Beina leið á efnisyfirlit þessarar síðu

Fréttir

18.12.2003 : Gegn verslun með konur

Þann 15. desember s.l. var haldinn fundur í Brussel á vegum samtakanna ENATW (European network against trafficing in women for sexual exploitation). Samtök um kvennaathvarf eru aðilar að ENATW og var Þórlaug Jónsdóttir rekstrarstjóri fulltrúi á fundinum. Nánari upplýsingar um fundinn og ENATW-samtökin er að finna í grein Þórlaugar hér á síðunni.
 

16.12.2003 : Heimilisofbeldi og vinnustaðir

Nálgast má grein um heimilisofbeldi og vinnustaði á vefnum www.hgj.is. Greinin er unnin af Drífu Snædal fræðslu- og kynningarstýru kvennaathvarfsins og skýrir frá því hvernig atvinnurekendur og samstarfsfólk geta veitt konum sem búa við heimilisofbeldi stuðning.
 

4.12.2003 : Bretar breyta lögum um ofbeldisglæpi

Í fyrradag kynnti Tony Blair nýtt frumvarp til laga um verndun fórnarlamba ofbeldisglæpa. Í tillögu stjórnarinnar felst meðal annars að auðveldara verður fyrir fórnarlömb að fá nálgunarbann. nánar
 

1.12.2003 : Umsögn Kvennaathvarfsins vegna frumvarps um brottvísun og heimsóknarbann

Samtök um kvennaathvarf hafa skilað umsögn til Alþingis um breytingu á lögum um meðferð opinberra mála og almennum hegningarlögum (brottvísun og heimsóknarbann). nánar

 

21.11.2003 : Afstaða löggunnar í Svíþjóð til vændislaganna

Í gær hélt Thomas Ekman, yfirmaður teymis sem berst gegn vændi og verslun með konur í Svíþjóð, erindi á Grand hótel. Þar skýrði hann afstöðu og reynslu sænsku lögreglunnar af vændiskaupendalögunum.

nánar
 

19.11.2003 : Vitnað um áhrif sænsku laganna

Í gær hélt Petra Östergren fyrirlestur um áhrif vændislaganna í Svíþjóð á vændiskonur. Petra kom einnig fyrir allsherjarnefnd Alþingis en hún er hér á landi í boði Sambands ungra sjálfstæðismanna. Á morgun mun svo Thomas Ekman, yfirmaður teymis sem sér um vændi og verlsun með konur innan lögreglunnar í Gautaborg, halda fyrirlestur í hádeginu á Grand hótel, en þau Petra eru ekki á eitt sátt um áhrif sænsku lagasetningarinnar í Svíþjóð.

nánar
 

12.11.2003 : Húrra fyrir Dönum!

Danska ríkisstjórnin ætlar að fara í herferð til að vekja athygli á heimilisofbeldi og verja til þess um milljarði íslenskra króna. nánar
 

6.11.2003 : Grein í Læknablaðinu

Bætt hefur verið við greinasafnið grein sem birtist í nýjasta hefti læknablaðsins um lækna og greiningu heimilisofbeldis. nánar
 

4.11.2003 : Októbermánuður gegn heimilisofbeldi

Meðvitund um mikilvægi þess að berjast gegn heimilisofbeldi nær víða eins og fréttatilkynning frá George W. Bush, Bandaríkjaforseta ber með sér. nánar
 

 

Leita á vefnum


 

Eldri fréttir


Póstlisti

Skráning á póstlista.

Vinsamlegast athugaðu að netfangið sé rétt slegið inn.


 


þetta vefsvæði Byggir á Eplica

 

efnisyfirlit síðunnar


þetta vefsvæði byggir á eplica. eplica heimasiðugerðheimasiðugerð - nánari upplýsingar á heimasíðu eplica.