Fréttir
Vitnað um áhrif sænsku laganna
Í gær hélt Petra Östergren fyrirlestur um áhrif vændislaganna í Svíþjóð á vændiskonur. Petra kom einnig fyrir allsherjarnefnd Alþingis en hún er hér á landi í boði Sambands ungra sjálfstæðismanna. Á morgun mun svo Thomas Ekman, yfirmaður teymis sem sér um vændi og verlsun með konur innan lögreglunnar í Gautaborg, halda fyrirlestur í hádeginu á Grand hótel, en þau Petra eru ekki á eitt sátt um áhrif sænsku lagasetningarinnar í Svíþjóð.
Fyrirlestur Petru var mjög athyglisverður en hún berst fyrir réttindum vændiskvenna til að stunda iðju sína og fá hana viðurkennda sem atvinnugrein. Petra gengur reyndar svo langt að líkja baráttu vændiskvenna við réttindabaráttu samkynhneigðra. Í mastersritgerð sinni kemst hún að þeirri niðurstöðu að lögin um að kaupendur vændis sæti ábyrgð í stað vændisseljenda hafi haft slæm áhrif á konur sem selja sig. Kúnnarnir séu stressaðri, minni samskipti séu milli vændiskvennanna, kúnnarnir hafi meira vald yfir konunum o.s.frv. Þessar niðurstöður byggir hún á samtölum sínum við 15 konur, flestar sænskar, sem gáfu sjálfar kost á sér sem viðfangsefni rannsóknar. Petra fer ekki út í umræðuna um mansal og bauð ekki upp á aðrar lausnir en fyrir eru.
Þær forsendur sem Petra gefur sér eru að konur í vændi stundi iðju sína af fúsum og frjálsum vilja og í sumum tilvikum færi vændiskaup konum vald yfir karlmönnum. Þetta er í mikilli mótsögn við aðrar rannsóknir sem sýna að konur stunda vændi af illri nauðsyn og skort á öðrum möguleikum. Þeir sem kaupa kynlíf af annarri manneskju eru oftar en ekki að sækjast eftir þeirri tilfinningu að hafa vald yfir öðrum.
Petra leggur mikla áherslu á að lagasetningar sem varðar vændi séu unnar í samstarfi við vændiskonur og –karla, hún vill meina að það hafi ekki verið gert í Svíþjóð. Miklar umræður urðu eftir fyrirlestur Petru og sýndist sitt hverjum. Það er hins vegar langt síðan lagasetning fékk svona mikla umfjöllun og er hún til fyrirmyndar fyrir lýðræðisþjóðfélag. Þeir sem vilja taka þátt í umræðunni er bent á fyrirlestur Thomas Ekberg á morgun í hádeginu á Grand hótel.
