Fréttir
Húrra fyrir Dönum!
Þessi herferð verður stíluð sérstaklega inn á konur af erlendum uppruna í Danmörku en um 42% af konum sem sækja í dönsk kvennaathvörf eru innflytjendur. Þá á að leggja áherslu á að efla kvennaathvörfin, bæta sálfræðiþjónustu og huga sérstaklega að börnum sem verða vitni að ofbeldi. Einnig á að efla meðferðarúrræði fyrir þá karlmenn sem beita ofbeldi. Íslenska ríkisstjórnin mætti taka sér Dani til fyrirmyndar en rannsóknir hafa sýnt að hlutfall kvenna sem verður fyrir heimilisofbeldi á Íslandi er ekki minna en í nágrannalöndunum. Til kvennaathvarfsins á Íslandi leita þó ekki jafn margar konur af erlendum uppruna en á síðasta ári voru um 93% kvennanna sem leituðu aðstoðar íslenskar.
