Fréttir
Bretar breyta lögum um ofbeldisglæpi
Frumvarpinu er ætlað að taka á heimilisofbeldi en árlega deyja tvær konur á Bretlandi af völdum ofbeldis maka. Þá geta dómstólar skipað fyrir um nálgunarbann jafnvel þótt að viðkomandi sé sýknaður af ofbeldisglæp. Brot á nálgunarbanni varðar allt að fimm ára fangelsisvist. Forsætisráðherra Bretlands tilkynnti einnig við sama tækifæri að á næstu þrem árum hyggjast stjórnvöld verja 6,5 milljónum punda til að taka á heimilisofbeldi og sú nýbreytni verður tekin upp í Bretlandi að opna neyðarnúmer fyrir fórnarlömb heimilisofbeldis sem verður virkt allan sólarhringinn.
Í þessu sambandi má minna á neyðarnúmer Kvennaathvarfsins 561 1205 sem er alltaf opið.
