Beina leið á efnisyfirlit þessarar síðu

Fréttir

Afstaða löggunnar í Svíþjóð til vændislaganna

21.11.2003

Í gær hélt Thomas Ekman, yfirmaður teymis sem berst gegn vændi og verslun með konur í Svíþjóð, erindi á Grand hótel. Þar skýrði hann afstöðu og reynslu sænsku lögreglunnar af vændiskaupendalögunum.

Fram kom í máli hans að lögin sem gera það refsivert að kaupa vændi er eitt af mikilvægustu tækjum lögreglunnar til að berjast gegn verslun með fólk. Hann vitnaði í myndina Lilya 4-ever og sagði hana því miður vera dæmi um það sem sænska lögreglan þarf að kljást við. Það var einnig mjög athyglisvert að heyra Thomas segja frá samskiptum lögreglunnar við vændiskonur, en þar á milli er samstarf. Vændiskonurnar láta lögregluna stundum vita af tilvikum þar sem um mansal er að ræða eða konur eru neyddar til að stunda götuvændi. Forsenda fyrir því að slíkt samstarf geti átt sér stað er vitaskuld að vændiskonur og -menn eigi ekki yfir höfði sér ákæru ef lögreglan fréttir af starfseminni.

Að öðru leyti tók Thomas undir það sem íslenskar kvennahreyfingar hafa verið að segja síðustu vikur og ár: Það er engin kona sem velur það af fúsum og frjálsum vilja að stunda vændi. Flestar þeirra sjá sig sem fórnarlömb og stunda iðu sína vegna skorts á öðrum möguleikum.

Til baka, Senda grein, Prenta greinina

 

 

Leita á vefnum


 

Póstlisti

Skráning á póstlista.

Vinsamlegast athugaðu að netfangið sé rétt slegið inn.


 


þetta vefsvæði Byggir á Eplica

 

efnisyfirlit síðunnar


þetta vefsvæði byggir á eplica. eplica heimasiðugerðheimasiðugerð - nánari upplýsingar á heimasíðu eplica.