konur sem komu til dvalar og höfðu börn með sér voru alls 39 en börnin voru 59 talsins. Símaþjónustan var mikið notuð sem fyrr og á árinu eru skráð 1402 símtöl í neyðarnúmerið. Nánari upplýsingar um umfang starfseminnar og nýtingu þjónustu Samtaka um Kvennaathvarf verður hægt að nálgast í ársskýrslu samtakanna.